Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2007, Síða 67

Læknablaðið - 15.12.2007, Síða 67
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR MINNINGARORÐ Minning um Sigurð Þ. Guðmundsson, lækni Nýlega var kvaddur hinstu kveðju Sigurður Þ. Guðmundsson læknir sem var einn af máttarstólp- um meðal lyflækna á íslandi í áratugi. Sigurður er okkur félögum hans og samferðamönnum ógleymanlegur fyrir margra hluta sakir. Hann setti mikinn svip á starfsemi Landspítalans og Félags íslenskra lyflækna um langt árabil, brúaði kyn- slóðabil í kennslu og tilsögn læknanema og ungra lækna og reyndist sjúklingum framúrskarandi fagmaður. Hann naut sín sérstaklega í umfjöllun um flókin úrlausnarefni í greiningu en var einnig fær og úrræðagóður í meðferð. Sigurður hafði góða söngrödd og söng tenór f Karlakór Reykjavíkur. Þá var hann fastagestur á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands þar sem við hittumst oft. Kynni mín af Sigurði voru þó fyrst og fremst í kringum golfið en þegar ég fór að reyna fyrir mér í þeirri íþrótt var hann búinn að spila í áratugi og ferðast víða með golfkylf- urnar. Honum fór ágætlega að segja til í golfinu þótt það sé oft vandmeðfarið. Mér er sérstaklega eftirminnileg golfferð lækna til North Berwick í Skotlandi vorið 1996 en þar voru þeir Sigurður og Jón Þorgeir herbergisfélagar og manna reynd- astir og skemmtilegastir þótt þeir væru komnir vel á sjötugsaldur. Þar var venjan að spila uppá bjór eða jafnvel gin og tónik ef mönnum þóttu sig- urlíkur góðar. Sigurður gaf mér ágætis heilræði til að hægja á sveiflunni en það fólst í því að syngja í huganum lagið Dóná svo blá til þess að fá réttan rytma í hlutina. Myndin sem fylgir með þessu greinarkorni er tekin á veröndinni við golfskálann á Seltjarnarnesi eftir verðlaunaafhendingu í læknamóti 22. ágúst 2003. Þar sést Sigurður glaður og hress að vanda í því fagra umhverfi sem hann kunni svo vel að meta. Þannig vil ég minnast Sigurðar míns merka samferðamanns og vinar. Steinn Jónsson Kveðja frá Félagi íslenskra lyflækna Sigurður Þorkell Guðmundsson læknir lést 31. október síðastliðinn, 77 ára að aldri. Sigurður útskrifaðist frá læknadeild Háskóla íslands árið 1957 og stundaði síðan framhaldsnám í lyflækn- ingum og innkirtla- og efnaskiptasjúkdómum og í Bandaríkjunum. Að því loknu starfaði hann á Landspítalanum allt þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Einnig starfrækti hann eigin lækningastofu. Sigurður var mjög farsæll læknir og var dáður af sjúklingum sínum enda sinnti hann þeim afar vel. Þá var hann góður kennari og smitaði gjarnan læknanema og unga lækna með áhuga sínum. Þrátt var erilsaman og langan vinnudag var Sigurður jafnan glaðsinna og því var gott að njóta nærveru hans. Hann hafði þannig jákvæð áhrif á starfsandann á Landspítalanum. Sigurður var alla tíð mjög atorkusamur því auk krefjandi læknisstarfs tók hann ríkan þátt í félags- störfum og átti sér auk þess ýmis áhugamál sem hann sinnti af ástríðu. Þá gegndi hann fjölmörgum trúnaðarstörfum í þágu lækna og var meðal ann- ars formaður Félags íslenskra lyflækna 1965-68. Hann var frumkvöðull að vísindaþingum félags- ins sem hafa verið haldin reglulega frá árinu 1973. Sigurður var öðrum lyflæknum góð fyrirmynd enda stundaði hann heildræna nálgun við meðferð og umönnun sjúklinga. Honum var vottuð virðing fyrir störf sín er hann var útnefndur heiðursfélagi í Félagi íslenskra lyflækna árið 1998. Tónlist skipaði stóran sess í lífi Sigurðar en var hann var fyrirtaks söngmaður og söng með Karlakór Reykjavíkur um árabil. Enn fremur var hann mjög liðtækur golfleikari. Ég vil fyrir hönd Félags íslenskra lyflækna þakka Sigurði fyrir störf hans í þágu lyflækninga á Islandi og votta aðstandendum hans samúð. Runólfur Pálsson, formaður Pélags íslenskra lyflækna Á myndinni erufrá vinstri: Steinn Jónsson, Þórarinn Arnórsson, Ólafur Á. Sveinsson, Sigurður Þ. Guðmundsson og Emil Sigurðsson. LÆKNAblaðið 2007/93 879
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.