Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.12.2007, Qupperneq 23

Læknablaðið - 15.12.2007, Qupperneq 23
______FRÆÐIGREINAR GÁTIR Á GEÐDEILDUM 5. Hvað í fari starfsfólks fannst þér ekki hjálplegt/ gagnlegt á meðan þú varst á gát? Svör sjúklinganna við opnu spurningunum voru flokkuð af rannsakendum í sitt hvoru lagi og flokkunin samræmd eins og hún birtist í töflum II og m. Lokaðar spurningar: 6. Fannst þér hjálplegra/gagnlegra ef starfsmað- ur var af sama kyni og þú? Já, nei svörun. 7. Vissir þú af hverju þú varst sett/ur á gát? Já, nei svörun. 8. Vissir þú í hverju gátin fólst? Já, nei svörun. 9. Vissir þú af hverju gátinni var aflétt? Já, nei svörun. 10. Var gátin réttmæt? Já, nei svörun. 11. Fannst þér gátin standa o/ stutt xjfir, hæfilega lengi, oflengil Merkt við einn af þremur mögu- leikum. Starfsmenn Búinn var til listi með 8 spurningum sem starfs- menn voru beðnir um að svara um viðhorf sín til gáta, auk þess að gefa upp aldur og kyn. Sex spurninganna voru opnar en tvær lokaðar. Opnar spurningar: 1. Hvernig finnst þér þú geta hjálpað sjúklingi á yfirsetu? 2. Hvernig finnst þér þú geta hjálpað sjúklingi á sjálfsvígsgát? 3. Hvemig finnst þér þú geta hjálpað sjúklingi á 5-15 mínútna gát? 4. Hvað er erfitt við að vera með sjúkling á sjálfs- vígsgát? 5. Hvað er erfitt við að vera með sjúkling í yfirsetu? 6. Hvað er erfitt við að vera með sjúkling á 5-15 mínútna gát? Svör starfsmanna við opnu spurningunum voru flokkuð af rannsakendum í sitt hvoru lagi og flokkunin samræmd eins og hún birtist í töflum II og IV. Lokaðar spurningar, sem svarað var á kvarð- anum aldrei, stundum, oft, alltaf, ég veit það ekki: 7. Finnst þér að sjúklingar viti af hverju þeir eru settir á gát? 8. Finnst þér að sjúklingar viti af hverju gát á þeim var aflétt? Framkvæmd Tveir rannsakenda fóru daglega á bráðadeildirnar fjórar til að skrá þá sem settir voru á gát og til að taka viðtöl við þá sem gát hafði verið aflétt af og voru færir um að svara. Þegar gát var aflétt var rannsóknin útskýrð fyrir sjúklingi, bæði munn- lega og skriflega, og hann beðinn um upplýst samþykki fyrir þátttöku. í framhaldi af því var hann/hún beðin(n) um að svara spurningum rannsóknarmanna sem tók um það bil 15 mínútur. Þrátt fyrir þetta fyrirkomulag náðist aðeins til tæp- lega helmings þeirra sjúklinga sem settir voru á gát, hinir höfðu verið útskrifaðir eða fluttir á aðrar deildir á sjúkrahúsinu. Þá höfðu nokkrir sjúkling- anna útskrifað sig sjálfir gegn læknisráði. Spurningalistarnir og staðlaða viðtalið voru nafnlaus og því öll rannsóknargögnin ópersónu- greinanleg. Rannsakendur voru ekki starfsmenn deildanna fjögurra og höfðu því engin afskipti af meðferð sjúklinganna. Þótt ekki væri fullt samræmi í heitum gáta á deildunum fjórum þar sem rannsóknin fór fram virtist framkvæmd þeirra vera með sama hætti á þeim öllum. Framkvæmdastjóri lækninga og Siðanefnd Landspítala veittu leyfi til rannsóknarinnar. Niðurstöður Sjúklingar A rannsóknartímabilinu voru 157 sjúklingar settir á gát á deildunum fjórum, sem er 31% af öllum innlögðum sjúklingum á tímabilinu. Flestir (106; 68%) sjúklinganna voru settir á reglulega gát (5-15 mínútna gát), næst flestir (25;16%) á yfirsetu og 18 (11%) á fulla gát (sjálfsvígsgát). Tegund gátar var ekki skráð hjá 8 (5%) sjúklingum. Þrjátíu (19%) sjúklinganna voru settir á aðra gát eftir lok fyrstu gátar. Oftast var gát ákveðin af vakthafandi lækni (82; 59%) eða lækni sjúklings (37; 27%), 10 (7%) sinnum af hjúkrunarfræðingi og 5 (4%) sinnum af einhverjum öðrum starfsmanni. Oftast (43; 47%) var það læknir sjúklings sem ákvað lok gátar, vaktlæknir 6 (7%) sinnum, hjúkrunarfræðingur 5 (6%) sinnum og einhver annar starfsmaður 23 (25%) sinnum. í 14 (15%) tilvikum lágu ekki fyrir upplýsingar um hver aflétti gát. Meðallengd gáta var 5,7 (sf=14,l), dagar en lengsta gátin stóð yfir í 142 daga. Yfirsetur stóðu langlengst yfir eða í 12,3 daga (sf=17,3; spönn 1- 61) að meðaltali, regluleg gát að meðaltali 4,7 daga (sf=14,l; spönn 0-142) og full gát skemst eða að meðaltali 2,4 daga (sf=2,2; spönn 0-7). Tæplega þrír fjórðu hlutar sjúklinganna (105; 73%) höfðu legið áður (einu sinni eða oftar) á geðdeild en 38 (27%) voru í fyrstu innlögn. Langflestir sjúklinganna (131; 87%) voru settir á gát í fyrstu viku innlagnar, 92 (61%) strax við inn- LÆKNAblaðið 2007/93 835
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.