Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.2011, Side 28

Læknablaðið - 15.02.2011, Side 28
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN Tafla I. Samanburður á einstaklingum (beina- og liðasýkingar) með jákvæðarog neikvæðar ræktanir með tilliti til einkenna, blóð- og myndrannsókna, árstíða og aldurs. Tilfelli með jákvæða ræktun N = 121 Tilfelli með neikvæða ræktun N = 99 Myndrannsóknir (jákvæðar/framkvæmdar) Röntgenmynd 36/99 (36%) 31/83 (37%) ísótóparannsókn 80/85 (94%) 60/67 (90%) Segulómun 21/21 (100%) 20/21 (95%) Ómun 16/37 (44%) 7/19 (37%) Blóðrannsóknir (miðgildi (spönn)) Hvít blóðkorn (x109/L) 10,2 (3,9-25,9) 12,0(4,9-32,1) CRP (mg/L) 33 (0-194) 22 (0-232) Sökk (mm/klst) 30 (1-102) 29 (1-90) Einkenni Lengd einkenna (miðtala (spönn)) 6 (0-365) dagad 8 (0-74) dagar Hiti °C (miðgildi (spönn)) 38,2 (36,2-40,7) 37,8 (36,0-40,2) Verkur 111/121 (92%) 89/99 (92%) Starfsbilun 108/121 (89%) 89/99 (92%) Bólga 67/121 (55%) 50/99 (52%) Roði 47/121 (39%) 36/99 (37%) Faraldsfræði Aldur (miðgildi (spönn)) 8,5 ár (0,1-17,7)* 1,8 ár (0,7-17,0)* Tilfelli undir fjögurra ára 34% 71% Tilfelli um haust 32% 41% t Ólíklegt er að beinasýking geti staðið í 365 daga án greiningar, byggt er á sjúkraskrárgögnum. * Einungis aldur tengdist niöurstöðu ræktana marktækt (p=0,038). CRP = C reactive protein Aldursdreifing beina- og liðasýkinga | I , ‘LILluLllLLLLlliI. 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 Aldur i árum ■ Beiriasykingar ■ Ltðasykingar Mynd 1. Aldursdreifing barna með beinasýkingar og liðasýkingar. Aldursstaðlað nýgengi beina- og liðasýkinga tpgildifyrir linulcga teilni <0,001 tPgildifyrir Imufega leitni 0,019 Ar -Otil I7ðrat -Otil Sara —6 tíl llára —12 til 17ára -Linulegt* 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 200S Mynd 2. Aldursstaðlað nýgengi beirn- og liðasýkinga 1996-2005. húss Reykjavíkur eða Sjúkrahúsið á Akur- eyri frá ársbyrjum 1996 til ársloka 2005 með sjúkdómsgreininguna sýking í beini eða lið. Framangreindar stofnanir eru þær einu á landinu sem greina og meðhöndla slíkar sýkingar og því nær rannsóknin til allrar þjóðinnar á tímabilinu. Inntökuskilyrði rannsóknarinnar byggðu á ICD-9 (711 og 730) og ICD-10 (M00, M01, M46, M86 og M90) greiningarkóðum. Leitað var að einstaklingunum í sjúkraskrám stofnananna. Sjúklingar sem þannig fundust þurftu ennfremur að uppfylla tvennskonar skilyrði; að hafa fengið fulla meðferð í samræmi við beina- eða liðasýkingu og að uppfylla að minnsta kosti eitt af eftirfarandi: jákvæða ræktun (blóð, liðvökvi eða bein), myndrannsókn sem samrýmdist beina- eða liðasýkingu eða að hafa klínísk einkenni beina- eða liðasýkingar. Til að tryggja að öll tilfelli væru með í rannsókninni var einnig farið yfir niðurstöður ræktana (liðvökvi og beinvefur) frá börnum í gagnagrunni sýklafræðideildar Landspítala. Eftirfarandi upplýsingum var safnað úr sjúkraskrám; aldur, kyn, einkenni og staðsetn- ing sýkingarinnar, greiningarkóði og grein- ingardagsetning, atriði sem komu fram í skoðun, niðurstöður blóðrannsókna, myndrannsókna og ræktana. Greiningardagur (dagur 0) var skilgreind- ur þegar sjúklingur fékk fyrstu gjöf sýklalyfja í æð. Sótthiti var skilgreindur >38°C mælt í endaþarm. Framangreindum upplýsingum var safnað í skrá þar sem persónueinkenni höfðu verið afmáð í samræmi við leyfi Vísindasiðanefndar og Persónuverndar. Við úrvinnslu gagna var bömunum skipt í hópa. í fyrsta lagi eftir því hvort um var að ræða beinasýkingu eða liðasýkingu. Þeir sem höfðu bæði beinasýkingu og liðasýkingu í aðlægum lið voru flokkaðir með beinasýkingum.6 I öðru lagi var tilfellum skipt í þrjá jafna aldursflokka, 0-5 ára, 6-11 ára og 12-17 ára, til að meta nýgengi beina- og liðasýkinga eftir aldurshópum. Tölur um fjölda barna í einstökum aldursflokkum á Islandi voru fengnar hjá Hagstofu Islands til að ákvarða aldursstöðlun (www.hagstofa.is). í þriðja lagi var tilfellum skipt í hópa eftir því hvort ræktanir voru jákvæðar eða neikvæðar og hóparnir bornir saman með tilliti til aldurs og rannsóknarbreyta. Að lokum var kaimað hvort um árstíðarsveiflu var að ræða í greiningum og var júni til ágúst flokkað sem sumar, september til nóvember sem haust, desember til febrúar sem vetur og mars til maí sem vor. Samanburður á miðaldri var gerður með Student's t-prófi þar sem gert var ráð fyrir mismunandi dreifingu. Fjölþátta tvíkosta aðhvarfsgreining (multivariable binominal logistic regression) var bæði notuð til að kanna 92 LÆKNAblaðið 2011/97

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.