Læknablaðið - 15.05.2007, Síða 59
UMRÆÐA & FRÉTTIR / 50 ÁRA AFMÆLI SKÍ
aðgerðum er mikilvæg og leggja verður áherslu
á að ungir kollegar taki með sér nýjungar þegar
þeir snúa heim. Af þessum sökum þykir mér ekki
vænlegt að færa sérnám í skurðlækningum alveg
hingað til lands, en láta nægja takmarkaðan hluta
eins og við þekkjum nú.
Tækninýjungar hafa skilað sér fljótt hingað til
lands, meðal annars vegna þeirrar íslensku áráttu
að eiga alltaf nýjustu og bestu tækin. Eftir að hafa
unnið á stórum sjúkrahúsum vestanhafs og austan
get ég vitnað um að skurðstofur hér eru síst verr
búnar tækjum en þar og aðbúnaður yfirleitt til
fyrirmyndar. Það er einnig ánæguleg staðreynd að
erlendir skurðlæknar skuli leggja leið sína hingað
til að kynna sér nýjungar, líkt og gersl hefur með
magahjáveituaðgerðir með aðstoð kviðsjár.
En hverju má breyta? Að mínu mati þarf að
auka hlut kvenna í skurðlækningum. Af tæplega
100 meðlimum í Skurðlæknafélaginu eru innan við
10 konur. Þetta mun breytast á næstu árum enda
eru í dag samtals 17 konur skráðar með sérfræði-
viðurkenningu í skurðlækningum og fjöldinn allur
í sérnámi eða á leiðinni í sérnám. Þetta er ánægju-
leg þróun en mætti hafa gerst fyrr.
Annað sem ég tel brýnt er að auka áherslur á
rannsóknir skurðlækna. Þarna erum við nokkuð
á eftir öðrum sérgreinum. Mikilvægt er að virkja
læknanema strax í náminu, til dæmis með rann-
sóknarverkefnum tengd skurðlækningum. Lækna-
- deild hefur á síðustu árum stóraukið áherslu á
rannsóknir og það er farið að skila sér, eins og sést
best á þessu þingi þar sem verkefni læknanema
skipa stóran sess, til dæmis eru öll þrjú erindin sem
valin voru til að keppa um verðlaun frá lækna-
nemum. Vinnuálag er vissulega mikið og okkar
ungu læknar bera við tímaskorti til þess að geta
sinnt rannsóknum almennilega. Mikilvægt er að
endurskipuleggja vinnuna þannig að rannsóknir
séu fastur hluti af starfi þeirra, á sama hátt og
við kennum þeim að fara með nál og tvinna. Sér-
greinin býr vel, fáar greinar eiga jafn marga með
doktors- og MS-próf í sínum röðum. En rann-
sóknir eiga ekki eingöngu að vera hluti af sérnámi
erlendis, heldur einnig þegar heim er komið. í
dag eru allt aðrar aðstæður til að sinna rann-
sóknum en áður, styrkir úr rannsóknarsjóðum og
frá hinu opinbera hafa stóraukist og nauðsynlegt
að skurðlæknar taki þátt í því rannsóknarvori sem
komið er hingað til lands.
Að lokum vil ég þakka öllum þeim fjölmörgu
sem lagt hafa leið sína hingað í dag og samgleðjast
á þessum merku tímamótum í sögu Skurðlækna-
félagsins.
Þessi fengu hvatning-
arverðlaun Jónasar
Magnússonar á
Skurðlœknaþinginu um
daginn: Sigríður Birna
Elíasdóttir, Tryggvi
Þorsteinsson og Hannes
Sigurjónsson lœknanemar.
Læknablaðið 2007/93 443