Læknablaðið - 15.11.2008, Blaðsíða 13
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKNIR
Mynd 2. Staðsetning bæja
par sem A. sirofannst við
sjóinn (innfelld mynd).
Maurum fækkaði með
aukinnifjarlægðfrá sjó.
Reykjavík eru líka sýndar (6). Um var að ræða
197 heimili sem voru valin af handahófi úr
rannsókninni Lungu og heilsa. Einnig eru sýndar
niðurstöður húðprófa úr rannsókn okkar og
húðprófanir frá Reykjavík árin 1991-92 (5) og
úr sveitum frá 1983 (15). í þéttbýli í Reykjavík
1991-92 var fjöldi húðprófa 537 og efniviðurinn
slembiúrtak þar sem flestir voru einkennalausir
(5). í rannsókn sem gerð var í dreifbýli árið 1983
var fjöldi þátttakenda 103 og voru þeir á aldrinum
6-50 ára og eingöngu prófaðir þeir sem fengu
einkenni frá augum og öndunarfærum í heyryki
(15). Meðalfjöldi D. pteronyssinus var 4,9 (0-77,1),
af Acarus siro (A.siro) 3,6 (0-56,7), og af Tarsonemus
sp. 0,9 (0-33), en aðrar tegundir komu sjaldnar fyrir
en 0,5 maurar m2. Þegar borin voru saman sýni frá
svefnherbergjum (rúmdýnum) og af stofugólfum
var ekki munur á fjölda maura, fjölda tegunda
né rykmagns í sýnunum. Sjaldgæfari tegundir
maura fundust aðeins á einu býli hver þeirra:
Psoroptes sp., Acarus gracilis, Cheyletus eruditus,
Steneotarsonemus sp., Tetranychus sp. (einnig þekkt
í húsaryki í Reykjavík (6)) og Tydeus interruptus.
Einn rykmaur af tegundinni Euroglyphus maynei
fannst einnig.
Húðpróf voru jákvæð fyrir D.farinae hjá einum,
tvö voru jákvæð fyrir D. pteronyssinus og firnm
próf voru jákvæð fyrir L. destructor.
Mynd 1 sýnir dreifingu þriggja rykmaura (D.
farinae, D. pteronyssinus og Euroglyphus maynei).
A. siro virðist oftar vera á bóndabæjum sem eru
við sjávarsíðuna en á þeim bæjum í innsveitum
sem rannsakaðir voru. Tengsl A. siro við sjóinn
eru sýnd frekar á mynd 2. Hún sýnir að þeim
fækkar með aukinni fjarlægð (x = km) til sjávar.
Hallalínan var (fjöldi maura/ m2) = -0,70x + 17,37;
r2 = 0,1211.
Umræða
Maurar fundust á 62% bóndabýlanna. Þetta
er í fyrsta sinn sem lýst er meira en fáeinum
Tafla II. Fjöldi maura og jákvæð húðpróf. Samanburður er gerður við fyrri rannsókn
á maurum í Reykjavík þar sem eingöngu voru rannsökuð svefnherbergi (skátetrað).
Samanburður ergerður við tvær fyrri rannsóknir á húðprófum (skáletrað).
Maurar Húöpróf
Uppruni Dreifbýli Bóndabæir 2005 A B Þéttbýli Reykjavík61 2001, N=194* Dreifbýli Bóndabæir 2005, N=42 Þéttbýli Reykjavík6' 1991, N=537** Dreifbýii 1983151 N=103***
Acarus siro 8 9 0 14
D. farinae 1 1 0 1 14
D. pteronyssinus 7 5 2 2 33 10
G. domesticus 0 2 0 -
L. destructor 1 2 0 5 17 39
Tarsonemus sp. 0 2 0 .
Bryobia cristata 0 2 0 -
Tyrophagus similis 1 1 0 18****
Aörir maurar 7 9 11
A: svefnherbergi, B: stofa.
*Tilviljunarúrtak 197 heimila og var eingöngu svefnherbergi rannsakaó.
**Tilviljunarúrtak 537 einstaklinga á aldrinum 21-44.
***Úrtak 103 einstaklinga meó einkenni frá augum og öndunarfasrum í heyryki.
****Prófaö fyrir tegundinni Tyrophagus putrescentiae.
LÆKNAblaðið 2008/94 725 W