Læknablaðið - 15.10.2010, Page 14
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKN
■ Doktorspróf (54)
■ Sænskt sérfræöipróf (11)
H Bandarískt sérfræöipróf
(Amcrican Board) (10)
■ Evrópskt sérfræöipróf
(European Board) (7)
■ Meistarapróf (6)
Breskt sérfræöipróf (FRCS)
(3)
Bacheior gráöa (BSc) (2)
Mynd 2. Prófgráður 237 (9,7%), Bretland (3,8%) og Danmörk (3%). Fimm
íslenskra skurðlækna þann skurðlæknar stunduðu sérnám í öðrum löndum,
1. september 2008. Fjoldi meðal annars í Þýskalandi og Frakklandi. Af 36
skurðlækna i sviga. J °
skurðlæknum sem voru í sérnámi erlendis voru
19 búsettir í Svíþjóð (53%), sex í Bandaríkjunum
(17%) og aðrir sex (17%) í Noregi.
Á mynd 2 sést fjöldi íslenskra skurðlækna
sem hafði lokið doktors- og meistaraprófi,
eða 54 einstaklingar sem er 19,7% hópsins.
Langflestir luku doktorsprófi í tengslum við
sérnám erlendis (n=49) en fimm við Háskóla
íslands. Tæpur þriðjungur skurðlækna sem
stunduðu nám í Svíþjóð luku doktorsprófi
og 22% frá Noregi. Af 29 einstaklingum sem
stunduðu sérnám í Bandaríkjunum luku 10
(34%) sérfræðiprófi (Board Examination) þar í
landi, og breska sérfræðiprófinu (FRSC) luku
þrír af níu skurðlæknum sem voru menntaðir í
Bretlandi. Jafnframt luku 12 (7%) skurðlæknar
frá Svíþjóð sænska sérfræðiprófinu í almennum
skurðlækningum.
Á mynd 3 er sýnt framboð og eftirspurn eftir
skurðlæknum á íslandi, en ekki litið sérstaklega
á vinnumarkað erlendis. Við útreikninga er
miðað við nálganir sem nefndar voru í kaflanum
um efnivið og aðferðir. Eins og sést í töflunni
undir myndinni er gert ráð fyrir að árlega komi
10 skurðlæknar til íslands að utan. Jafnframt er
reiknað með að árlega hætti einn skurðlæknir
störfum af öðrum ástæðum en vegna aldurs,
svo sem vegna sjúkdóma eða snúi aftur til starfa
erlendis. Fjöldi skurðlækna sem fer á eftirlaun er
reiknaður út frá upplýsingum um aldursdreifingu
í töflu II, og starfsaldur miðast við 70 ár. Árið
2008 voru 138 skurðlæknar starfandi á íslandi.
Sé gert ráð fyrir að skurðlæknum fjölgi í takt
við íbúafjölda verða 156 skurðlæknar starfandi
á íslandi árið 2025. í töflu undir mynd 3 sést
að munur á framboði og eftirspurn er mestur
næstu fimm árin, eða þrír til átta manns umfram
eftirspum. Eftir það verður aukið jafnvægi í
framboði og eftirspurn sem helst fram til ársins
2025.
Umræða
Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að
rúmlega 80% íslenskra skurðlækna hafa sótt
menntun sína til Norðurlandanna. Svíþjóð er
þar langefst á blaði en nærri lætur að tveir af
hverjum þremur skurðlæknum hafi stundað
þar nám. Þetta á við um allar undirsérgreinar,
en fyrir sumar þeirra er hlutfallið enn hærra,
til dæmis bæklunarskurðlækningar. Rúmlega
10% skurðlækna hafa stundað sérnám í Noregi
og fer hlutfall þeirra hækkandi, til dæmis voru
17,5% skurðlækna í sérnámi búsettir þar. Eflaust
eru margar skýringar á þessari þróun, en í
Noregi hafa betri kjör verið í boði en á hinum
Norðurlöndunum.8 Athyglisvert er hversu fáir
stunduðu sérnám í Danmörku, eða 3% hópsins.
í Danmörku hafa færri námsstöður verið í boði
en í Svíþjóð og Noregi auk þess sem sérnámið
hefur tekið lengri tíma samanborið við hin
Norðurlöndin.9
íslenskir skurðlæknar verða að teljast vel
menntaðir, enda hefur tæplega fimmtungur þeirra
lokið doktorsprófi. Samanburð vantar við aðrar
sérgreinar hér á landi, en í Svíþjóð og Noregi
eru 17-30% skurðlækna með doktorspróf og er
hlutfallið breytilegt á milli undirsérgreina.8-10 Um
þriðjungur íslenskra skurðlækna sem menntaðir
voru í Bandaríkjunum (n=10) og Bretlandi (n=3)
luku þar bandarísku og bresku sérfræðiprófi.
Þetta verður að teljast frekar hátt hlutfall, ekki síst
þegar haft er í huga að skurðlæknum er ekki skylt
að taka þessi próf til að fá sérfræðiviðurkenningu
hér á landi.
í þessari rannsókn var ekki litið sérstaklega á
vísindavinnu skurðlækna. í öðrum rannsóknum
hefur verið sýnt fram á töluverða rannsóknavirkni,
til dæmis komu skurðlæknar að 12-15%
íslenskra vísindagreina með svokölluðum ISI-
staðli á árunum 1999-2003."'12 Ekki liggja fyrir
sambærilegar tölur fyrir íslenska skurðlækna
búsetta erlendis. Þó verður að telja líklegt að
rannsóknavirkni þeirra sé ekki síður mikil, enda
margir starfandi við stór háskólasjúkrahús.
Hlutfall kvenna reyndist lágt, eða 8% á meðal
skurðlækna á íslandi. Þetta er lægra hlutfall en á
hinum Norðurlöndunum, en hlutfall kvenna er
næstum tvöfalt hærra í Svíþjóð og Noregi.8-10 í
þessum löndum hefur hlutur kvenna verið mjög
mismunandi eftir undirsérgreinum, til dæmis
eru konur margfalt fleiri í barnaskurðlækningum
en brjóstholsskurðlækningum.8 Hér á landi er
það ánægjuleg þróun að íslenskum konum í
skurðlækningum fer fjölgandi, til dæmis eru
þær 19,4% skurðlækna í sérnámi. Þetta er eðlileg
þróun enda útskrifast fleiri konur en karlar úr
606 LÆKNAblaðið 2010/96