Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.2007, Page 3

Læknablaðið - 15.12.2007, Page 3
Ljósmynd Dagný Heiðdal Læknadagar 2008 Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICALIOURNAL www. laeknabladid. is Aðsetur Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi Útgefandi Læknafélag íslands Læknafélag Reykjavíkur Símar 564 4104-564 4106 (fax) Ritstjórn Bryndís Benediktsdóttir Engilbert Sigurðsson Tómas Guðbjartsson Þóra Steingrímsdóttir Jóhannes Björnsson, ábm. og ritstjóri Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Brynja Bjarkadóttir brynja@iis.is Læknadagar 2008 verða haldnir á Hótel Sögu dagana 22.-26. janúar og fylla heila viku að venju. Dagskráin er birt í heild sinni á bls. 896-890 og kennir þar fjölmargra grasa en líklega er þó einna óvenjulegust málstofa um háfjailalæknisfræði þar sem innlendir og erlendir læknar sem gengið hafa á hæstu fjöll veraldar lýsa reynslu sinni af háfjallaveiki og fara ofan í saumana á meðferð við henni. - Myndin er tekin í september innan við 100 metra frá hæsta tindi Kilimanjaro og sýnir aðframkomna íslenska lækna á uppleið. ■■HHi LISTAMAÐUR M Á N AÐ A R I N S Sara Björnsdóttir (1962) efndi til sýningar í Berlín nú í lok nóvember. Þar sýndi hún verk sem eru einkennandi fyrir fjölbreytta nálgun hennar í mynd- listinni, Ijósmyndir, myndbandsverk auk þess sem að á opnun var hún með gjörning. Þemað var gefið til kynna í titlinum, „Intoxication" (víma), en eins og hún segir sjálf frá vildi hún gera rauðvíni hátt undir höfði: „Auk þess að veita líkamlega vellíðan og gáskafullan unað þá hefur það einnig læknisfræðilega eiginleika, enda talið mjög gott fyrir hjartað og æðakerfið auk þess að hafa örvandi áhrif á meltinguna." Les- endur Læknablaðsins ættu að geta metið þessa fullyrðingu lista- mannsins á faglegum forsendum. Hitt er víst að Bakkus hefur löngum verið yrkisefni í listum og Sara fetar í fótspor þeirra fjölmörgu sem hafa leikið sér með samlíkingu áfengisvímu og list- sköpunar. Þannig má segja að rétt eins og drykkja losar um hömlur ku listin hafa tök á að opna gáttir tilfinninga eða leiða menn að áður ókönnuðum sjónarhornum. Um leið vinnur Sara í anda þeirra listamanna sem þaulkanna þá hluti sem eru þeim fyrir sjónum dag frá degi. Má sérstaklega hugsa til kyrralífsmálara fyrri alda sem fóru höndum þannig um einföldustu hluti að eftir standa verk sem sýna okkur allt annað og meira en myndefnið gefur til kynna. Ljósmyndaverk Söru, Intoxication (2007), sýna barmafull rauðvínsglös sem skoðuð eru í gegn um kviksjá. Þannig kemur fram mynstur sem virðist hvort tveggja í senn vísa til upphafinnar gleðivímu og veruleikabrenglunar. Sams konar tvískinnungs gætir í myndbandsverkinu „Salem Lights" sem hún sýndi einn- ig á ofangreindri sýningu. Myndbandstökuvélinni var beint að reyk frá sígarettu sem brennur upp þannig að úr varð fagurt sjónarspil sem um leið byggir á eins heilsuspillandi fyrirbæri og hugsast getur. í báðum tilvikum tekur hún venjulega hluti sem allir kannast við og gerir þá abstrakt, að myndum sem standa einar og sér. Rauðvínsglas og sígaretta eru mörgum hversdagslegur gleðigjafi og bakgrunnur samskipta manna í millum og þannig vísa þessi nýjustu verk Söru einnig til eldri verka hennar þar sem hún vinnur með tilfinningar og sam- skipti. Markús Þór Andrésson Blaðamaður Hávar Sigurjónsson havar@iis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Upplag 1700 Áskrift 6.840,- m. vsk. Lausasala 700,- m. vsk. © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild án leyfis. Prentun og bókband og pökkun íslandsprent ehf. Steinhellu 10 221 Hafnarfirði ISSN: 0023-7213 LÆKNAblaðið 2007/93 815

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.