Læknablaðið - 15.11.2009, Blaðsíða 14
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKN
Tafla III. Samanburður kostnaðar vegna ígræðslu nýra og skilunar.
Kostnaður
Igræðsla nýra Skilun
Núvirt miðað við 6%
Heildarkostnaður 19.872.931 26.174.797
Kostnaður lífárs 1.155.403 4.512.896
Kostnaður LL 1.622.757 9.362.855
Kostnaður núvirts LL 2.496.512 10.725.953
Núvirt miðað við 4,7%
Heildarkostnaður 21.574.961 26.917.931
Kostnaður lífárs 1.254.358 4.641.023
Kostnaður LL 1.761.739 9.628.677
Kostnaður núvirts LL 2.490.999 10.725.953
Núvirt miðað við 3%
Heildarkostnaður 22.727.455 27.954.659
Kostnaður lífárs 1.354.910 4.819.769
Kostnaður LL 1.902.963 9.999.520
Kostnaður núvirts LL 2.392.246 10.725.953
Núvirt miðað við 0%
Heildarkostnaður 27.296.450 29.985.475
Kostnaður lífárs 1.587.003 5.169.909
Kostnaður LL 2.228.937 10.725.953
Kostnaður núvirts LL 2.228.937 10.725.953
Fjárhæðir eru í íslenskum krónum.
LL = lífsgæðavegið lífár.
sem felur í sér samanburð á valkostum. Hlutfallið
var reiknað með eftirfarandi jöfnu:
fimm árum eftir ígræðslu stafar af ósamfellu í
gögnum um lifun en ekki sértækri breytingu í ferli
sjúklings eða kostnaði.
Samanburður á kostnaði vegna
ígræðslu nýra og skilunar
Arlegur kostnaður vegna skilunarmeðferðar eins
sjúklings var 5.169.909 íslenskar krónur en
1.651.108 íslenskar krónur vegna meðferðar
einstaklings með ígrætt nýra. Ef kostnaður er
núvirtur miðað við lægstu vexti íbúðalánasjóðs
árið 2006 og reiknað með lifun í 5,8 ár var
heildarkostnaður skilunarmeðferðar 26.917.931
íslenskar krónur. Núvirtur kostnaður við hvert
unnið lífár var því 4.641.023 íslenskar krónur. Til
samanburðar var kostnaður við hvert unnið lífár
1.254.358 íslenskar krónur ef ígræðsla nýra fór
fram á Islandi. Þegar lífárin voru lífsgæðavegin
reyndist kostnaður fyrir núvirt lífár fengið með
skilun 10.725.953 íslenskar krónur, en kostnaður
við núvirt lífsgæðavegið lífár áunnið með
ígræðslu nýra 2.490.999 íslenskar krónur. Nánari
niðurstöður miðað við mismunandi forsendur má
sjá í töflu III.
Við mat á uppsöfnuðum kostnaði við mis-
munandi meðferðarúrræði kom í Ijós að kostnaður
við fyrsta ár meðferðar var hærri við ígræðslu
nýra en við skilun (mynd 1). Hins vegar fer
uppsafnaður kostnaður við skilun fljótlega fram
úr kostnaði við ígræðslu nýra.
Stigvaxandi viðbótarkostnaöur vegna íhlutunar
kostnaðar- = . .—;------ — -
• , „ Viðbotaravinnmgur vegna ihlutunar
virkmhlutfall
I þessari greiningu er ávinningur miðaður
við lífsgæðavegin lífár. Utkoman sýnir kostnað á
hvert lífsgæðavegið lífár sem fæst með tiltekinni
íhlutun.
Niðurstöður
Samanburður á kostnaði vegna ígræðslu
nýra á íslandi og í Danmörku
Kostnaður vegna ígræðslu nýra frá lifandi
gjafa á Islandi og í Danmörku og meðferðar
fyrsta árið eftir ígræðsluna kemur fram í töflu
II. Kostnaður við ígræðslu nýra hér á landi var
5.442.763 íslenskar krónur en 6.758.101 íslenskar
krónur í Danmörku. Kostnaður vegna sjálfrar
aðgerðarinnar var lægri í Danmörku en verulegur
kostnaður fylgdi ferðalögunum. Vinnutap gjafa,
þega og fylgdarmanna var einnig áætlað nokkru
meira við ígræðslu nýra í Danmörku. Mynd 1 sýnir
uppsöfnun kostnaðarins yfir æviskeið þegans.
Vert er að nefna að ójafnan á kúrfunni fjórum til
Umræða
Rannsókn okkar bendir til að kostnaður vegna
ígræðslu nýra frá lifandi gjafa falli innan viðmiða
nágrannalandanna um ásættanlegan kostnað
við hvert lífsgæðavegið lífár. Heildarkostnaður
er nokkru minni ef ígræðsluaðgerðin fer fram
hérlendis samanborið við Danmörku. Þá er
kostnaður við hvert unnið lífár með ígræðslu
nýra mun lægri en með skilun og því er fjölgun
nýrnaígræðslna hagkvæm.
Niðurstöður okkar sýna glögglega að ígræðsla
nýra er mun hagkvæmari meðferð en skilun auk
þess að vera virkari því hún veitir betri lífshorfur
og aukin heilsutengd lífsgæði. Við ígræðslu er
kostnaður mestur á aðgerðarárinu. Eftir það
lækkar hann verulega. Skilun er mjög dýr meðferð
miðað við þau ár sem vinnast og heilsutengd
lífsgæði þeirra ára. Skilunarmeðferð er raunar á
mörkum þess að geta talist hagkvæm samkvæmt
erlendum viðmiðum um kostnaðarvirkni. Þó
ber að hafa í huga að skilun getur verið
tímabundin meðferð á meðan beðið er eftir
ígræðslu nýra. Þessar niðurstöður eru í samræmi
750 LÆKNAblaðið 2009/95