Læknablaðið - 15.07.2010, Blaðsíða 45
UMRÆÐA 0 G FRÉTTIR
HAGRÆÐING: AF LÆKNADÖGUM
hefur þurft á sömu þjónustu sama starfsfólks að
halda og sá sem útskrifaðist! Þetta fyrirkomulag
verður að teljast einstætt. Það var víst þróað
þegar tilteknum deildum Kópavogshælisins fyrir
þroskahamlaða var lokað á sínum tíma. Kleppi
hefur hins vegar ekki verið lokað og stendur
ekki til að loka þar, heldur reyna fremur að
efla virka endurhæfingu fyrir einstaklinga með
geðrofssjúkdóma. Á mannamáli þýðir þetta að
segja þarf upp tveim starfsmönnum á Kleppi
eða hagræða sem því nemur fyrir hverja þrjá
sjúklinga sem útskrifast af Kleppi í húsnæði á
vegum Straumhvarfaverkefnisins. Það var þó
aldrei yfirlýst markmið verkefnisins að skera
niður á geðsviði, en væntanlega hafa ekki fengist
nægar fjárveitingar í góðærisfjárlögum áranna
2006 og 2007 til að standa undir verkefninu og
því gripið til þessa örþrifaráðs. Þetta fráleita
fyrirkomulag hefur eftir því sem ég best veit
verið tekið upp við alla sitjandi ráðherra
félagsmála og heilbrigðismála frá því það
var handsalað af Siv Friðleifsdóttur, þáverandi
heilbrigðisráðherra, og Magnúsi Stefánssyni,
þáverandi félagsmálaráðherra, veturinn 2006
til 2007, en án árangurs. Sú upphæð sem þegar
hefur tapast varanlega úr rekstrargrunni geðsviðs
vegna Straumhvarfaverkefnisins er nálægt 60
milljónum, en á eftir að hækka og nema um 100
milljónum að lokum. Enginn hefur þó greint
frá þessari skerðingu opinberlega enn. Það
vekur einnig athygli okkar yfirlækna á geðsviði
að spamaðarkrafa á sviðinu var talsvert meiri
en á öðrum klínískum sviðum Landspítala
á síðasta ári. Sviðið hefur verið rekið á pari í
mörg ár. Því miður virðist fylgja slíkri hagstjórn
svokallaður rússneskur bónus sem felst í því að
hagstjómarverðlaunin em meiri niðurskurður
en hjá sviðum sem ekki hafa haldið sig innan
fjárheimilda. Þetta er þó engin nýlunda á
Landspítala. Með öðmm orðum hefur verið
hagfellt fyrir einstök svið í gegnum árin að
útkomuspá ársins sé slök til að spamaðarkrafa
verði lægri en hjá sviðum sem hafa sýnt meiri
ábyrgð í rekstri.
Á geðsviði hefur verið hagrætt á ýmsa vegu
á síðustu árum. Nýverið var felld niður bundin
vakt deildarlækna á Kleppi og bakvakt sett inn í
staðinn. Opnunartími bráðamóttöku geðsviðs við
Hringbraut var styttur um um það bil helming
1. apríl síðastliðinn, úr 15 tímum á sólarhring
á virkum dögum í 7 tíma og um helgar frá 9
klukkustundum í 4. Neyðarþjónusta er þó veitt
allan sólarhringinn. Kreppan leiddi til betri mönn-
unar hjúkrunarfræðinga í dagvinnu og minni
starfsmannaveltu þeirra, sjúkraliða og ófaglærðra
starfsmanna. Einnig hefur tilvist vamarteymis
þjálfaðra starfsmanna á bráðamóttökudeildum á
Hringbraut sparað talsvert í mönnunarmódelum
bráðamóttökudeildanna. f sumar verður í fyrsta
sinn í heilan áratug reynt að spara með því að
loka einni bráðamóttökudeild af þremur (32A,
32C og 33C) í þrjár vikur að sumarlagi, frá 8.
júlí til 3. ágúst. Starfsfólk mun leggja sig fram
um að tryggja þeim innlögn sem nauðsynlega
þurfa á henni að halda. Einhverjir munu þó
þurfa að flytjast á fíknideild 33A og á Klepp fyrir
sumarlokun til að þessi áætlun geti gengið eftir.
Lyfjakostnaður geðsviðs var 58,9 milljónir árið
2009 (tæp 2% af heildarkostnaði sviðsins). Hann
lækkaði að krónutölu um 17% milli ára. Með
verðbólguleiðréttingu er þar um tæplega 30%
spamað að ræða. Þessi góði árangur hefur náðst
með minni notkun dýrra lyfja, meðal annars 41%
minna af dýrasta lyfinu sem leiddi til 22% minni
kostnaðar við innkaup á því, en einnig hefur það
sparað talsvert fyrir geðsviðið að hætta að hafa
dagsjúklinga á bráðamóttökudeildum. Við úttekt
Odds Ingimarssonar læknis á rannsóknarkostnaði
á móttökudeildum sviðsins reyndist hann
langmestur á deildum þar sem venjan var að gera
tilteknar blóðrannsóknir á öllum sem lögðust
inn, en lægstur þar sem klínískt mat var notað
til að stýra rannsóknum. Ákveðið var í kjölfarið
að deildir létu klínískt mat fremur en reglur
ráða komurannsóknum. Millifærslukostnaður
geðsviðs vegna rannsókna varð að lokum 32,1
milljón krónur sem samsvarar raunlækkun upp
á 8% þegar leiðrétt er fyrir hækkun gjaldskrár.
Þótt um sé að ræða litlar upphæðir á geðsviði,
geta sambærilegar breytingar sjálfsagt numið
háum upphæðum á sviðum þar sem mikið er um
þjónusturannsóknir.
Geðsvið hefur í vaxandi mæli veitt almenningi
bráðaþjónustu, á göngudeildum og úti í heilsu-
gæslunni síðasta áratug. Þessi hluti þjónustunnar
er mjög hagkvæmur og hefur vaxið. Þar
LÆKNAblaðið 2010/96 497