Læknablaðið - 15.07.2010, Blaðsíða 9
RITSTJORNARGREIN
Eldgos og heilsa
Þórarinn
Gíslason
thorarig@landspitali. is
Höfundur er lungnalæknir
á Landspítala
Fossvogi.
Iceland Volcanic activity
Thorarinn Gislason,
Professor Dir. Dept. of
Respiratory Medicine
and Sleep Landspitali
University Hospital (E7)
108 Reykjavik
Enda þótt í Vestmannaeyjagosinu í janúar 1973
hafi orðið röskun á högum þúsunda íslendinga
hefur fréttum af nýju eldgosi yfirleitt fylgt
eftirvænting og jafnvel tilhlökkun meðal flestra
núlifandi íslendinga, væntingar um að framundan
sé enn eitt stórkostlegt sjónarspil náttúrunnar.
„Ertu búin(n) að fara og sjá gosið?" Flott, fylgir
því að búa á Islandi. Gosið á Fimmvörðuhálsi
byrjaði á þann veg, en þegar Eyjafjallajökull
opnaði gíga sína blasti við ný mynd með lömun
á flugi og miklu öskufalli sem raskað hefur lífi
fjölda manns. Þessum náttúruhamförum hefur
fylgt óöryggi og vanlíðan, jafnframt því sem
áleitnar spumingar hafa vaknað um heilsufarslega
skaðsemi eldgossins, bæði í bráð og lengd.
Eldgosum fylgja bæði skaðlegar lofttegundir
og fíngerð aska sem hvortveggja getur haft
áhrif á heilsufar, allt eftir samsetningu og magni
eiturefna. Enda þótt nær tíundi hluti mannkyns
búi í innan við 100 km fjarlægð frá virku eldfjalli
er lítið vitað um áhrif eldgosa á heilsufar manna
og dýra. Nýjustu yfirlitsgreinar1'3 sem eru um
fimm ára gamlar hafa vakið athygli á þessum
þekkingarskorti og um leið bent á að heilsufarsleg
áhrif eldgosa séu mjög mismunandi eftir
efnainnihaldi (til dæmis magn brennisteinssýru)
og eðli gosösku (kornastærð, lögun agna í
öskunni og hve hvassar brúnir þeirra eru). Bráð
áhrif felast aðallega í auknum astmaeinkennum,
einkum hjá börnum. Ný aska er oft hlaðin virkum
skaðlegum efnum og er með hvassar brúnir, sem
ertir loftvegi, en „eldri" aska sem hefur veðrast er
eðlislík annarri svifryksmengun vegna fjúkandi
jarðvegs og borgarryks. Það fer eftir því hve
mikið og oft öskufok liggur yfir byggð, hvort
vel þekktar afleiðingar svifryksmengunar með
skertum lungnaþroska barna4 og hraðara tapi á
öndunargetu fullorðinna5 koma fram eða ekki.
Rannsóknir sem birst hafa allra síðustu ár benda
til þess að einkenni frá öndunarfærum samhliða
eldgosum séu mest (og einkum hjá börnum) ef
gosinu fylgir mikil mengun brennisteins.61 kjölfar
eldgossins í Ruapehufjalli á Nýja-Sjálandi 1996
kom fram marktækt hækkuð dánartíðni vegna
öndunarfærasjúkdóma í Auckland sem er í 280
km fjarlægð frá eldfjallinu, en hjá viðmiðunarhópi
sem bjó enn fjær.7 Með eldgosum getur fylgt
mengun margskonar málma og annarra frumefna.
Vakin hefur verið athygli á hugsanlegum tengsl-
um krabbameins (skjaldkirtill) og eldvirkni.8
Samanburðarrannsóknir benda til meira magns
þungmálma meðal bæði manna og dýra á
gosvirkum hluta Asóreyja en á öðrum svæðum
eyjanna.
Mælingar þær sem ég þekki til á gosösku,
málmum og lofttegundum frá Eyjafjallajökli
gefa ekki tilefni til þess að halda að við stöndum
frammi fyrir bráðri heilsufarsvá. Vart hefur
orðið við versnun astmaeinkenna og fjölmargir
hafa fundið fyrir ertingi í augum, nefi, koki og
lungum. Einkenni hafa verið skammvinn, svarað
meðferð vel og horfið fljótt þegar mengun var
ekki lengur til staðar. Þegar þetta er ritað um
miðjan júní 2010 höfum við ekki orðið vör við
auknar innlagnir á Landspítala í tengslum við
gosið. Að frumkvæði sóttvarnarlæknis, Haraldar
Briem, hafa á undanförnum tveimur vikum á
þriðja hundrað íbúar undir Eyjafjöllum verið
skoðaðir á kerfisbundinn hátt, meðal annars
með blástursprófi sem endurtekið var eftir gjöf
berkjuvíkkandi lyfs. Niðurstaðna þeirra prófa er
brátt að vænta.
Fjölmörgum spurningum um hugsanleg heilsu-
farsáhrif er þó ósvarað, ekki síst um langtímaáhrif.
Þær takmörkuðu upplýsingar sem til eru um
heilsufarslegar afleiðingar eldgosa annars staðar
í heiminum eiga aðeins að hluta við hér á landi.
Það er mikilvægt að við hefjumst strax handa
við að afla nauðsynlegra gagna svo unnt verði að
draga ályktanir um heilsufarsleg áhrif eldgossins í
Eyjafjallajökli. Nauðsynlegt er að koma á víðtækri
samvinnu meðal annars lækna, dýralækna,
sálfræðinga, líffræðinga, jarðvísindamanna og
veðurfræðinga. Brýnt er að sú metnaðarfulla
skráning heilsufarsupplýsinga sem fer fram á
íslandi komi að notum við þessar rannsóknir.
Þær geta orðið mikilvægt framlag til þekkingar
á áhrifum eldgosa á heilsufar og vísað okkur
veginn varðandi viðbrögð og ráðleggingar til íbúa
hamfarasvæða.
Heimildir
1. Hansell A, Oppenheimer C. Health hazards from volcanic
gases: a systematic literature review. Arch Environ Health
2004; 59: 628-39.
2. Hansell AL, Horwell CJ, Oppenheimer C. The health hazards
of volcanoes and geothermal areas. Occup Environ Med
2006; 63:149-56.
3. Horwell C, Baxter P. The respiratory health hazards of
volcanic ash: a review for volcanic risk mitigation. Bull Volc
2006; 69:1-24.
4. Gauderman WJ, Vora H, McConnell R, et al. Effect of
exposure to traffic on lung development from 10 to 18 years
of age: a cohort study. Lancet 2007; 369: 571-7.
5. Downs SH, Schindler C, Liu LJ, et al. Reduced exposure to
PM10 and attenuated age-related decline in lung function. N
Engl J Med 2007; 357: 2338-47.
6. Iwasawa S, Kikuchi Y, Nishiwaki Y, et al. Effects of S02 on
respiratory system of adult Miyakejima resident 2 years after
retuming to the island. J Occup Health 2009; 51: 38-47.
6. Newnham RM, Dirks KN, Samaranayake D. An investigation
into long-distance health impacts of the 1996 eruption of Mt
Ruapehu, New Zealand. Atmosph Environ 201; 44:1568-78.
7. Duntas LH, Doumas C. The ,rings of fire' and thyroid cancer.
Hormones 2009; 8: 249-53.
LÆKNAblaðið 2010/96 461