Læknablaðið - 15.10.2010, Page 9
Guðmundur
Þorgeirsson
gudmth@landspitali.is
.
'
Höfundur er lyf- og
hjartalæknir, forseti
læknadeildar Háskóla íslands
Centenary: University
of lceland, Faculty of
Medicine
Gudmundur
Thorgeirsson, MD, PhD
Cardiologist and
Professor of Medicine
Dean, Faculty of
Medicine, University of
lceland
RITSTJÓRNARGREIN
s
Aldarafmæli Háskóla Islands
og læknadeildar
Stofnun Háskóla íslands, 17. júní 1911, var ekki aðeins
kjaminn í hátíðahöldum íslendinga á aldarafmæli
Jóns Sigurðssonar, heldur stórt og mikilvægt
skref á vegferð þjóðarinnar til stjórnarfarslegs og
efnahagslegs sjálfstæðis. Nú er blásið til aldarafmælis
og full ástæða til að hvetja alla þá sem Læknablaðið
lesa að taka virkan þátt í fjölmörgum atburðum,
málþingum og hátíðafyrirlestrum, sem haldnir
verða á þessum tímamótum. Læknadeild var ein
af fjórum stofndeildum Háskóla Islands ásamt
heimspekideild, lagadeild og guðfræðideild. Hún tók
við læknakennslunni af Læknaskólanum sem starfað
hafði frá 1876. Hins vegar er formleg læknakennsla
á íslandi jafngömul formlegri læknisþjónustu
því í erindisbréfi Bjarna Pálssonar, okkar fyrsta
landlæknis, frá 1760 er það skilgreindur hluti af
hans embættisskyldum að kenna læknisefnum og
yfirsetukonum.1 Fyrsta embættisprófið í læknisfræði
þrey tti Magnús Guðmundsson, síðar fjórðungslæknir
Norðlendinga, árið 1763. Prófið var haldið í heyranda
hljóði á Þingvöllum og verður ekki annað sagt en að
prófstaðurinn hafi hæft mikilvægi atburðarins. Saga
íslenskrar læknakennslu er þannig samofin sögu
íslenskrar læknisþjónustu. Segja má að þar sé byggt á
elstu arfleifð stéttarinnar því í eiðnum sem kenndur
er við Hippókrates frá Kos og er um 2400 ára gamall
segir svo í þýðingu Valdimars Steffensen, læknis:2
„Eg vil virða læknisfræðikennara minn sem foreldra
mína, taka þátt í lífskjörum hans ef nauðsyn krefur,
ala önn fyrir honum; enn fremur vil ég virða afkvæmi
hans sem bræður, og kenna þeim læknisfræði, ef þeir
æskja þess, endurgjaldslaust."
íslenskir læknanemar skrifa undir heitorð lækna
daginn áður en þeir útskrifast úr læknadeild.
Heitorðin eru íslensk en byggja að hluta á eiði
Hippókratesar. Því er heitið að beita kunnáttunni
af alúð og samviskusemi án manngreinarálits, að
auka kunnáttu sina í læknisfræðum og fara að
lögum. Læknanemarnir eru ekki látnir skrifa undir
eiðinn í heild og ekki undir klausuna sem vitnað er
til hér að ofan um skyldur lækna við kennara sína
sem þeim finnst fyndin þegar hún er lesin upp í
tengslum við þá alvöruathöfn að undirrita heitorð
lækna. Engu að síður er þarna að finna ákveðinn
kjarna sem hefur mótað stéttina um aldir. Það er
skyldan að gefa til baka. Að leiðbeina og kenna, ekki
bara læknanemum, heldur einnig yngri kollegum og
öðrum kollegum þegar við á. Þetta gildir um störf
allra lækna, hvort sem þeir eru ráðnir til starfa við
háskólastofnun eða ekki. Læknadeildir háskóla hafa
hins vegar reynst öflugur vettvangur til að efla og
miðla hinum víðtæku fræðum læknisfræðinnar. Það
er engin tilviljun að bestu sjúkrahúsin víðast hvar í
heiminum eru háskólasjúkrahús. Það er vegna þess
að góð þjónusta við sjúklinga og hinn akademíski
hluti spítalastarfsins efla hvert annað. Háskólastarfið
laðar að hæft starfsfólk og glæðir starf sjúkrahúsanna
eldmóði og hinni gagnrýnu nálgun fræðaiðkunar.
Kennslan fer að verulegu leyti fram á vettvangi
þjónustunnar og getur ekki án hennar verið.
Formúlan á bak við háskólaspítala er því þrautreynd
og ótvírætt að hún virkar.
Eftir fyrsta starfsvetur Háskóla íslands luku
fjórir nemendur embættisprófi í læknisfræði eftir
að hafa meðal annars lýst apoplexi cerebri, orsökum
sjúkdómsins, þýðingu hans og meðferð; lýst steinum
í þvagfærum, einkennum og meðferð; gert grein
fyrir algengustu barnamorðum í réttarlæknisfræði;
fjallað um sjúkdóminn gulu og lýst verkunum hans
á líkamann.3
Þessi viðfangsefni eru enn mikilvæg vandamál og
gætu þess vegna átt rétt á sér á prófum næsta vor. Samt
hefur átt sér stað þekkingarsprenging á öllum sviðum
læknisfræði og ekki síður í þeim grunnvísindum sem
læknisfræðin byggir á. Hvernig er unnt að leysa þann
námsskrárvanda sem hlýst af þessum aðstæðum: Við
erum í miðri þekkingarsprengingu en á sama tíma
er ekki unnt að sleppa hinni klassísku undirstöðu
úr þekkingarkröfum sem gerðar eru til útskrifaðra
lækna? Mér er ekki kunnugt um neitt einfalt eða
einhlítt svar við þessari spurningu en mikilvægast
er að læknadeild útskrifi læknakandídata sem hafi
þekkingu, þroska og hæfni til að axla ábyrgð á
ævilangri símenntun sem á okkar dögum er forsenda
þess að rækja kröfuhart læknisstarf.
Þeir sem hlotið hafa menntun og þjálfun við
læknadeild Háskóla Islands hafa í mörgum tilvikum
sannreynt það við nafntogaðar stofnanir austan
hafs og vestan að menntunin stendur fyrir sínu og
er samkeppnishæf. A afmælisári hugsum við með
þakklæti til deildarinnar og til Háskóla Islands og til
okkar gömlu kennara.
Floreat Universitas Islandiae.
1. ísberg JÓ. Líf og lækningar. íslensk heilbrigðissaga.Hið íslenska bók-
menntafélag, Reykjavík 2005.
2. Steffensen V. Hippokrates, faðir læknislistarinnar, saga hans og
Hippokratísku læknislistarinnar ásamt þýðingum á víð og dreif úr
verkum hans. Bókaútgáfan Norðri, Reykjavík.1945.
3. Jökulsson I. ísland í aldanna rás 1900-2000. Saga lands og þjóðar ár frá
ári. JPV Útgáfa, Reykjavík 2003.
LÆKNAblaðið 2010/96 601