Læknablaðið - 15.11.2009, Blaðsíða 53
U M R Æ Ð U R
M Y N D
O G FRÉTTIR
MÁNAÐARINS
frá 1946-1953 að handlækningum, meðal annars
ýmsum aðgerðum á höfði.
Bjarni Jónsson var sérfræðingur í
bæklunarsjúkdómum og doktorsritgerð hans
fjallaði um hryggspengingar vegna hryggskekkju.
Hann var yfirlæknir á Landakotsspítala 1959-
1979. Bjarni sinnti höfuðáverkum hér á landi allt
þar til heila- og taugaskurðlækningar hófust á
Borgarspítalanum haustið 1971. Þess má geta
að Bjarni var árið 1998 gerður að heiðursfélaga
Heila- og taugaskurðlæknafélags íslands, ásamt
Friðriki Einarssyni, yfirlækni.
Kristinn R.
Guðmundsson
frv. yfirlæknir
Myndin er af Bjarna Jónssyni
yfirlækni og prófessor E. Busch
yfirlækni ásamt aðstoðarfólki,
við höfuðaðgerð á taugahand-
lækningadeild Ríkisspítalans
í Kaupmannahöfn en þar var
Bjami á ársstyrk frá Alþjóðaheil-
brigðismálastofnuninni frá október
1956 til ágúst 1957 að kynna sér
meðferð höfuðslysa. Uppsetningin
í aðgerðinni er klassísk en búið er
að opna inn á höfuð sjúklingsins.
Smátæki og tól virðast ekki mikið
frábrugðin því sem má sjá enn
í dag en stærri tæki, svo sem
skurðsmásjá og CUSA-sogtæki, eru
ekki til staðar.
Forsaga þessa máls er að um
langan aldur höfðu íslenskir
sjúklingar verið sendir á Ríkis-
spítalann í rannsóknir og aðgerðir
vegna sjúkdóma í höfði og mænu.
Ferðir til Hafnar voru þess vegna
tíðar, jafnvel vikulegar. Sér íbúð
var til reiðu fyrir sjúklinga og
aðstandendur. íslenska ríkið veitti prófessor
Busch (1899-1982) sérstaka viðurkenningu fyrir
fórnfúst starf í þágu íslendinga.
Höfuðslysum var hins vegar sinnt hér heima,
fyrst og fremst á Landakotsspítala en einnig
á hinum spítölunum. Þar komu þeir Bjarni
Oddsson (1907-1953) og nafni hans Bjarni
Jónsson (1909-2009) mest við sögu. Sá fyrrnefndi
hafði unnið á Taugahandlækningadeild
Ríkisspítalans í tvígang á árunum 1942-
1944. Doktorsritgerð hans fjallaði um „spinal
meningioma" en sérfræðingsviðurkenning hans
var þó í handlækningum og kvensjúkdómum og
fæðingarhjálp. Á Landakotsspítala starfaði hann
Bjarni
Jónsson
og upphaf
heilaskurð-
lækninga
á íslandi
LÆKNAblaðið 2009/95 789