Læknablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 63
UMRÆÐA & FRÉTTIR / CODEX ETHICUS / LAUSAR STÖÐUR
24. gr.
Stjórn Læknafélags íslands ásamt með stjórnum
svæðafélaga hefur eftirlit með því að reglum
þessum sé fylgt. Siðanefnd félagsins sker úr um
ágreining um skilning á reglum þessum og fjallar
um siðamál sem til hennar er vísað.
25. gr.
Telji læknir að ástæða sé til íhlutunar vegna brots
læknis á reglunum eða vanhæfni læknis í starfi, skal
hann snúa sér til landlæknis, sem hefur eftirlit með
heilbrigðisstéttum, stjórnar Læknafélags Islands,
stjórnar viðkomandi svæðafélags Læknafélags Is-
lands eða til siðanefndar Læknafélags Islands. Sé
læknir í vafa um hvort nægileg ástæða geti verið
til þess að gera athugasemdir við háttsemi læknis
leitar hann ráðgjafar hjá Læknafélagi íslands.
LANDSPITALI
HÁSKÓLASJ LIKRAHIJS
Sérfræðilæknar
Sérfræðilæknar óskast við endurhæfingarsvið geðsviðs. Um er að ræða tvö 80-100% störf. Störfin verða veitt frá 1. janúar 2006
eða síðar eftir nánara samkomulagi. Endurhæfingarþáttur samanstendur af legudeildum, dag- og göngudeildarstarfi auk þjónustu
við einstaklinga á meðferðarheimilum. Umsækjendur skulu hafa sérfræðiréttindi í geðlækningum.
Með umsókn þurfa að fylgja vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf og reynslu af kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum. Þá
þurfa að fylgja Ijósrit af birtum greinum og útdráttum sem umsækjandi hefur ritað eða átt þátt í.
Umsóknargögnum ber að skila í tvíriti fyrir 22. desember n.k. til Halldórs Kolbeinssonar, yfirlæknis endurhæfingardeilda
geðsviðs Landspítala Kleppi og veitir hann jafnframt upplýsingar í síma 824 5346, netfang halldork@landspitali.is
Mat stöðunefndar byggist á innsendum umsóknargögnum. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um
ráðningu einnig á þeim.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi sjúkrahúslækna og er starfið bundið við sjúkrahúsið eingöngu samanber yfirlýsingu spítalans vegna
kjarasamnings við sjúkrahúslækna dags. 2. maí 2002. Hægt er að nálgast umsókn um lækningaleyfi eða læknisstöðu á landspitali.is Tekið
er mið af jafnréttisstefnu spítalans við ráðningar í störf á Landspítala.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Læknablaðið 2005/91 959