Læknablaðið - 15.12.2007, Blaðsíða 47
UMRÆÐUR O G
ÍSLENSKUR F O
F R É T T I R
R M A Ð U R
"Kanta" ómenntaðar konur
(sjálfar umskornar) sem
framkvæma limlestingar á
kynfærum á stúlkubarna.
Konumar eru málaðar
hvítar og eru með hvítt höf-
uðfat við verknaðinn.
Börnin eru einnig máluð
hvít áður en þau eru limlest.
Verknaðurinn erframinn
á leynistöðum inn í skógi.
Bæði börnum ogforeldrum
er hótað með ógæfu alla ævi
efþau þegi ekki um atburð-
inn. Hár trumbusláttur og
söngur meðan á verknaði
stendur er m.a. til að
yfirgnæfa sársauka- og skelf-
ingaróp fórnarlambanna.
sjálft landið og fólkið. Fátæktin er það sem sting-
ur hvað mest í augun í þessu fallega landi með
hitabeltisveðráttu og yndislegum gróðri. Þarna
virðist manni sem hægt sé að lifa góðu lífi af
því sem landið gefur af sér og ýmsir verðmætir
málmar eru í jörð en þarna er misskipting auðsins
gríðarleg og spilling landlæg. Fólkið er elskulegt
og friðsamlegt og Gana er að sögn eitt öruggasta
landið að heimsækja í Afrfku og þrátt fyrir allt er
það einnig eitt af þróuðustu lýðræðisríkjum álf-
unnar. En það þarf mikið að breytast í opinberum
innviðum þess ef kjör fólksins eiga að batna."
Ólöf segir á að á þinginu hafi umræða um um-
skurð stúlkubarna í Afríku verið það sem hafði
mest áhrif á hana og fulltrúana frá Vesturlöndum.
„Það er reyndar rangt að kalla þetta umskurð
á íslensku því það segir alls ekki hvað þetta er
hræðilegur verknaður, enda er þetta kallað female
genital mutilation á ensku og ætti því með réttu
Margrét Árnadóttir, Ólöf Sigurðardóttir og Helga Hannesdóttir á allieimsþingi í Gana í júlí
að kallast limlestingar á kynfærum kvenna. Það
kom fram að fylgikvillar þessa eru fjölmargir og
mjög alvarlegir eins og gefur að skilja. Yfirleitt er
þetta framkvæmt við mjög frumstæðar aðstæður,
engar deyfingar og haldið er fyrir vit stúlknanna
meðan þetta er framkvæmt. Afleiðingarnar eru
oft á tíðum skelfilegar, örvefur og samgróningar
myndast og geta valdið því síðar að börn þess-
ara kvenna verða fyrir súrefnsskorti í fæðingu
með oft á tíðum mjög alvarlegum afleiðingum.
Kynlífsánægja kvennanna verður lítil sem engin
enda er það tilgangur aðgerðarinnar að miklu
leyti.
A þinginu var sýnd heimildarkvikmyndin,
The Secret Pain, sem Danir gerðu á síðasta ári í
samstarfi við konu frá Afríkuríkinu Sierra Leone.
Þar er sögð saga hennar þegar hún var tekin í
fóstur barnung af dönskum foreldrum en líffræði-
legur faðir hennar fékk forræði yfir henni sextán
ára. Hann tók hana með sér til Sierra Leone og
lét umskera hana. Þetta er hræðileg saga og fékk
mjög á mann að horfa á myndina."
Myndin hefur vakið mikla athygli og hlaut
m.a. verðlaun Amnesty International Sjá www.
thesecretpain.com
A þinginu var samþykkt að veita konum í
læknanámi aukaaðild að samtökunum og segir
Ólöf það mjög ánægjulegt að þetta skref hafi
verið stigið. „Það skiptir máli að fá konur fljótt
inn í samtökin og gera þær virkar um leið og þær
hefja starfsferil sinn sem læknar. Þannig eflast
samtökin og geta haft meiri áhrif til góðra verka
og vakið umræðu um margt sem betur má fara
í heilsugæslu og heilbrigðisþjónustu kvenna og
barna."
LÆKNAblaðið 2007/93 859