Læknablaðið - 15.11.2009, Blaðsíða 47
UMRÆÐUR O G fréttir
LÆKNAFÉLAG í S L A N D S I
grein fyrir hvort auglýsendur yrðu tilbúnir að
auglýsa í netútgáfunni. „Ef við hugsum okkur
að auglýsingatekjurnar dyttu alveg niður en
sparnaður með netútgáfunni væri um 50% þá
sætum við uppi með meiri kostnað af rekstri
blaðsins en nú er."
Það gleymist gjarnan í umræðunni um
netútgáfuna að hún yrði að vera lokuð öllum
nema læknum til að leyfilegt væri að birta
þar lyfjaauglýsingar. Netútgáfan kæmi þannig
örugglega mun færri fyrir sjónir en prentaða
útgáfan sem liggur víða frammi, bæði á bókasöfn-
um og annars staðar, og því álitlegri auglýsinga-
miðill en lokuð netútgáfa. „Ég held reyndar að
læknar noti ekki lyfjaauglýsingar í Læknablaðinu til
upplýsingar um hvaða lyfjum þeir eigi að ávísa til
handa sjúklingum sínum og því er mér spurn fyrir
hvern þessar auglýsingar eru. Persónulega vildi
ég helst að bæði Læknablaðið og Læknadagar væru
algjörlega laus við lyfjaauglýsingar en það er eins
og hver önnur óskhyggja."
Bima segir engu að síður augljóst að þróunin
sé sú að útgáfa og skrifstofustarfsemi sé sífellt að
færast meira yfir á netið. „Mér fyndist í rauninni
fullkomlega eðlilegt að skrifstofa LÍ væri rekin
að mestu á netinu. Hvað Læknablaðið varðar er
ég alveg tilbúin til að vera laus við pappírinn og
hafa það á netinu. Blaðið er hins vegar í góðu áliti,
það gegnir mjög skýru hlutverki sem vísinda- og
félagsrit, rekstur þess er traustur og því þarf að
gæta vel að áður en hróflað er við því. Læknar eru
einnig almennt stoltir af því að eiga svo gamalt og
gott tímarit sem raun ber vitni."
Fyrirfram var búist við að nokkur umræða yrði
á aðalfundinum um skipulag félagsins. Er rétt að
skipta félaginu í stéttarfélag og fagfélag lækna?
„Þetta er nauðsynleg umræða en niðurstaða
vinnuhópsins á aðalfundinum var að hún
þarfnaðist mun ítarlegri umfjöllunar og því var
ákveðið að skipa starfshóp sem hafið hefur störf
undir stjóm Sigurbjörns Sveinssonar. Þarna er
verið að fjalla um grundvallarspumingar sem
snerta tilgang félagsins og mjög mikilvægt að
þær séu ræddar ítarlega. Sumir telja að það
eigi eingöngu að vera stéttarfélag og sjá um
kjarasamninga. Aðrir vilja að félagið sé fagfélag
þar sem læknar skiptist á skoðunum um fagið
fyrst og fremst. Það er auðvitað ljóst að hagsmunir
lækna eru margvíslegir og fara ekki alltaf saman.
Sumir læknar eru stjómendur og atvinnurekendur
á meðan aðrir eru launþegar. Þarna eru augljósar
andstæður. Þetta þarf að ræða og velta fyrir sér og
hrapa ekki að niðurstöðum."
Læknir óskast að
ILTER CLINIC í Stokkhólmi, Táby
llter Clinic er ört vaxandi læknastofa í höfuðborg Svíþjóðar sem sérhæfir sig í hárflutningsaðgerðum með háþróaðri FUE tækni og minni háttar
aðgerðum. Lögð er áhersla á starfsánægju, þekkingu og færni ásamt framúrskarandi umönnun sjúklinga. Viðskiptavinir og sjúklingar llter Clinic
eru frá ýmsum löndum, ekki síst íslandi. Er nú óskað eftir lækni til starfa á þessari vinalegu og metnaðarfullu læknastofu í Táby.
Á læknastofunni eru tvær deildir, hárflutningsdeildin, llter Clinic og medspa deildin, llter Clinic Medspa.
ILTER CLINIC er hárflutningsaðgerðarstofa sem setur markið hátt hvað snertir þekkingu, færni og nákvæmni. Notast er við aðferð sem nefnist
FUE IM, smásjáraðgerð sem krefst mikillar einbeitingar og aðgæslu. Dr. Demir llter, hefur þróað og endurbætt aðferðina og tekur hann reglulega
þátt í ráðstefnum og starfsstefnum (workshops) þar sem hann kennir þessa aðferð og heldur fyrirlestra..
ILTER CLINIC MEDSPA býður háþróaðar húðmeðferðir án skurðaðgerða og jafnframt inngrip með litlum skurðaðgerðum sem viðurkenndur
læknir framkvæmir eða hefur eftirlit með eftir atvikum.
í boði er fjölbreytt og ögrandi starf í góðum hópi.
Staðan er ótímabundin. Vinnutíminn er frá mánudegi til föstudags en hvorki um nætur né helgar. Við leitum að lækni sem hefur reynslu af
skurðlækningum sem er opinn fyrir nýjum áskorunum, hefur áhuga á minni háttar aðgerðum og hefur viðurkennt iæknisleyfi í Svíþjóð. Reynsla
af lýtalækningum er góð viðbót. Viðkomandi fær kennslu á sviði FUE IM og smásjárskurðlækninga og tækifæri til að taka þátt í alþjóðlegum
ráðstefnum.
Vinsamlegast sendið tölvupóst með ferilsskrá og persónulegt bréf til asdis@ilterclinic.se (Ásdís Arnbjörnsdóttir). Merkið umsóknina „Læknir" eða
„Lákare“ og sendið hana í síðasta lagi 20. desember 2009. Nánari upplýsingar veitir Ásdís Arnbjörnsdóttir í síma +46-8-756 00 55.
ILTER CLINIC, Djursholmsvágen 14, 183 56 Táby, Sweden Tel +46 8 756 00 55, www.ilterclinic.com,www.ilterclinicmedspa.se
LÆKNAblaðið 2009/95 783