Læknablaðið - 15.11.2009, Side 3
Maður er manns gaman
Hér sést yfir stóra salinn hjá læknafélögunum í Hlíðasmára föstudaginn 16. október síðastliðinn, en
þá var settur á laggirnar „læknaklúbbur" í tilefni 100 ára afmælis Læknafélags Reykjavíkur. Óttar
Guðmundsson rakti þátttöku og ímynd lækna í samfélagi og menningu - og sýndi bæði kost og löst á
stéttinni í máli og myndum. Tryggvi Helgason brá upp ýmsum dæmum um hvað framtíðin getur borið
í skauti nú þegar tíminn líður æ hraðar. Eftir hlé stýrði Magni Jónsson hópnum niður í nokkrar einingar
og lét hverja um sig svara álitaefnum um læknisstarfið. í lokin voru þær niðurstöður lagðar á borðið
fyrir allan hópinn. - Einsog vera ber í afmæli voru viðstaddir í hátíðaskapi og almenn ánægja ríkjandi.
Mynd & texti: VS
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
Lágmyndir og skúlptúrar Huldu Hákon (f. 1956) eru
samofin tíðarandanum. Þar má finna jafnt skemmtilegar
hversdagssögur, hreinar og
beinar lýsingar, furðuleg atvik
sem og hárbeitta ádeilu. í heild
endurspegla verkin hugarheim
og persónulegt sjónarhorn
listakonunnar en þau bera
jafnframt með sér athyglisverða
heimild um samtímann. Þar
má greina einhvers konar
þjóðarkarakter. Verkin eru flest
fíguratíf, þ.e. þar má sjá myndir
af fólki og dýrum, landslagi
og húsum, en mörgum fylgir
einnig texti sem er ritaður beint
á verkið. Þar er vísað í sögu
sem tengist þeirri mynd sem við
sjáum, eitthvað sem var, er eða
mun gerast. Yfir verkunum er
allegórískur blær, þar sem einföld
táknmynd virðist notuð til þess
að tjá flóknari hugmynd en um
leið má lesa þau blátt áfram án
slíkra tenginga. Ekki er að finna
nokkurn mun í meðhöndlun
Huldu á raunsæjum atvikum eða
ævintýralegum, allt er á sama hversdagslega planinu,
látlaust en íhugult. Ef til vill mætti fá að láni hugtakið
töfraraunsæi til þess að lýsa aðferðafræði hennar,
nokkuð sem er gjarnan notað í tengslum við bókmenntir
Suður-Ameríku. Þar slær raunsæi saman við dulúð og
yfirnáttúrulega hluti í algjöru jafnvægi og samræmi innan
frásagnarinnar, án þess að það
þyki nokkurt tiltökumál. I verkum
Huldu er þess vegna alveg jafn
sjálfsagt að rekast á mynd af
sæskrímsli eins og portrett af
knattspyrnumanni. Undanfarið
hefur hún unnið að verkum sem
hún kallar einu nafni Þjóðin. Á
forsíðu Læknablaðsins er dæmi
um þetta frá þessu ár sem ber
titilinn 294.989, (efni akríllitir á
hydrocal og krossvið) og eins og
sjá má er um að ræða lágmynd
sem sýnir fjöldann allan af
örsmáum andlitum. Hulda hefur
þegar gert nokkur slík verk og
þegar yfir lýkur verður hún búin
að gera hálfgerða portrettmynd
af allri íslensku þjóðinni, um
þrjúhundruðþúsund manns
að tölu! Hún hefur áður gert
myndir jafnt af nafntoguðum
einstaklingum sem ónefndum
hversdagshetjum en nú gengur
hún skrefinu lengra og tekst á við
þjóðina í heild. Verk Huldu má iðulega sjá á kaffihúsinu
Gráa kettinum við Hverfisgötu, en hún hefur rekið þann
vinsæla staö í fjölda ára samhliða listsköpun sinni.
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL IOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag (slands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Bryndís Benedíktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Gunnar Guðmundsson
Inga S. Þráinsdóttir
Tómas Guðbjartsson
Þóra Steingrímsdóttir
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1800
Áskrift
9.500,- m. vsk.
Lausasala
950,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Prentsmiðjan Oddi
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né i heild án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Ubrary of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition og
Scopus.
The scientific contents of the
lcelandic Medical Journal are
indexed and abstracted in
Medline (National Ubrary of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition and
Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2009/95 739