Læknablaðið - 15.11.2008, Blaðsíða 9
Haraldur Briem
hbriem@landlaeknir.is
Höfundur er sóttvarnalæknir hjá
landlæknisembættinu.
The Spanish flu in lceland
in 1918. Lessons learned
Haraldur Briem, M.D., PhD.
Chief Epidemiologist,
Director
Centre for Health Security
and Infectious Disease
Control
Directorate of Health
Austurstrond 5,170
Seltjarnarnes
lceland
RITSTJÓRNARGREINAR
Lærdómar dregnir
af spænsku veikinni 1918
í þessu tölublaði Læknablaðsins eru birtar tvær greinar
um spænsku veikina 1918. Byggjast þær á góðri úttekt
á samtímaheimildum. Margar af þessum heimildum
hafa íslensk yfirvöld haft til hhðsjónar við gerð við-
bragðsáætlunar gegn heimsfaraldi inflúensu (1).
Heimsfaraldrar inflúensu eru misskæðir en hafa
ávallt alvarlegri afleiðingar í för með sér en árlegir
inflúensufaraldrar vegna þess að ónæmi er ekki til
staðar hjá mönnum þegar nýr inflúensustofn berst um
heiminn. Um 40 ár eru liðin frá síðasta heimsfaraldri
og má því ætla að sá næsti sé yfirvofandi. Líklegt er
að spænska veikin hafi verið með skæðustu farsóttum
sem hafa gengið. Hiín stafaði af inflúensu HlNl sem
virðist hafa borist frá fuglum til manna.
í greinunum er lýst heimildmn um einkenni veik-
innar og hárri dánartíðni sem ekki eru að fullu skýrð.
Það er athyglisvert að einkennin í spænsku veikinni
eru hliðstæð þeim einkennum sem sjást hjá mönnum
sem sýkjast af fuglainflúensu H5N1 sem geisar í fugl-
um um þessar mundir víða um heim. Einkenni geta
stafað af beinum áhrifum veirusýkingarinnar á fjöl-
mörg líffæri (2). Þótt fylgikvillar af völdum baktería
hafi haft einhver áhrif á háa dánartíðni sjúkdómsins
eru bein áhrif veirusýkingarinnar þýðingarmest. Eins
og bent er á fór hraustasta fólkið verst út úr veikinni.
Þetta er mikilvægt að hafa í huga þegar áhættan er
metin og viðbrögð ákveðin.
Höfundar gera viðbrögð heilbrigðisyfirvalda 1918
að umfjöllunarefni. Augljóst er að landlæknir vissi
ekki um hið skæða eðli annarrar bylgju þessa heims-
faraldurs fyrr en farþegar komu með skipum til
landsins seinni hluta októbermánaðar þessa árs.
Fyrsta bylgjan, sem hófst í mars 1918, var tiltölulega
væg. Önnur bylgjan skall á í ágúst sama ár eins
og hendi væri veifað, nánast samtímis í Evrópu,
Norður-Ameríku og Afríku með tíföldun á dánartíðni
sjúkdómsins (3). Landlæknir benti réttilega á að það
hafi verið um seinan að koma í veg fyrir að farsóttin
breiddist út um landið eftir komu sýktu farþeganna
í október 1918. Það er þó einkennilegt að hann virðist
líkt og í afneitun skella skollaeyrum við þeim upp-
lýsingum sem farþegamir færðu landsmönnum um
þessa skæðu sótt eins og lesa má í greinaflokki land-
læknis í Morgunblaðinu frá þessum tíma. Landlækmr
leit svo á að þessi inflúensa væri ekki frábrugðin
öðrum inflúensufaröldrum sem gengu reglulega yfir
landið. Ekki var gripið til neinna sérstakra ráðstafana,
svo sem samkomubanns eða lokun skóla, í upphafi
farsóttarinnar og er hugsanlegt að það hafi verið litið
svo á að best væri að inflúensan gengi sem hraðast
yfir. Afleiðingamar urðu skelfilegar fyrir suðvest-
urhornið og sérstaklega Reykjavík.
Önnur hlið þessa máls er að það tókst með vegar-
tálmum og sóttvamaráðstöfunum í höfnum að koma
í veg fyrir að farsóttin bærist norður og austur á land.
Er hugsanlegt að hraður gangur spænsku veikinnar
á Suðvesturlandi, sem ekki tók nema átta vikur að
ganga yfir, hafi átt sinn þátt í að þessar sóttvarnaráð-
stafanir heppnuðust? Örlög spænsku veikinnar urðu
eins og annarra heimsfaraldra að missa afl og breytast
í árstíðabundna inflúensu þar til næsti heimsfaraldur
reið yfir tæpum 40 árum síðar.
í þeirri viðbragðsáætlun gegn heimsfaraldri inflú-
ensu sem fyrir liggur er gert ráð fyrir þeim möguleika
að landið allt eða hlutar þess verði sett í sóttkví.
Augljóslega eru aðstæður allt aðrar nú á dögum en
1918, ferðalög greiðari og skjótari svo erfiðara verður
um vik að beita slíkum sóttvamaráðstöfunum. Það er
þó nauðsynlegt að til séu áætlanir um slíkar ráðstaf-
anir ef aðstæður verða með þeim hætti að þeim mætti
beita með árangri.
Alþjóðasamfélagið (WHO) hefur innleitt alþjóða-
heilbrigðisreglugerð sem tók gildi árið 2007 (4). Þar
eru ítarleg ákvæði um að upplýsingar berist greiðlega
um allar heilsufarsógnir sem snerta þjóðir heims og
viðbrögð við sllkri vá. Vonandi þarf ísland ekki að
standa í sömu spomm með skort á upplýsingum sem
það gerði haustið 1918.
Það er við hæfi á þessum tímum að benda á að í
viðbragðsáætlun um skæðan heimsfaraldur inflúensu
er gert ráð fyrir því að hann muni hafa alvarleg
áhrif á fjármál og efnahag heimsins. Nú stöndum
við ekki frammi fyrir heimsfaraldri inflúensu heldur
alheimsfjármálakreppu. Á íslandi var unnin skýrsla
um efnahagsleg áhrif og hagvamarráðstafanir vegna
heimsfaraldurs inflúensu hér á landi árið 2006 (5). Var
sú vinna nýtt til að bregðast við efnahagslegu hörm-
ungunum sem steðja að landinu um þessar mundir?
Heimildir
1. Viðbragðsáætlun Almannavama. Heimsfaraldur inflúensu,
landáætlun. Sóttvarnalæknir, ríkislögreglustjórinn. www.
influensa.is
2. The Writing Committee of the World Health Organization
(WHO). Consultation on Human Influenza A/H5Avian
Influenza A (H5N1) Infection in Humans. N Engl J Med 2005;
353; 1374-85.
3. Potter CW. Chronicle of Influenza Pandemics. In; Nicholson
KG, Webster RG & Hay AJ (ed). Textbook on Influenza, pp.3-
18, Blackwell Science, London 1998.
4. Intemational Health Regulations (2005); www.who.int/csr/
ihr/WHA58-en.pdf
5. Mat á efnahagslegum áhrifum og hagvamarráðstafanir
vegna hugsanlegs heimsfaraldurs inflúensu, september
2006. www.forsaetisraduneyti.is/media/Skyrslur/Skyrsla_
starfshops_ny_utgafa.pdf
LÆKNAblaðið 2008/94 721