Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2010, Blaðsíða 43

Læknablaðið - 15.07.2010, Blaðsíða 43
Hávar Sigurjónsson U M R Æ Ð A N Ý R F 0 0 G FRÉTTIR RMAÐUR L R Sjaldan hafa fleiri mætt á aðalfund LR. Söguleg formannskosning í LR Á framhaldsaðalfundi Læknafélags Reykjavíkur þann 1. júní síðastliðinn var Steinn Jónsson lungnalæknir kjörinn formaður með ríflega 50% atkvæða. Fjórir voru í framboði og er það í fyrsta sinn sem svo margir gefa kost á sér og vekur sérstaka athygli að aðalfundinum var frestað mánuði fyrr þar sem enginn hafði gefið kost á sér til formennskunnar. Á aðalfundinn í byrjun maí voru mættir 14 félagar og verður það að teljast lítil mæting í nær 800 manna félagi. Greinilegt var að félagsmenn höfðu tekið áskorun fráfarandi formanns Sigurðar Böðvars- sonar um að fylkja sér um nýjan formann því hvert sæti var setið í fundarsal Læknafélagsins í Hlíðasmára og þurftu nokkrir að standa. Sagðist Sigurður ekki óttast um framtíð Læknafélags Reykjavíkur þegar svo margir létu sér annt um hag þess þegar á reyndi. Var haft á orði að þetta væri sögulegur fundur þar sem sjaldan eða aldrei hefði verið svo vel mætt á aðalfund félagsins. I framboði til formanns voru auk Steins Jónssonar þeir Teitur Guðmundsson læknir, Einar Guðmundsson geðlæknir og Orri Þór Ormarsson barnaskurðlæknir. Allir héldu þeir skörulegar framboðsræður og verður ekki annað sagt en sjónarmið þeirra hafi legið saman að flestu leyti; að standa vörð um hag félagsins og félagsmanna sérstaklega og heilbrigðisþjónustuna almennt. Þegar búið var telja atkvæði kom í ljós að 114 höfðu greitt atkvæði og var ekkert þeirra autt eða ógilt. Niðurstaðan var sem áður sagði að Steinn Jónsson var kjörinn formaður með rúmlega helming atkvæða. Stjómin var Nýkjörinn formaður Steinn Jónsson tekur við hamingju- óskum fráfarandi formanns Sigurðar Böðvarssonar. að öðru leyti sjálfkjörin en hana skipa nú Michael Clausen barnalæknir varaformaður, Jón Gunnar Hannesson heimilislæknir ritari, Friðný Jóhannesdóttir heimilislæknir gjaldkeri og Jörundur Kristjánsson heimilislæknir með- stjórnandi. Má geta þess að á aðalfundinum í maí voru samþykktar lagabreytingar þess efnis að fækkað var í stjórn félagsins úr níu í fimm. Að loknu stjómarkjöri fór Kristján Guðmunds- son formaður samninganefndar LR yfir stöðu samningamála og sagði stöðu félagsins lagalega sterka gagnvart kjaraskerðingu en ljóst væri að framundan væru átök svo standa þyrfti vörð um kjör lækna. LÆKNAblaðið 2010/96 495
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.