Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.2010, Side 53

Læknablaðið - 15.10.2010, Side 53
Sigurbjörn Birgisson læknir Sérfræðingur í meltingarsjúkdómum og meistaranemi í heilbrigðis- og lífsiðfræði við Hl UMRÆÐA O G FRÉTTI SIÐFRÆÐIDÁLKU Siðfræðidálkur - tilfelli / hugleiðingar Tilfelli Um er að ræða 84 ára konu á hjúkrunarheimili með alvarlega heilabilun vegna Alzheimers-sjúkdóms. Hún er bundin við hjólastól og þarf alla aðstoð með athafnir daglegs lífs. Hún getur ekki gert sig skiljanlega og þekkir ekki sína nánustu lengur. Hún getur ekki matast sjálf og þegar hún er mötuð á hún það til að loka munninum fast aftur, spýta út úr sér matnum og ýta hnífapörum frá sér. Henni svelgist oft á og hóstar við mötim. Hún er komin með legusár við spjaldhrygg og hefur megrast talsvert. Umönnunaraðilar á hjúkrunarheimilinu hafa áhyggjur af næringarástandinu og talsverður tími starfsfólks fer í að mata hana. Systir hennar telur að hún sé að tærast upp og svelta til dauða en dóttir hennar telur að móðir sín sé að gefa til kynna að hún vilji ekki meira og það sé verið að neyða ofan í hana matinn. Læknir hjúkrunarheimilisins hefur bent á þann möguleika að gefa henni næringu og vökva um görn með næringarslöngu. Hugleiðingar Gervinæring og vökvun um görn til lengri eða skemmri tíma um magaslöngu er algeng læknisfræðileg meðferð. ísetning magaslöngu um húð með hjálp speglunar (percutaneous endoscopic gastrostomy) er fremur einföld, fljótleg, ódýr og áhættulítil aðgerð sem notuð hefur verið með góðum árangri í 30 ár til gervinæringar og vökvunar um görn. Þessi aðferð er talsvert notuð þegar útlit er fyrir að sjúklingur geti ekki nærst nægjanlega um munn næstu 4-6 vikurnar, til dæmis vegna taugasjúkdóma, svo sem heilablóðfalls, áverka eftir slys, krabbameins og gjörgæslulegu.1 Undir slíkum kringumstæðum er um að ræða viðurkennda, réttlætanlega og viðeigandi læknisfræðilega meðferð sem þjónar hagsmunum sjúklings. Ákvörðun um að hefja, hefja ekki eða stöðva næringu um görn er hins vegar oft flókin og erfið hjá sjúklingum með endastigssjúkdóma, langt gengna heilabilun og heiladauða. Læknisfræðilegu rökin fyrir næringu hjá þessum sjúklingum eru oft óljós og ákvörðunin um næringuna getur byggst meira á siðfræðilegu mati en læknisfræðilegu. Mismunandi skoðanir, menningar- og/eða trúarleg viðhorf lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna, sjúklings og aðstandenda geta stangast á og leitt til siðferðilegs vanda. Sjúklingum með heilabilun fer fjölgandi og að sama skapi hefur næring um göm verið notuð í auknum mæli hjá þessum sjúklingum. Flestir sjúklingar með langt gengna heilabilun eiga erfitt með fæðuinntöku eða vilja ekki matast. Slíkt leiðir óhjákvæmilega til þess að sjúklingurinn vannærist, megrast og þornar upp og hættan á ásvelgingu með lungnabólgu eykst. Slíkt ástand er oft merki um lokastig sjúkdómsins og er þá sjúklingurinn oftar en ekki orðinn ófær um að tjá sig. Tilfellið hér að ofan snýst um það hvort næra eigi slíkan sjúkling með magaslöngu um görn. Þegar taka þarf ákvörðun um næringu um göm þarf að spyrja sig hvort það þjóni hagsmunum sjúklings og hver sé vilji hans. Meginmarkmið næringarinnar er að draga úr þjáningu og bæta lífsgæði sjúklingsins. í flestum tilvikum er ábendingin klár og augljós læknisfræðileg meðferð og ákvörðunin því einföld. I umræddu tilfelli er ábendingin ekki eins skýr og ákvörðunin því flóknari og siðferðilegar spurningar vakna. Vilji sjúklings á þessu stigi er oftast ekki ljós og ágreiningur og hagsmunarárekstrar geta orðið milli læknis, aðstandenda og umönnunaraðila um hvað gera eigi. Mismunandi afstaða getur byggst á vanþekkingu, mismunandi væntingum, tilfinningum og gildismati. Læknir sjúklings getur talið sig bregðast lagalegri- og/eða læknisfræðilegri skyldu sinni, gefi hann ekki næringu. Aðstandendum getur þótt erfitt að sætta sig við og horfa upp á ástvin sinn veslast upp og svelta, sama hvað rannsóknir hafa að segja um árangur slíkrar meðferðar. Áhrifa getur einnig gætt frá þriðja aðila, svo sem þrýstingur frá umönnunaraðilum eða hærri greiðslur til hjúkrunarheimila vegna hjúkrunarsjúklinga með næringarslöngu. Læknisfræðileg lífsiðfræði er gagnleg til að leiðbeina og hjálpa læknum við ákvarðanatöku í siðferðilegum álitamálum. Sjálfræði og sjálfs- ákvörðunarréttur sjúklings skiptir hér megin- LÆKNAblaðið 2010/96 645

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.