Læknablaðið - 15.05.2007, Page 32
YFIRLITSGREIN / LOFTBRJÓST
Tafla 1. Klínísk skipting loftbrjósts.
Sjálfkrafa loftbrjóst „Prímert loftbrjóst“ - án undirliggjandi lungnasjúkdóms „Sekúndert loftbrjóst“ - undirliggjandi lungnasjúkdómur fyrir hendi Tíðaloftbrjóst - kemur endurtekiö í tengslum viö tíöir
Áverkaloftbrjóst Beinn áverki á brjósthol (til dæmis rifbrot) Sljór (blunt) brjóstholsáverki (sem veldur rofi á lungnablöðrum)
Af læknisvöldum Greinist eftir læknisaðgeröir, til dæmis sýnatöku frá lunga eöa berkju, fleiðrusýnatöku og brjóstholsástungu
Tafla II. Lungnasjúkdómar sem geta verió undirrót sjáifkrafa loftbrjósts.
Loftvega • og lungnasýkingar
Langvinn lungnateppa
Lungnaþemba
Astmi
Slímseigjukvilli (cystic fibrosis)
Sjúkdómur í millifrumuvef lungna
Lungnahersli (pulmonary fibrosis)
Sarklíki (sarcoidosis)
Smitsjúkdómar
Berklar
Bakteríusýking
Pneumocystis carinii sýking
Sníkjudýrasýking
Sveppasýking
Alnæmi
Æxlisvöxtur
Lungnakrabbamein
Meinvörp (til dæmis eitilfrumusarkmein eöa sarkmein)
Tíöaloftbrjóst (legslímuflakk)
Aörir sjúkdómar
Marfans heilkenni
Ehlers-Danlos heilkenni
Histiocytosis X
Herslishúð (scleroderma)
brjósts er aukin í nánast öllum lungnasjúkdómum.
Rof verður á yfirborði lunga og loft berst út í
fleiðruhol. Lungnaþemba og krónískt berkjukvef
eru algengustu sjúkdómarnir (9) en hlutfall loft-
brjóstssjúklinga með þessa lungnasjúkdóma er
yfirleitt á bilinu 10-40% (10-12). Þessi tegund
loftbrjósts getur verið lífshættuleg þar sem þessir
sjúklingar eru oft eldri og hafa skerta lungna-
starfsemi (13, 14). Er dánarhlutfall þeirra allt að
fjórfalt hærra en hjá sjúklingum með loftbrjóst
án undirliggjandi lungnasjúkdóms (15). Aðrir og
sjaldgæfari lungnasjúkdómar sem valdið geta sjálf-
krafa loftbrjósti eru meðal annars histiocytosis X
(Langerhans cell granulomatosis) (16) og lymph-
angioleiomyomatosis (17).
Mun algengara er þó að sjúklingar með sjálf-
krafa loftbrjóst hafi ekki greinst með lungnasjúk-
dóm (primary spontaneous pneumothorax, PSP).
416 Læknabi.aðið 2007/93
Ástæða loftbrjósts er þá rof á smáum blöðrum
sem staðsettar eru undir fleiðru lungans (sub-
pleural blebs). Blöðrurnar eru yfirleitt minni
en 2 cm í þvermál og eru langoftast á toppi efra
lungnablaðs eða á toppi þess neðra (18). I lang-
flestum tilvikum (>90%) er blöðrur að finna í
báðum lungum (19,20). Um er að ræða eins konar
staðbundið lungnaþan (localised emphysema)
sem veldur staðbundinni veilu í lungum sem að
öðru leyti eru eðlileg. Myndun blaðranna er hugs-
anlega tengd niðurbroti á teygjuþráðum (elastic
fibers) og eru þeir taldir brotna niður vegna ójafn-
vægis milli próteasa og antipróteasa annars vegar
og oxunarefna og andoxunarefna hins vegar (21).
Einnig er talið að hvítfrumur (neutrophils) og át-
frumur (macrophages) hafi hlutverki að gegna, en
aukinn fjöldi bólgufrumna er til staðar hjá reyk-
ingafólki (22). Afleiðingin er eyðing lungnavefs og
bandvefsummyndun, þar á meðal í aðlægri fleiðru.
Er talið hugsanlegt að efni í tóbaksreyk ræsi
þetta ferli (23). Einnig hefur verið sett fram sú
tilgáta að sjálfkrafa loftbrjóst geti verið afleiðing
einhvers konar bandvefsgalla og blöðrurnar því
meðfæddar. Til dæmis er loftbrjóst mjög algengt
hjá sjúklingum með Marfans heilkenni (24) og
sjúklingar með míturlokuleka (25) og nárakviðslit
hafa hærri tíðni en aðrir (26).
Loks má nefna svokallað tíðaloftbrjóst (cata-
menial pneumothorax). Það sést endurtekið í
tengslum við tíðablæðingar, oftast innan 48-72
klukkustunda frá upphafi þeirra (27). Þetta er
afar sjaldgæf tegund loftbrjósts en er hugsanlega
vangreind, til dæmis er til rannsókn þar sem 3-
6% kvenna með loftbrjóst á aldrinum 20-30 ára
reyndust vera með tíðaloftbrjóst (3). Yfirleitt
eru þessi loftbrjóst hægra megin og erfitt getur
verið að greina þau, enda eru þau oftast lítil (21,
28). Orsakir tíðaloftbrjósts eru á huldu (29) en í
sumum tilfellum er það talið geta tengst legslímu-
flakki (endometriosis) (30).
Klínísk skipting
Loftbrjóst er flokkað í sjálfkrafa loftbrjóst,
áverkalol'tbrjóst og loftbrjóst af læknisvöldum
(tafla I) (31,32). Sjálfkrafa loftbrjóst er sjúkdóm-
ur þar sem ekki er saga um áverka (9). Það er
síðan flokkað í „prímert“ loftbrjóst þar sem
lungnasjúkdómur er ekki fyrir hendi, og „sek-
úndert“ loftbrjóst, þar sem sjúklingurinn hefur
þekktan lungnasjúkdóm (tafla II).
Einkenni og skoðun
Einkenni loftbrjósts er langoftast takverkur eða
mæði sem versnar við áreynslu (33). Stundum
j