Læknablaðið - 15.12.2007, Blaðsíða 45
Ólöf Sigurðardóttir for-
seti Norður-Evrófmdeildar
Alþjóðasamtaka kvenna í
læknastétt.
Hávar
Sigurjónsson
UMRÆÐUR O G
ÍSLENSKUR F O
F R É T T I R
R M A Ð U R
Öflug samtök og mikilvæg
Ólöf Sigurðardóttir sérfræðingur í klínískri líf-
efnafræði og trúnaðarlæknir Landspítala var
kjörin forseti Norður-Evrópusamtaka kvenna í
læknastétt á 27. alheimsþingi MWIA sem haldið
var í Accra, höfuðborg Gana í Vestur-Afríku 31.
júlí- 4. ágúst 2007
Alþjóðasamtökunum (Medical Women Inter-
national Association, MWIA) er skipt í 8 heims-
svæði. Hvert svæði hefur sinn forseta sem situr í
alþjóðastjórn samtakanna. Evrópa skiptist í þrjú
svæði, Norður-, Mið- og Suður-Evrópu, síðan eru
Suður-Ameríka og Norður-Ameríka, Austurlönd
nær, Mið- Asía og Vestur-Kyrrahafssvæðið og
Afríka. Norður-Evrópusvæðinu sem Ólöf veitir
forsæti tilheyra Norðurlöndin auk Bretlands og
Hollands.
Að sögn Ólafar standa Alþjóðasamtökin á
gömlum merg, því þau voru stofnuð árið 1919
og eru því eitt af elstu félögum læknastéttarinn-
ar á alþjóðavísu. „Samtökin eru algerlega óháð
stjórnvöldum, (non-governmental organization,
NGO) og eru skipuð af konum í læknastétt frá
90 löndum úr fimm heimsálfum. Samtökin hafa
verið í virku samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar
sem NGO frá því á 6. áratugnum. Einnig eru sam-
tökin í samvinnu við Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
a (WHO) svo eitthvað sé nefnt, " segir Ólöf. Þetta
má sjá nánar á heimasíðu samtakanna www.
mwia.net
Ólöf segir að margt hafi vitanlega breyst frá
því samtökin voru stofnuð. „Þegar þau voru upp-
haflega stofnuð voru konur mjög fáar í læknastétt
og því var nauðsynlegt að skapa vettvang fyrir
skoðanaskipti þeirra. í dag eru konur orðnar fjöl-
mennar í læknastétt víða um lönd og sækja veru-
lega á og t.d. er ekki óalgengt á Vesturlöndum
að konur séu um 50% nema í læknadeildum og
áherslur samtakanna hafa breyst í samræmi við
þetta."
Meðal þeirra baráttumála sem samtökin hafa
aðallega beitt sér fyrir á alþjóðavísu er bætt
heilsa og staða barna og kvenna, þau hafa unnið
gegn ofbeldi af öllu tagi eins og umskurði barna,
kynlífsþrælkun kvenna og barna auk ýmissa
annarra verkefna. Þá hafa samtökin tekið virkan
þátt í því að framleiða ýmiss konar kennsluefni
eins og t.d um Gender Mainstreaming sem Félag
kvenna í læknastétt á íslandi kynnti á íslenskum
Læknadögum fyrir nokkrum árum.
Auk Ólafar sóttu þær Helga Hannesdóttir
geðlæknir og Margrét Árnadóttir lyflæknir al-
þjóðaþingið í Accra í sumar og var það mikil og
ný reynsla. „Enginn er samur eftir ferð til Afríku,"
segir Ólöf. „Eftirminnilegast er að sjálfsögðu
LÆKNAblaðið 2007/93 857