Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.2005, Side 63

Læknablaðið - 15.12.2005, Side 63
UMRÆÐA & FRÉTTIR / CODEX ETHICUS / LAUSAR STÖÐUR 24. gr. Stjórn Læknafélags íslands ásamt með stjórnum svæðafélaga hefur eftirlit með því að reglum þessum sé fylgt. Siðanefnd félagsins sker úr um ágreining um skilning á reglum þessum og fjallar um siðamál sem til hennar er vísað. 25. gr. Telji læknir að ástæða sé til íhlutunar vegna brots læknis á reglunum eða vanhæfni læknis í starfi, skal hann snúa sér til landlæknis, sem hefur eftirlit með heilbrigðisstéttum, stjórnar Læknafélags Islands, stjórnar viðkomandi svæðafélags Læknafélags Is- lands eða til siðanefndar Læknafélags Islands. Sé læknir í vafa um hvort nægileg ástæða geti verið til þess að gera athugasemdir við háttsemi læknis leitar hann ráðgjafar hjá Læknafélagi íslands. LANDSPITALI HÁSKÓLASJ LIKRAHIJS Sérfræðilæknar Sérfræðilæknar óskast við endurhæfingarsvið geðsviðs. Um er að ræða tvö 80-100% störf. Störfin verða veitt frá 1. janúar 2006 eða síðar eftir nánara samkomulagi. Endurhæfingarþáttur samanstendur af legudeildum, dag- og göngudeildarstarfi auk þjónustu við einstaklinga á meðferðarheimilum. Umsækjendur skulu hafa sérfræðiréttindi í geðlækningum. Með umsókn þurfa að fylgja vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf og reynslu af kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum. Þá þurfa að fylgja Ijósrit af birtum greinum og útdráttum sem umsækjandi hefur ritað eða átt þátt í. Umsóknargögnum ber að skila í tvíriti fyrir 22. desember n.k. til Halldórs Kolbeinssonar, yfirlæknis endurhæfingardeilda geðsviðs Landspítala Kleppi og veitir hann jafnframt upplýsingar í síma 824 5346, netfang halldork@landspitali.is Mat stöðunefndar byggist á innsendum umsóknargögnum. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu einnig á þeim. Laun eru samkvæmt kjarasamningi sjúkrahúslækna og er starfið bundið við sjúkrahúsið eingöngu samanber yfirlýsingu spítalans vegna kjarasamnings við sjúkrahúslækna dags. 2. maí 2002. Hægt er að nálgast umsókn um lækningaleyfi eða læknisstöðu á landspitali.is Tekið er mið af jafnréttisstefnu spítalans við ráðningar í störf á Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Læknablaðið 2005/91 959

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.