Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.11.2008, Qupperneq 69

Læknablaðið - 15.11.2008, Qupperneq 69
 UMRÆÐUR 0 G LYFJAFRAMLE F R É T T I R I Ð E N D U R og þessar reglur eru mjög gott dæmi um að sam- skiptin eru orðin það góð að ekki hafa komið upp ágreiningsmál eða valdið neikvæðri umræðu und- anfarin misseri." Um hvað sm'iast þessar siðareglur? „Þær snúast í grunninn um hvað teljast verður eðlilegt í samskiptum lækna og lyfjafyrirtækja; hversu langt er eðlilegt að lyfjafyrirtæki gangi í að kosta lækna á ráðstefnur og fundi og hvað telst við hæfi og hvað ekki. í dag greiðir lyfjafyr- irtæki gjarnan ferða- og gistikostnað fyrir lækni á alþjóðlega ráðstefnu í hans sérfagi en greiðslur fyrir maka eru óviðeigandi. Það sem skiptir máli er að lyfjafyrirtækin vilja stuðla að því að læknar hafi tækifæri til að fylgjast með því nýjasta í sínum greinum og fyrir nokkrum misserum vogaði ég mér að kalla þetta stuðning við endurmenntun lækna. Ritstjóri Morgunblaðsins taldi óeðlilegt að lyfjafyrirtækin væru að styðja við endurmenntun lækna. Siðareglurnar tiltaka mjög nákvæmlega hvemig þessi stuðningur má vera og í hverju hann er fólginn. Það er ekkert óeðlilegt við þetta." Samskipti lyfjafyrirtækja og lækna er ekki eingöngu fólgin í þessu. Lyfjakynningar hafa haft orð á sér fyrir að vera glæsiveislur þar sem lyfin eru nánast í aukahlutverki. „Það er auðvitað mjög mikilvægt fyrir lyfja- fyrirtækin að hafa góðan aðgang að starfsfólki heilbrigðiskerfisins til að kynna það nýjasta og besta í lyfjarannsóknum og framleiðslu. Um þetta þarf hins vegar að vera viðurkennd og samþykkt umgjörð og það hefur vissulega verið gagnrýnt og haft í flimtingum að glæsiveislur lyfjafyrirtækj- anna séu notaðar sem yfirvarp fyrir lyfjakynn- ingar. Þetta er bara hluti af þessari fortíð sem við nefndum áðan. Grundvallarreglan er sú að vísindalegt innihald viðburðar og dagskrá má aldrei vera ofurliði borin, ef svo má segja, af um- gjörðinni. Á grunni siðareglnanna er ekki blandað saman óviðeigandi íburði í veitingum og staðsetn- ingum við kynningar á lyfjum. Rauði þráðurinn í þessu er heilbrigð skynsemi og hvað telst viðeig- andi og hvað ekki." Mikilvægt er að koma því skýrt til skila að Frumtök eiga engan beinan þátt í sölu lyfja eða kynningum á þeim. Siðareglurnar snúast hins vegar um að allir aðilar fari eftir þeim þannig að öllum sé ljóst hvernig að slíku skuli staðið. Jakob Falur nefnir Læknadaga sem gott dæmi um hvem- ig þessi mál hafa þróast. „Læknadagamir eru ein stærsta ráðstefna sinnar tegundar á íslandi og þar er alveg skýrt hvað fyrirtækin mega gefa læknum og hvað ekki. Reglurnar kveða á um að allar gjafir verði að nýtast lækninum í starfi hans en ekki snúast um hugsanleg áhugamál eða hégóma. Það hefur margt breyst í þessum samskiptum á stutt- um tíma og það er vel." Ranghugmynd að lyfjaverð sé hátt Jakob segir að samskipti Frumtaka við stjórnvöld snúist eilíflega um það sama. „Við þurfum sífellt að vera að hamra á því að hér ríki skilningur á því að til að stöðugt og gott framboð sé á góðum lyfjum þarf umhverfið að vera lyfjafyrirtækjunum hagstætt. Lyfjaverðið þarf að vera sanngjarnt og það er reyndar ein lífseigasta ranghugmyndin hjá almenningi sem stjórnvöld virðast hafa alið á að hér á Islandi sé lyfjaverð gríðarlega hátt. Það er einfaldlega rangt. Staðreyndin er sú að hér er heildsöluverð lyfja ýmist lægra eða jafnhátt og í löndunum í kringum okkur. Það er stórundarlegt að ekki skuli hafa tekist að koma þeirri staðreynd á framfæri við almenning. Ef við skoðum þróun lyfjaverðs og kostnað hins opinbera frá árinu 1998 til ársins 2007, á föstu verðlagi ársins 2007, kemur í ljós að krónutalan hefur ekkert hækkað sem þýðir að lyfjaverð hefur lækkað umtalsvert þar sem lyfjanotkun hefur aukist verulega á þessu tímabili. Á sama tímabili hafa heildarútgjöld til heilbrigð- ismála vaxið gríðarlega. Hlutfall lyfjakostnaðar hefur því lækkað umtalsvert. Stjórnvöld hafa alltaf þrýst á lyfjafyrirtækin um lægra heildsöluverð og það eru hreinlega takmörk fyrir því hvað fyrirtæk- in geta gengið langt í þessum efnum því mark- aðurinn hér er mjög lítill og satt best að segja er eftir sífellt minna að slægjast fyrir lyfjafyrirtækin. Það kæmi mér satt að segja ekki á óvart ef ein- hver þeirra fyrirtækja sem eru nú innan Frumtaka myndu draga sig út af íslenska lyfjamarkaðnum á næstu mánuðum eða misserum." I starfi sínu hefur Jakob Falur átt fundi með stjórnvöldum og starfsfólki í heilbrigðiskerfinu og segir að meginhlutverk sitt sé að koma á sterkum og góðum samskiptum milli umbjóðenda sinna og allra þeirra sem starfa að heilbrigðismálum. „Við höfum gengið lengra og valið að sýna sam- félagslega ábyrgð okkar með því að taka þátt í for- varnaverkefnum ýmiss konar. Við erum núna að undirbúa verkefni með Reykjalundi og nokkrum læknum á Landspítala sem beinist að offituvanda bama. Þetta er mjög mikilvægt í okkar huga. Við viljum leggja okkar af mörkum til að stuðla að auknu heilbrigði þjóðarinnar og góð lyf em í mörgum tilfellum lykillinn að bættu heilbrigði, aukinni atvinnuþátttöku og lengri starfsævi og líf- aldri þjóðarinnar. í þeim skilningi eru allir sem að koma að vinna að sameiginlegu markmiði." * LÆKNAblaðið 2008/94 781
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.