Læknablaðið - 15.07.2010, Blaðsíða 47
UMRÆÐA O G FRÉTTIR
FRÁ LANDSPÍTALA
Nýjar klínískar leiðbeiningar um líknarmeðferð
Frá líknarráðgjafateymi Landspítala
^'e'ðbeSevð
Uknarmeðte
í desember árið 2009 voru gefnar út á
Landspítala nýjar klínískar leiðbeiningar um
líknarmeðferð. Aðdragandi þess var sá að
vorið 2008 fólu hjúkrunarráð og læknaráð á
Landspítala líknarráðgjafateyminu að endurskoða
Leiðbeiningar um meðferð við lok lífs frá árinu
2002. Líknarráðgjafateymið lagði sem grunn að
endurskoðuninni nýja skilgreiningu WHO frá
2002, en þar hefur líknarmeðferð fengið meira
vægi og víðtækara hlutverk og getur átt við strax
frá greiningu sjúkdóms sem er lífshættulegur.
Líknarmeðferð er ekki lengur meðferðarstig
heldur meðferð sem getur átt við á öllum
stigum. Ahersla er á lífsgæði, einkennameðferð
og heildræna nálgun sem krefst þverfaglegrar
þjónustu.
Þó að líknarmeðferð fái aukið vægi eftir
því sem lífshorfur versna er mælt með að
aðferðum og hugmyndafræði líknarmeðferðar
sé beitt strax frá greiningu þegar það á við.
Endurskoðaðar leiðbeiningar á Landspítala taka
mið af þessari breyttu skilgreiningu líkt og nýrri
erlendar leiðbeiningar sem fjalla um þetta efni.
Líknarráðgjafateymi
Landspítala, frá vinstri
Nanna Friðriksdóttir,
sérfræðingur í hjúkrun,
Bragi Skúlason,
sjúkrahúsprestur, Valgerður
Sigurðardóttir, yfiriæknir,
Jón Eyjólfur Jónsson,
yfirlæknir, Sigurlaug
Eyjólfsdóttir,félagsráðgjafi,
Kristín Lára Ólafsdóttir,
hjúkrunarfræðingur
og Arndís Jónsdóttir,
sérfræðingur í hjúkrun.
Myndina tók Sigríður
Zoega.
Líknarmeðferð er þýðing á hugtakinu palliative
care og vísar til meðferðar í víðum skilningi þess
orðs. Leiðbeiningarnar eru aðgengilegar á vef
Landspítalans og landlæknisembættisins.
Við endurskoðun og gerð þessara leiðbeininga
var stuðst við leiðbeiningar Institute for Clinical
Systems Improvement (ICSI).
Leiðbeiningunum er ætlað að endurspegla
heildræna nálgun við gerð meðferðaráætlunar hjá
sjúklingum með lífshættulega og/eða versnandi
langvinna sjúkdóma. Leiðbeiningarnar eru í 13
köflum og meginmarkmiðin þeirra eru að:
• greina fyrr í ferlinu sjúklinga með ólæknandi
og/eða versnandi langvinna sjúkdóma sem
gæti gagnast líknarmeðferð
• bæta þekkingu og árangur heilbrigðisstarfs-
manna í samskiptum við sjúklinga með líf-
shættulega/versnandi langvinna sjúkdóma og
aðstandendur þeirra um markmið meðferðar
• efla heildrænt mat á þörfum sjúklinga sem tekur
mið af sex skilgreindum sviðum líknarmeðfer-
ðar
• fjölga sjúklingum sem hafa skráð meðferðar-
markmið og þar sem líknarmeðferð er hluti af
meðferðaráætlun.
LÆKNAblaðið 2010/96 499