Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.2007, Side 47

Læknablaðið - 15.12.2007, Side 47
UMRÆÐUR O G ÍSLENSKUR F O F R É T T I R R M A Ð U R "Kanta" ómenntaðar konur (sjálfar umskornar) sem framkvæma limlestingar á kynfærum á stúlkubarna. Konumar eru málaðar hvítar og eru með hvítt höf- uðfat við verknaðinn. Börnin eru einnig máluð hvít áður en þau eru limlest. Verknaðurinn erframinn á leynistöðum inn í skógi. Bæði börnum ogforeldrum er hótað með ógæfu alla ævi efþau þegi ekki um atburð- inn. Hár trumbusláttur og söngur meðan á verknaði stendur er m.a. til að yfirgnæfa sársauka- og skelf- ingaróp fórnarlambanna. sjálft landið og fólkið. Fátæktin er það sem sting- ur hvað mest í augun í þessu fallega landi með hitabeltisveðráttu og yndislegum gróðri. Þarna virðist manni sem hægt sé að lifa góðu lífi af því sem landið gefur af sér og ýmsir verðmætir málmar eru í jörð en þarna er misskipting auðsins gríðarleg og spilling landlæg. Fólkið er elskulegt og friðsamlegt og Gana er að sögn eitt öruggasta landið að heimsækja í Afrfku og þrátt fyrir allt er það einnig eitt af þróuðustu lýðræðisríkjum álf- unnar. En það þarf mikið að breytast í opinberum innviðum þess ef kjör fólksins eiga að batna." Ólöf segir á að á þinginu hafi umræða um um- skurð stúlkubarna í Afríku verið það sem hafði mest áhrif á hana og fulltrúana frá Vesturlöndum. „Það er reyndar rangt að kalla þetta umskurð á íslensku því það segir alls ekki hvað þetta er hræðilegur verknaður, enda er þetta kallað female genital mutilation á ensku og ætti því með réttu Margrét Árnadóttir, Ólöf Sigurðardóttir og Helga Hannesdóttir á allieimsþingi í Gana í júlí að kallast limlestingar á kynfærum kvenna. Það kom fram að fylgikvillar þessa eru fjölmargir og mjög alvarlegir eins og gefur að skilja. Yfirleitt er þetta framkvæmt við mjög frumstæðar aðstæður, engar deyfingar og haldið er fyrir vit stúlknanna meðan þetta er framkvæmt. Afleiðingarnar eru oft á tíðum skelfilegar, örvefur og samgróningar myndast og geta valdið því síðar að börn þess- ara kvenna verða fyrir súrefnsskorti í fæðingu með oft á tíðum mjög alvarlegum afleiðingum. Kynlífsánægja kvennanna verður lítil sem engin enda er það tilgangur aðgerðarinnar að miklu leyti. A þinginu var sýnd heimildarkvikmyndin, The Secret Pain, sem Danir gerðu á síðasta ári í samstarfi við konu frá Afríkuríkinu Sierra Leone. Þar er sögð saga hennar þegar hún var tekin í fóstur barnung af dönskum foreldrum en líffræði- legur faðir hennar fékk forræði yfir henni sextán ára. Hann tók hana með sér til Sierra Leone og lét umskera hana. Þetta er hræðileg saga og fékk mjög á mann að horfa á myndina." Myndin hefur vakið mikla athygli og hlaut m.a. verðlaun Amnesty International Sjá www. thesecretpain.com A þinginu var samþykkt að veita konum í læknanámi aukaaðild að samtökunum og segir Ólöf það mjög ánægjulegt að þetta skref hafi verið stigið. „Það skiptir máli að fá konur fljótt inn í samtökin og gera þær virkar um leið og þær hefja starfsferil sinn sem læknar. Þannig eflast samtökin og geta haft meiri áhrif til góðra verka og vakið umræðu um margt sem betur má fara í heilsugæslu og heilbrigðisþjónustu kvenna og barna." LÆKNAblaðið 2007/93 859

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.