Læknablaðið - 15.07.2010, Page 43
Hávar
Sigurjónsson
U M R Æ Ð A
N Ý R F 0
0 G FRÉTTIR
RMAÐUR L R
Sjaldan hafa fleiri mætt á aðalfund LR.
Söguleg formannskosning í LR
Á framhaldsaðalfundi Læknafélags Reykjavíkur
þann 1. júní síðastliðinn var Steinn Jónsson
lungnalæknir kjörinn formaður með ríflega 50%
atkvæða. Fjórir voru í framboði og er það í fyrsta
sinn sem svo margir gefa kost á sér og vekur
sérstaka athygli að aðalfundinum var frestað
mánuði fyrr þar sem enginn hafði gefið kost á sér
til formennskunnar. Á aðalfundinn í byrjun maí
voru mættir 14 félagar og verður það að teljast lítil
mæting í nær 800 manna félagi.
Greinilegt var að félagsmenn höfðu tekið
áskorun fráfarandi formanns Sigurðar Böðvars-
sonar um að fylkja sér um nýjan formann því
hvert sæti var setið í fundarsal Læknafélagsins í
Hlíðasmára og þurftu nokkrir að standa. Sagðist
Sigurður ekki óttast um framtíð Læknafélags
Reykjavíkur þegar svo margir létu sér annt um
hag þess þegar á reyndi. Var haft á orði að þetta
væri sögulegur fundur þar sem sjaldan eða aldrei
hefði verið svo vel mætt á aðalfund félagsins.
I framboði til formanns voru auk Steins
Jónssonar þeir Teitur Guðmundsson læknir, Einar
Guðmundsson geðlæknir og Orri Þór Ormarsson
barnaskurðlæknir. Allir héldu þeir skörulegar
framboðsræður og verður ekki annað sagt en
sjónarmið þeirra hafi legið saman að flestu leyti;
að standa vörð um hag félagsins og félagsmanna
sérstaklega og heilbrigðisþjónustuna almennt.
Þegar búið var telja atkvæði kom í ljós að
114 höfðu greitt atkvæði og var ekkert þeirra
autt eða ógilt. Niðurstaðan var sem áður
sagði að Steinn Jónsson var kjörinn formaður
með rúmlega helming atkvæða. Stjómin var
Nýkjörinn formaður Steinn Jónsson tekur við hamingju-
óskum fráfarandi formanns Sigurðar Böðvarssonar.
að öðru leyti sjálfkjörin en hana skipa nú
Michael Clausen barnalæknir varaformaður,
Jón Gunnar Hannesson heimilislæknir ritari,
Friðný Jóhannesdóttir heimilislæknir gjaldkeri
og Jörundur Kristjánsson heimilislæknir með-
stjórnandi. Má geta þess að á aðalfundinum í maí
voru samþykktar lagabreytingar þess efnis að
fækkað var í stjórn félagsins úr níu í fimm.
Að loknu stjómarkjöri fór Kristján Guðmunds-
son formaður samninganefndar LR yfir stöðu
samningamála og sagði stöðu félagsins lagalega
sterka gagnvart kjaraskerðingu en ljóst væri að
framundan væru átök svo standa þyrfti vörð um
kjör lækna.
LÆKNAblaðið 2010/96 495