Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.2007, Page 31

Læknablaðið - 15.12.2007, Page 31
______FRÆÐIGREINA HJARTAENDURHÆFIN Tafla II. Samanburöur á algengi þunglyndis/ kvíöa meöal karla og kvenna viö komu. Karlar Konur Samtals N=151 % N=49 % N=200 % p-gildi Saga um þunglyndi 29 19,2% 10 20,4% 39 19,5% 0,85 Saga um kvíða 17 11,3% 6 12,2% 23 11,5% 0,85 Þunglyndi, klínísk greining 24 15,9% 13 26,5% 37 18,5% 0,15 Kvíði, klínísk greining 40 26,5% 16 32,7% 56 28,0% 0,51 Þunglyndi HAD >11 15 9,9% 4 8,2% 19 9,5% 0,93 Kvíði HAD >11 15 9,9% 7 14,3% 22 11,0% 0,56 eða meira bendir til þunglyndis/kvíða. Læknir og hjúkrunarfræðingur báru síðan saman bækur sínar og skráðu niður sameiginlegt álit. Ef aðilar voru ekki sammála var skráð niðurstaða þess sem hærra gaf. Skráð var hvort sjúklingurinn hafi áður verið greindur með þunglyndi eða kvíðasjúkdóm. Síðan var HAD spurningalisti þunglyndis og kvíða lagður fyrir sjúklinginn og aftur í lok dvalar. Ekki var breytt viðbrögðum varðandi meðferð frá því sem tíðkaðist fyrir rannsóknina þó sjúkling- urinn greindist þunglyndur og/eða kvíðinn. Fyrir útskrift var síðan skráð öll ný geðmeðferð í dvöl- inni. Tölfræði Gildi eru birt sem meðaltöl með einu staðalfráviki (standard deviation, SD). Samanburður á hópum var gerður með kí-kvaðrat prófum en sam- anburður á þunglyndi og kvíða samkvæmt HAD kvarða sem samfelldri breytu, var gerður með Wilcoxon matched-pairs signed-ranks test, þar sem niðurstöður voru ekki normaldreifðar. Til að kanna fylgni þunglyndis og kvíða samkv HAD og aldurs var notað Spearman rank correlation. Tölfræðiforrit var GraphPad InStat version 3,05. Niðurstöður Af 200 þátttakendum voru 151 karl og 49 konur. Meðalaldur karlanna var 61,7 (SD 10,8) ár en kvennanna 62,7 (SD 10,1) ár. Flestir komu í kjölfar kransæðaaðgerða eða annarra áfalla eða einkenna kransæðasjúkdóms en nokkur hluti einnig vegna annarra hjartasjúkdóma (tafla I). Fyrri sögu um þunglyndi höfðu 39 manns og 23 höfðu áður greinst með kvíðavandamál. í komu- viðtölum greindust 37 þunglyndir (18,5 %), en 19 (9,5 %) samkvæmt niðurstöðum HAD kvarða. Á samsvarandi hátt voru 56 greindir klínískt með kvíða (28,0%) en 22 (11%) voru með kvíða sam- kvæmt HAD. Enginn marktækur munur var á tíðni þunglyndis eða kvíða milli karla og kvenna, hvort sem litið var til fyrri sögu, klínískrar grein- ingar eða svörunar á HAD kvarða (tafla II). Ekki var marktækt samband milli aldurs og þunglyndis á HAD, Spearman r =0,0012, p=0,986, en hins vegar reyndist allsterk neikvæð fylgni milli aldurs og kvíða á HAD, r = -0,22, p=0,0014, það er meiri kvíði hjá þeim yngri. Fremur lítil skörun reyndist vera milli þeirra sem höfðu fyrri sögu um þunglyndi og kvíða og jákvæðrar greiningar samkvæmt HAD prófi við komu (mynd 1). Þannig má ætla að talsvert af þeim einkennum sem voru til staðar við komu hafi verið nýtilkomin og ekki greind áður. Af þessum 200 sjúklingum sóttu 87 námskeið um jafnvægi í daglegu lífi. Til viðbótar hefðbund- inni hjartaendurhæfingu var einnig veitt sérhæfð meðferð við geðrænum einkennum eftir þörfum. Níu manns fóru aukalega í viðtöl hjá geðlækni og þrír hjá sálfræðingi, 14 fengu þunglyndislyf, 18 kvíðalyf og fimm fóru í hugræna atferlismeðferð. Til að reyna að meta breytingu á geðrænum ein- kennum á meðferðartímanum voru bornar saman niðurstöður á HAD prófunum bæði við komu og við brottför. Horft var til breytinga á fjölda þeirra sem voru yfir greiningarmörkum í hvort skipti og eins var gerður samanburður á tölulegum nið- urstöðum kvarðanna sem samfelldri breytu. Algengi þunglyndis og kvíða reyndist mun lægri við lok hjartaendurhæfingar en við komu, þannig hafði algengi þunglyndis lækkað úr 9,5 % í 3% eða um 72% og algengi kvíða á sama hátt lækkað úr 11,0% í 2,5 % eða 77% (tafla III). Þegar niðurstöður HAD prófsins voru metnar sem samfelld breyta, lækkaði meðaltalið á með- ferðartímanum fyrir þunglyndi úr 4,79 í 3,61, (parað Wilcoxon próf p<0,0001) og meðaltal HAD fyrir kvíða lækkaði á samsvarandi hátt úr 4,66 í 3,30 (p<0,0001). Mikil fylgni var milli þunglyndis og kvíða, 11 Tafla III. Algengi þunglyndis og kvíða, mælt með HAD kvarða, við upphaf og lok hjartaendurhæfingar á Reykjalundi. Þunglyndi Kvíði Koma Brottför Koma Brottför Jð 19 9,5% 6 3,0% 22 11,0% 5 2,5% Mögulega 27 13,5% 12 6,0% 26 13,0% 16 8,0% Nei 154 77,0% 182 91,0% 152 76,0% 179 89,5% LÆKNAblaðið 2007/93 843

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.