Læknablaðið - 15.05.2007, Page 47
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FUNDUR LR UM PÓLITÍK
Pétri Blöndal þykir ým-
islegt við opinberan rekstur
á heilbrigðiskerfmu
spaugilegt.
við og spyrja hvort við séum með réttar áherslur,
hvort þjónustan sé á of háu stigi. Á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins var mjög ítarleg og góð
umræða um heilbrigðismálin og þar var áréttað að
við viljum viðhalda almannatryggingakerfinu og
að heilbrigðisþjónustan sé að mestu fjármögnuð af
opinberu fé. Við viljum leggja meiri áherslu á fjöl-
breyttari rekstrarform og fara meira í samstarf við
einkaaðila en þar sem það hefur verið gert hefur
það tekist mjög vel. Við erum að vannýta okkar
góða fagfólk og gætum gert miklu betur með
því að leggja reksturinn í hendur þeirra líka. Við
viljum auka aðgengi fólks að upplýsingum varð-
andi heilbrigðisþjónustuna, við viljum setja reglur
um hámarksbið eftir þjónustunni og við styðjum
áframhaldandi uppbyggingu Landspítalann í það
þjóðarsjúkrahús sem því ber að vera.”
Mannfjöldaspár þarf að endurskoða
„Eg hef ekki skipt mér mikið af heilbrigðismál-
um þau fjögur ár sem ég hef setið á þingi,” sagði
Magnús Þór Hafsteinsson þingmaður Frjálslyndra
og bætti því við að hann skammaðist sín ekkert
fyrir það. „Maður getur ekki verið góður í öllu.”
„Flest okkar í stjórnmálunum erum í raun-
inni með svipaðar áherslur í velferðarmálum.
Grundvallaratriði er að allir landsmenn hafi jafn-
an rétt til heilbrigðisþjónustu óháð búsetu og efna-
hag. Við viljum efla heilsugæsluna sem grunnþátt
heilbrigðisþjónustunnar, við viljum bæta aðgengi
almennings að þjónustunni utan dagvinnutíma og
að gjaldtöku sé ætíð haldið í lágmarki. Við viljum
endurskoða innheimtu þjónustugjalda en við
teljum greiðsluþáttaka sjúklinga hafi aukist. Við
viljum nýta kosti einkaframtaksins og auka útboð
og þjónustusamninga og miða greiðslur við veitta
þjónustu og tryggja eftirlit með gæðum þjónust-
unnar. Við viljum auka þjónustu við aldraða og
höfum lagt til að tekin verði í notkun 1000 ný rými
fyrir aldraða á næstu 4-6 árum. Það þarf að eyða
fjölbýlum á öldrunarstofnunum og eyða biðlist-
um. Við þurfum að undirbúa okkur fyrir þá stóru
árganga aldraðra sem eru að koma upp á næstu
árum. Við viljum koma á kerfi umönnunarbóta
fyrir aðstandendur aldraðra sem vilja hugsa um þá
í heimahúsum.”
Magnús sagði ennfremur nauðsynlegt að taka
þá umræðu að allar mannfjöldaspár hagstofunnar
til næstu áratuga yrði að endurskoða með tilliti til
þess stóra fjölda innflytjenda sem streymt hefði
til landsins á undanförnum árum. „Er íslenska
heilbrigðiskerfið tilbúið til að taka á móti þessu
fólki?” spurði Magnús.
Sjá nánari stefnuyfir-
lýsingar flokkanna:
www.vg.is/
www.samfylking. is/
www.xd.is
www. framsokn. is/
www.xf.is/
www. islandshreyfingin. i{
Læknablaðið 2007/93 431