Læknablaðið - 15.07.2010, Blaðsíða 41
N O R R Æ N N
UMRÆÐA O G FRÉTTIR
RITSTJÓRNARFUNDUR
Charlotte Hang ritstjóri norska læknablaösins sagði frá
COPE, sem eru samtök útgefanda um siðfræði.
Michael Bretthauer sagði frá starfstíma sínum á New
England journal ofMedicine í Boston.
fleiri en eitt og allir þurfa að vera sammála um
ágæti greinarinnar til að hún hljóti náð fyrir
augum ritstjórnarinnar. Eftir að grein hefur verið
samþykkt til birtingar tekur við annað og ekki
síður strangt ferli þar sem höfundur endurskrifar
greinina í samstarfi við ritstjóra og sagði
Bretthauer að yfirleitt væri greinin gerbreytt, bæði
hvað texta og efnistök varðaði þegar hún loks
kæmi fyrir augu lesenda í blaðinu.
Charlotte Haug ritstjóri norska læknablaðsins
sagði að reynsla Bretthauers af ritstjóm NEJM
hefði nýst þeim geysilega vel. „Þetta var
fjárfesting af okkar hálfu sem hefur sannarlega
skilað sér. Við höfum tekið upp aðferðir þeirra
við að meta greinar og ritrýna þær með þeim
árangri að greinarnar ganga í gegnum strangara
ferli, þeim er fylgt betur eftir og þær verða betri."
Hún sagði einnig að þessi vinnubrögð veittu þeim
styrkari stöðu gagnvart „erfiðum" höfundum sem
tækju athugasemdir eða höfnun óstinnt upp. „Það
er betra fyrir báða aðila að vita að vinnubrögðin
Sigríður Thorlacius og Högni Egilsson úr hljómsveitinni Hjaltalín sungu nokkur lög á Hamri,
og stigu svo nokkrum dögum síðar á svið í Háskólabíói með Sinfóníuhljómsveit íslands. Mynd:
Sævar Guðbjörnsson.
eru þau sömu og tíðkast á svo virtu blaði og
NEJM," sagði Haug.
Engilbert Sigurðsson flutti erindi um kosti
þess fyrir Læknablaðið að vera aðili að Medline.
Það skipti gríðarlegu máli fyrir blað með
jafn litla dreifingu og lítið málsvæði að hafa
þessa viðurkenningu því það gerði birtingar
vísindagreina í blaðinu eftirsóknarverðari fyrir
íslenska heilbrigðisvísindamenn. Aukinn fjöldi
vísindagreina sem bærist blaðinu eftir að það var
skráð á Medline bæri því ótvírætt vitni.
Charlotte Haug flutti erindi um COPE samtökin
sem stofnuð voru á Englandi 1997. COPE er
skammstöfun fyrir Commitee on Publication
Ethics og tilgangur samtakanna er að gæta að
heiðarleika og heilindum vísindarita sem birta
ritrýndar greinar. Aðild að samtökunum er opin
ritstjórum vísindarita en einstaklingar sem hafa
áhuga á útgáfusiðfræði geta orðið aukafélagar.
I máli Haug kom fram að COPE veitir
ritstjórum ritrýndra vísindarita tækifæri til að
bera saman bækur sínum um efni er tengjast
hagsmunaárekstrum, fölsunum og tilbúnum
tölfræðilegum niðurstöðum, ritstuldi, siðlausum
tilraunum, úreltum birtingum og ágreiningi um
höfundarrétt. COPE hvetur meðlimi sína til að
fylgja eftir og rannsaka ef grunur leikur á um
misferli af hálfu háskóla, sjúkrahúsa eða annarra
stuðningsaðila.
Norrænu ritstjórnirnar slógu einnig á
létta strengi og að loknum fundi síðdegis á
fimmtudag var ekið um sveitir Borgarfjarðar
undir leiðsögn Kjartans Ragnarssonar og lauk
ferðinni í Landnámsetrinu í Borgarnesi þar sem
snæddur var kvöldverður. Voru norrænu gestirnir
hæstánægðir með fundinn og ferðina til Islands.
LÆKNAblaðið 2010/96 493