Læknablaðið - 15.12.2005, Qupperneq 60
UMRÆÐA & FRÉTTIR / CODEX ETHICUS
Codex Ethicus
Samþykktur á aðalfundi Læknafélags íslands 1. október 2005
Á aðalfundi LÍ dag-
ana 30. september
og 1. október 2005
voru samþykktar
talsverðar breytingar
á siðareglum lækna
- Codex Ethicus.
Þær eru því birtar
hér í heild sinni með
áorðnum breyting-
um.
Læknafclag íslands setur félagsniönnuni siöarcgl-
ur, Codex Ethicus - reglur um góða læknishætti
sem reistar eru á Alþjóðasiðareglum lækna. Codex
Ethicus er ætlaður öllum læknum sem starfa á
Islandi til leiðbeiningar og stuðnings í daglegu
starfi.
Með samþykki þcirra staðfesta læknar að
- hlutverk þeirra er verndun heilbrigðis og bar-
átta gegn sjúkdómum,
- starfi þeirra fylgi ábyrgð gagnvart einstakling-
um og samfélagi,
- þeir geta því aðeins vænst trausts, að þeir geri
sér far um að uppfylla þær siðferðilegu kröfur
sem læknisstarfinu fylgja.
Meginreglur
I. Hafið velferð sjúklings og samfélags að leið-
arljósi.
II. Virðið læknisstarfið og sýnið ábyrgð í starfi.
III. Sýnið sjúklingum virðingu og varðveitið upp-
lýsingar um heilsufar þeirra og önnur einka-
málefni.
IV. Fræðið og fræðist af öðrum.
V. Þekkið eigin takmarkanir og hæfni annarra.
VI. Sýnið vammleysi í líferni og starfi.
VII. Virðið hefðir og sjálfstæði stéttarinnar.
I.
Almenn ákvæði um góða læknishætti
l.gr.
Lækni ber að virða mannslíf og mannhelgi. Læknir
skal leitast við að hjálpa heilbrigðum til að varð-
veita heilsu sína og sjúkum til að öðlast heilbrigði
að nýju.
Læknir skal rækja starf sitt af vandvirkni og
samviskusemi án tillits til eigin hagsmuna, per-
sónulegra skoðana, stjórnmála, þjóðernis, trúar-
bragða, kynþátta, kynferðis, kynhneigðar eða ann-
arra utanaðkomandi áhrifa.
Læknir skal í starfi sínu vinna samkvæmt sann-
færingu sinni. Hann skal standa vörð um sjálfstæði
læknastéttarinnar. Honum er ósæmandi að takast á
hendur nokkra sýslu er skerðir sjálfstæði hans sem
læknis og gæta heiðurs læknisstéttarinnar jafnt í
læknisstörfum sínum sem öðrum athöfnum.
2. gr.
Lækni ber að viðhalda þekkingu sinni og endur-
nýja hana og leitast við að fullnægja þeim kröfum,
sem gerðar eru til starfa lækna á hverjum tíma.
Lækni hlýðir í starfi sínu að fara sem minnst út
fyrir það verksvið, sem menntun hans tekur til.
3. gr.
Læknir skal líta á fræðslustarf sitt sem sjálfsagða
skyldu. Læknir skal kosta kapps um að miðla
þekkingu sinni sem víðast til lækna og læknanema,
til annarra heilbrigðisstétta og til almennings.
4. gr.
Það er meginregla að lækni er frjálst að hlýða sam-
visku sinni og sannfæringu. Hann getur, ef lög og
úrskurðir bjóða ekki annað, synjað að framkvæma
læknisverk, sem hann treystir sér ekki til að gera
eða bera ábyrgð á eða hann telur ástæðulaust eða
óþarft.
Lækni er skylt að veita sjúklingi nauðsynlega
læknishjálp í viðlögum, nema hann hafi fullvissað
sig um, að hún sé veitt af öðrum.
5. gr.
Lækni sæmir ekki að láta hagsmuni óviðkomandi
sjúklingi hafa áhrif á ákvarðanir sínar, þegar hann
veitir eða vísar á heilbrigðisþjónustu.
Þegar læknir kemur fram eða tjáir sig, sem full-
trúi félags, opinbers eða einkarekins fyrirtækis eða
stofnunar, skal hann gæta þess að getið sé á hvers
vegum hann kemur fram.
Lækni, sem fær vitneskju um aðstæður sem
hann telur faglega óviðunandi, er skylt að gera
grein fyrir þeim skoðunum sínum.
6. gr.
Læknir skal við rannsóknir, ráðleggingar og með-
ferð byggja á fræðilegum niðurstöðum og/eða við-
urkenndri reynslu.
Læknir skal við vísindarannsóknir gæta að
velferð og hagsmunum einstakra sjúklinga og
sjálfboðaliða, sem ætíð vega þyngra en hagsmunir
vísinda og samfélags. I þessu efni gilda ákvæði
Helsinkiyfirlýsingar Alþjóðafélags lækna frá 2000.
Læknir sem tekur þátt í vísindarannsókn skal
gæta þess að allar rannsóknarniðurstöður, sem
hafa þýðingu fyrir sjúkdómsgreiningu, meðferð og
forvarnir, verði réttilega birtar. Læknir skal gæta
956 Læknablaðið 2005/91