Læknablaðið - 15.05.2007, Qupperneq 24
FRÆÐIGREINAR / LOFTBRJÓST
Tafla III. Tegund aðgerðar, aðgerðartími og legutími (sýndur er fjöldi aðgerða og % í sviga).
Brjóstholsspeglun Opin aðgerð p-gildi
n=134 n=100
Fleygskurður eingöngu 94 (70,1) 31 (31) <0,01
Fleygskurður og fleiðruerting 34 (25) 67 (67) <0,01
Aðrar aðgerðir 6 (4,5) 2(2) óm
Aðgerðartími, meöaltal ± sf 64,8 ± 25,6 mín. 50,5 ± 28,3 mín. <0,001
miðgildi (bil) 60 min. (20-145) 40 mín. (15-165) -
Legutími, miðgildi (bil) 3 dagar (1-34) 4 dagar (2-29) -
óm = ómarktækt; sf=staöalfrávik; mín= =mínútur
Tafla IV. Snemmkomnir fylgikvillar eftir skurðaðgerðir við loftbrjósti. Samanburður milli
sjúklinga sem fóru í opna aðgerð og aðgerð með brjósholssjá (sýndur er fjöldi
aðgerða og % í sviga).
Brjóstholsspeglun n=134 Opin aðgerð n=100 p-gildi
Viðvarandi loftleki* 14 (10,4) 2(2) 0,04
Blaeðing** 4(3) 2(2) óm
Fleiöruholsígerö 1(0,7) 0(0) óm
Húðsýking 2 (1,5) 0(0) óm
Horners heilkenni 1(0,7) 0(0) óm
Lifrarbólga (toxic hepatitis) 0(0) 1(1) óm
Skurðdauði 0(0) 0(0) óm
*þar af þrlr sjúklingar sem fðru í enduraðgerö
**þar af fimm sjúklingar sem fóru í enduraögeró
óm = ómarktækt
Ábendingar fyrir aðgerð voru mjög sambæri-
legar fyrir báða aðgerðarhópa, og voru það annað
hvort fyrsta loftbrjóst eða fyrsta endurtekið loft-
brjóst sem sáust í rúmlega 2/3 tilfella í báðum
hópum (tafla II).
Tegund aðgerðar, aðgerðartími og legutími eru
sýnd í töflu III. í flestum brjóstholsspeglunum
var eingöngu gerður fleygskurður, eða í 70,1%
tilfella, en í opnu aðgerðunum var samsetning af
fleygskurði og fleiðruertingu algengust (67%)
(p<0,001). Opnu aðgerðirnar tóku skemmri tíma
en speglunaraðgerðirnar og munaði 20 mínútum á
miðgildi (40 mínútur samanborið við 60 mínútur)
og 13,1 mínútum á meðalaðgerðartíma (p<0,001).
Legutími var styttri eftir brjóstholsspeglun en
opna aðgerð, eða þrír dagar samanborið við fjóra
daga (miðgildi). Rúmur meirihluti (60,4 %) sjúk-
linga sem gengust undir brjóstholsspeglun fóru
heim innan þriggja daga frá aðgerð en 40% eftir
opna aðgerð.
Algengustu snemmkomnu fylgikvillarnir voru
viðvarandi loftleki (n=16) og blæðingar (n=6)
(tafla IV). Einn sjúklingur fékk Horner’s heilkenni
vegna skaða á taug við brjóstholsspeglun þar sem
gerð var fleiðruerting. ígerð í fleiðruholi greind-
ist hjá einum sjúklingi og annar fékk lifrarbólgu
(toxic hepatitis) sem rakin var til ísóflúran svæf-
ingar. Nokkrir sjúklinganna fengu fleiri en einn
fylgikvilla. Alls þurftu fimm sjúklingar að fara í
enduraðgerð vegna blæðinga og þrír vegna við-
varandi loftleka. Hjá síðarnefnda hópnum fund-
ust blöðrur og/eða loftleki sem ekki hafði greinst
við fyrstu aðgerð. Enginn lést eftir aðgerðirnar
(skurðdauði < 30 daga: 0%).
Ekki var marktækur munur á öðrum snemm-
komnum fylgikvillum en viðvarandi loftleka, sem
var algengari eftir brjóstholsspeglun en opna
aðgerð. Alls greindust 14 sjúklingar (10,4%) með
viðvarandi loftleka eftir brjóstholsspeglun sam-
anborið við tvo (2%) eftir opna aðgerð (p=0,04).
Tíðni síðkomins endurtekins loftbrjósts var
sömuleiðis hærri eftir brjóstholsspeglanir, eða tíu
(7,5%) á móti þremur (3%) eftir opna aðgerð
(p=0,004). Samtals voru enduraðgerðir vegna
viðvarandi loftleka og endurtekins loftbrjósts
því 13 lalsins eftir brjóstholsaðgerð (9,7%) og 3
(3%) eftir opnu aðgerðirnar (p=0,004).Tíðni end-
uraðgerða vegna blæðinga var sambærileg eða 2%
fyrir báða hópa.
Þrettán sjúklingar fóru í enduraðgerð vegna
síðkomins endurtekins loftbrjósts, að meðaltali
13,2 ± 15 mánuðum (bil 1-47 mánuðir) frá upp-
haflegu aðgerðinni. I töflu V má sjá upplýsing-
ar um sjúklingana, tegund fyrstu aðgerðar og
hvernig enduraðgerð var gerð. Þessir sjúklingar
voru marktækt yngri með meðalaldur 23,3 ±
5,8 ára í stað 28,7 ± 12,3 ára fyrir hópinn í heild
(p=0,008). Flestir sjúklinganna fóru upphaflega í
brjóstholsspeglun (76,9%) og var einungis gerður
fleygskurður hjá níu þeirra (69,2%). Sjö (53,8%)
enduraðgerðanna fólu í sér bæði fleygskurð og
fleiðruertingu. Tíu af 13 enduraðgerðum voru
opnar aðgerðir.
Samanburður á þremur fimm ára tímabilum
sýndi að ekki var marktækur munur á fjölda
aðgerða á milli tímabila. Kynjahlutfall, tegund og
staðsetning loftbrjósts voru sambærileg milli ára
en meðalaldur við aðgerð var aðeins hærri á síð-
asta tímabilinu, eða 29,7 ár miðað við 28,2 ár á
fyrstu tveim tímabilum. Þessi munur var þó ekki
marktækur. Fjöldi brjóstholsspeglana minnkaði
milli tímabila, eða úr 58 (65,2%) á fyrsta tímabili
niður í 32 (42,7%) á síðasta tímabilinu (p=0,008).
Aðgerðum sem fólu eingöngu f sér fleygskurð
fækkaði einnig frá fyrsta tímabili úr 52 (58,4%)
í 37 (49,3%) á síðasta tímabili. Að sama skapi
fjölgaði aðgerðum þar sem bæði fleygskurður og
fleiðruerting voru framkvæmd í sömu aðgerð.
Þessi rnunur var ekki marktækur. Aðgerðartími
styttist frá fyrsta til síðasta tímabils, úr 63 mínútum
í 45 mínútur (miðgildi), munurinn var þó ekki
marktækur. Legutími breyttist ekki marktækt milli
tímabila.
408 Læknablaðið 2007/93