Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.12.2007, Qupperneq 43

Læknablaðið - 15.12.2007, Qupperneq 43
R E UMRÆÐUR O G FRÉTTIR YNSLUSAGA HEIMILISLÆKNIS læknastofur og voru þar aðstæður allt aðrar en ég hafði orðið vitni að á sjúkrahúsinu. Af bílaflot- anum fyrir utan varð mér ljóst hverjir hefðu aðgang að þessari þjónustu. Þarna var ég meðal annars viðstaddur fæðingu sem fór fram við sómasamlegar aðstæður en um leið varð manni hugsað til þeirra fjölda mæðra sem ekki hafa að- gang að slíkri þjónustu því flestar konur fæða við frumstæðar aðstæður í heimahúsum án aðgangs að hreinu vatni. Mæðra- og ungbarnadauði er að sama skapi hár. Það er ekki tilviljun að börnin í Spes barnaþorpinu hans Njarðar í Lomé hafa mörg hver misst móður sína. I Tógó er engin skipulögð heilsugæsla og aðgengi efnalítils almennings að læknaþjónstu og lífsnauðsynlegum lyfjum er nánast ekkert. Fólkið leitar í andatrúna og sá ég merki þess á 5 ára dreng sem hafði greinilega verið illt í maganum, en hann var alsettur öramunstri á kviðnum. Gerð hafði verið tilraun til að hrekja illa anda út úr iðrum drengsins með því að skera með hnífi stri- kamunstur í kviðhúðina. Maður getur rétt ímynd- að sér þjáningar barna sem fá ekki einfalda með- ferð við amöbu- og ormasýkingum í þörmum. Algengasta dánarorsök barnanna er niðurgangur og ofþornun. I fylgd með túlkinum fór ég í nokkrar vitjanir í heimahús. Ég heimsótti fjölskyldu, hjón með 2 börn (2ja ára og 4ra ára) sem bjó í 10 fermetra her- bergi, veggir voru steyptir en þakið úr einföldu bárujárni sem leiðir mjög vel hitann frá brennandi sólinni svo að innandyra var kæfandi hiti. Öll sváfu þau í sama rúminu en voru svo lánsöm að hafa net yfir rúminu til varnar moskítófiugunni. Malaría er skæð pest fyrir börn undir 5 ára aldri og má minnka dánartíðni barna vegna malaríu um allt að 40% ef notast er við slíkt net sem kost- ar kringum 10 dollara. Hægt er að gefa slíkt net ef farið er inn á slóðina www.malarianomore.com Það spurðist fljótt að kominn væri læknir í heimsókn í hverfið og fólk dreif hvaðanæva að. Kona kom með hita, þrem vikum eftir barnsburð, hún kvartaði um slappleika og svitinn bogaði af henni, hún var trúlega með þvagfærasýkingu og ég bjó svo vel að eiga nokkur amoxicillin hylki í töskunni. Börnin kvörtuðu aðallega um maga- pínu og miðaldra kona kom með kvartanir sem samrýmdust við skoðun sykursýki og háþrýst- ingi. í nálægu apóteki fann ég ódýrustu lyfjameð- ferðina við háþrýstingi sem kostar nálægt hálfum mánaðarlaunum sjúklingsins. Ríkum löndum ber skylda til að efla heil- brigðisþjónustu í fátækum löndum eins og Tógó. Fátækt verður ekki útrýmt nema heilbrigðisþjón- usta mjög fátækra landa sé stórbætt, sem er ein af undirstöðum þess að efnahagsframfarir geti átt sér stað. Meðalaldur er rétt um fimmtíu ár og dánartíðni ungs fólks á vinnufærum aldri hefur lamandi áhrif á þróun efnahags þó Tógóbúar séu ennþá það lánsamir að geta brauðfætt sig og búi ekki við hungur. í þessu sambandi er rétt að minna á háleit þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna (The Millennium Development Goals) sem miða að því að útrýma mikilli fátækt og að draga úr ungbarna- og mæðradauða auk þess að hefta útbreiðslu HIV og malaríu með markvissum aðgerðum til ársins 2015. Þar er sérstaklega kveðið á um samábyrgð allra jarðarbúa við að ná fram þessum markmiðum. í sárri fátækt þrífst öfgakennd hugmyndafræði sem ógnar öryggari allra jarðarbúa, jafnt ríkra sem fátækra. Fjármagn til hernaðarumsvifa gerir heiminn ekki öruggari, þvert á móti væri þeim fjármunum betur varið til þróunaraðstoðar. Óskandi væri að íslendingar létu ekki sitt eftir liggja í þeim efnum. Vitjun í úthverfi Lomé. Ljósmynd: Madjid Agbamba. LÆKNAblaðið 2007/93 855
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.