Læknablaðið - 15.11.2009, Síða 60
UMRÆÐUR O G
FRÁ SIÐANEFN
F R É T T I R
D
ætlunin. Sérstök könnun máls áður en viðkomandi tilkynnir er
ósamrýmanleg barnaverndarlögum.
Það er að sjálfsögðu verkefni bamaverndarnefndar í fyrsta lagi að
meta hvort ástæða er til að hefja könnun máls, í öðru lagi að standa
fyrir könnuninni og í þriðja lagi taka ákvarðanir um nauðsynleg
úrræði ef því er að skipta. Mikilvægt er að þeir aðilar sem 1. og 2.
mgr. tekur til túlki ekki tilkynningarskylduna svo þröngt að það
takmarki möguleika barnavemdarnefnda til að halda uppi virku
barnaverndarstarfi. Barnaverndarnefnd tekur ákvörðun um hvort
tilkynning gefur tilefni til frekari könnunar á máli eða eftir atvikum
ákveður að aðhafast ekki í máli eða fella mál niður á síðari stigum, ef
í ljós kemur að ekki er tilefni til aðgerða af hennar hálfu.
Þegar litið er til framangreinds ákvæðis og lögskýringargagna
sem hér að framan er gerð grein fyrir, verður að líta svo á að
læknirinn Gunnar Jónasson hafi með umræddri tilkynningu verið
að rækja þær skyldur sem á honum hvíla samkvæmt lögum.
Þykir hér ekki skipta máli að orðalag tilkynningarinnar hafi vakið
þá hugmynd hjá kærendum að í henni fælist aðdróttun um brot
þeirra gagnvart barni sínu. Ljóst má vera að tilkynning samkvæmt
barnaverndarlögum kann að valda foreldrum óþægindum að
ósekju. Hins vegar telur siðanefnd að almennir hagsmunir sem
ætlað er að vemda með lögunum séu svo ríkir að ekki séu nein efni
til að slaka á kröfum í garð þeirra sem tilkynningarskylda hvílir á
samkvæmt þeim.
Samkvæmt þessu verður ekki fallist á það með kærendum að
læknirinn Gunnar Jónasson hafi brotið gegn siðareglum lækna með
margnefndri tilkynningu.
ÚRSKURÐARORÐ
Læknirinn Gunnar Jónasson braut ekki gegn siðareglum lækna
með því að senda tilkynningu til félagsmálayfirvalda í [...] 22. mars
2005.
Allan V. Magnússon
Ásgeir B. Ellertsson
Stefán B. Matthíasson
Páll Gíslason læknir
Ævisaga og afmælisrit
Þann 3. október fagnaði Páll Gíslason, læknir og fyrrum
skátahöfðingi íslands og borgarfulltrúi I Reykjavík, 85
ára afmæli sínu. Af því tilefni var ákveðið að gefa út
afmælisrit, sem jafnframt verður ævisaga hans, honum
til heiðurs. Það mun koma út um miðjan apríl á næsta ári
en þar segir Páll frá löngum og gifturíkum yfirlæknisferli
á Sjúkrahúsi Akraness og á Landspítalanum, bæjarpólitík
á Akranesi og borgarpólitíkinni í Reykjavík og samfelldu
skátastarfi í yfir 70 ár. Saga Páls er rituð af Hávari
Sigurjónssyni.
Aftast í bókinni verður svokölluð Heillaóskaskrá (Tabula
gratulatoria). Þar getur fólk heiðrað Pál með því að skrá
nafn sitt og um leið skráð sig fyrir eintaki af bókinni sem
mun kosta kr. 5.800 (m/sendingargjaldi). Skráning fer
fram á netfanginu holar@simnet.is og í símum 557-9215
og 692-8508.
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
Ný stjórn Geðlækna-
félags íslands
Á aðalfundi Geðlæknafélags íslands sem haldinn var 18. apríl 2009
var Valgerður Baldursdóttir kosin ný í stjóm í stað Bertrand Lauth.
Stjóm Geðlæknafélags íslands er þá þannig skipuð starfsárið 2009-
2010: Kristófer Þorleifsson for-maður, Bima G. Þórðardóttir ritari,
Þórarinn Hannesson gjaldkeri, Brjánn Á. Bjamason varaformaður
og Valgerður Baldursdóttir meðstjómandi.
Netföng stjómarmanna em eftirfarandi: Kristófer: kristoth@
landspitali.is Bima: bimagth@landspitali.is - Þórarinn: thorhan@
landspitali.is - Brjánn: bab@hive.is - Valgerður: Valgerdur®
REYKJALUNDUR.is
Djasshátíð lækna
Fimmtudagskvöld 19. nóvember 2009, kl. 20.30 - 23.00
Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu
Léttur djass með Hauki Gröndal og hljómsveit.
Mætum öll
Undirbúningsnefndin
796 LÆKNAblaðið 2009/95