Læknablaðið - 15.11.2008, Blaðsíða 69
UMRÆÐUR 0 G
LYFJAFRAMLE
F R É T T I R
I Ð E N D U R
og þessar reglur eru mjög gott dæmi um að sam-
skiptin eru orðin það góð að ekki hafa komið upp
ágreiningsmál eða valdið neikvæðri umræðu und-
anfarin misseri."
Um hvað sm'iast þessar siðareglur?
„Þær snúast í grunninn um hvað teljast verður
eðlilegt í samskiptum lækna og lyfjafyrirtækja;
hversu langt er eðlilegt að lyfjafyrirtæki gangi
í að kosta lækna á ráðstefnur og fundi og hvað
telst við hæfi og hvað ekki. í dag greiðir lyfjafyr-
irtæki gjarnan ferða- og gistikostnað fyrir lækni
á alþjóðlega ráðstefnu í hans sérfagi en greiðslur
fyrir maka eru óviðeigandi. Það sem skiptir máli
er að lyfjafyrirtækin vilja stuðla að því að læknar
hafi tækifæri til að fylgjast með því nýjasta í sínum
greinum og fyrir nokkrum misserum vogaði ég
mér að kalla þetta stuðning við endurmenntun
lækna. Ritstjóri Morgunblaðsins taldi óeðlilegt að
lyfjafyrirtækin væru að styðja við endurmenntun
lækna. Siðareglurnar tiltaka mjög nákvæmlega
hvemig þessi stuðningur má vera og í hverju hann
er fólginn. Það er ekkert óeðlilegt við þetta."
Samskipti lyfjafyrirtækja og lækna er ekki
eingöngu fólgin í þessu. Lyfjakynningar hafa haft
orð á sér fyrir að vera glæsiveislur þar sem lyfin
eru nánast í aukahlutverki.
„Það er auðvitað mjög mikilvægt fyrir lyfja-
fyrirtækin að hafa góðan aðgang að starfsfólki
heilbrigðiskerfisins til að kynna það nýjasta og
besta í lyfjarannsóknum og framleiðslu. Um þetta
þarf hins vegar að vera viðurkennd og samþykkt
umgjörð og það hefur vissulega verið gagnrýnt og
haft í flimtingum að glæsiveislur lyfjafyrirtækj-
anna séu notaðar sem yfirvarp fyrir lyfjakynn-
ingar. Þetta er bara hluti af þessari fortíð sem
við nefndum áðan. Grundvallarreglan er sú að
vísindalegt innihald viðburðar og dagskrá má
aldrei vera ofurliði borin, ef svo má segja, af um-
gjörðinni. Á grunni siðareglnanna er ekki blandað
saman óviðeigandi íburði í veitingum og staðsetn-
ingum við kynningar á lyfjum. Rauði þráðurinn í
þessu er heilbrigð skynsemi og hvað telst viðeig-
andi og hvað ekki."
Mikilvægt er að koma því skýrt til skila að
Frumtök eiga engan beinan þátt í sölu lyfja eða
kynningum á þeim. Siðareglurnar snúast hins
vegar um að allir aðilar fari eftir þeim þannig að
öllum sé ljóst hvernig að slíku skuli staðið. Jakob
Falur nefnir Læknadaga sem gott dæmi um hvem-
ig þessi mál hafa þróast. „Læknadagamir eru ein
stærsta ráðstefna sinnar tegundar á íslandi og þar
er alveg skýrt hvað fyrirtækin mega gefa læknum
og hvað ekki. Reglurnar kveða á um að allar gjafir
verði að nýtast lækninum í starfi hans en ekki
snúast um hugsanleg áhugamál eða hégóma. Það
hefur margt breyst í þessum samskiptum á stutt-
um tíma og það er vel."
Ranghugmynd að lyfjaverð sé hátt
Jakob segir að samskipti Frumtaka við stjórnvöld
snúist eilíflega um það sama. „Við þurfum sífellt
að vera að hamra á því að hér ríki skilningur á
því að til að stöðugt og gott framboð sé á góðum
lyfjum þarf umhverfið að vera lyfjafyrirtækjunum
hagstætt. Lyfjaverðið þarf að vera sanngjarnt og
það er reyndar ein lífseigasta ranghugmyndin
hjá almenningi sem stjórnvöld virðast hafa alið á
að hér á Islandi sé lyfjaverð gríðarlega hátt. Það
er einfaldlega rangt. Staðreyndin er sú að hér er
heildsöluverð lyfja ýmist lægra eða jafnhátt og í
löndunum í kringum okkur. Það er stórundarlegt
að ekki skuli hafa tekist að koma þeirri staðreynd
á framfæri við almenning. Ef við skoðum þróun
lyfjaverðs og kostnað hins opinbera frá árinu 1998
til ársins 2007, á föstu verðlagi ársins 2007, kemur í
ljós að krónutalan hefur ekkert hækkað sem þýðir
að lyfjaverð hefur lækkað umtalsvert þar sem
lyfjanotkun hefur aukist verulega á þessu tímabili.
Á sama tímabili hafa heildarútgjöld til heilbrigð-
ismála vaxið gríðarlega. Hlutfall lyfjakostnaðar
hefur því lækkað umtalsvert. Stjórnvöld hafa alltaf
þrýst á lyfjafyrirtækin um lægra heildsöluverð og
það eru hreinlega takmörk fyrir því hvað fyrirtæk-
in geta gengið langt í þessum efnum því mark-
aðurinn hér er mjög lítill og satt best að segja er
eftir sífellt minna að slægjast fyrir lyfjafyrirtækin.
Það kæmi mér satt að segja ekki á óvart ef ein-
hver þeirra fyrirtækja sem eru nú innan Frumtaka
myndu draga sig út af íslenska lyfjamarkaðnum á
næstu mánuðum eða misserum."
I starfi sínu hefur Jakob Falur átt fundi með
stjórnvöldum og starfsfólki í heilbrigðiskerfinu og
segir að meginhlutverk sitt sé að koma á sterkum
og góðum samskiptum milli umbjóðenda sinna
og allra þeirra sem starfa að heilbrigðismálum.
„Við höfum gengið lengra og valið að sýna sam-
félagslega ábyrgð okkar með því að taka þátt í for-
varnaverkefnum ýmiss konar. Við erum núna að
undirbúa verkefni með Reykjalundi og nokkrum
læknum á Landspítala sem beinist að offituvanda
bama. Þetta er mjög mikilvægt í okkar huga.
Við viljum leggja okkar af mörkum til að stuðla
að auknu heilbrigði þjóðarinnar og góð lyf em í
mörgum tilfellum lykillinn að bættu heilbrigði,
aukinni atvinnuþátttöku og lengri starfsævi og líf-
aldri þjóðarinnar. í þeim skilningi eru allir sem að
koma að vinna að sameiginlegu markmiði."
*
LÆKNAblaðið 2008/94 781