Læknablaðið - 15.02.2011, Blaðsíða 33
FRÆÐIGREINAR
SJÚKRATILFELLI
Blóðsegarek til lungna hjá
unglingsstúlku - sjúkratilfelli
Sonja
Baldursdóttir3
læknir
Bjarni Torfason12
sérfræöingur í hjarta- og
brjóstholsskurðiækningum
Gunnlaugur
Sigfússon1'3
sérfræðingur í
hjartasjúkdómum barna
Kolbrún
Benediktsdóttir1'2
sérfræðingur í myndgreiningu
Ragnar
Bjarnason1'3
Sérfræðingur í
innkirtlasjúkdómum barna
Lykilorð: tölvusneiðmynd,
getnaðarvarnarpilla, blóðþynning,
skurðaðgerð.
’Læknadeild HÍ,
2Landspítala,
3Barnaspítala Hringsins,
Landspítala.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Ragnar Bjarnason
Barnaspítala Hringsins
Landspítala Hringbraut,
101 Reykjavík.
ragnarb@landspitali. is
Ágrip
Blóðsegarek til lungna er sjaldgæf orsök
brjóstverkja hjá unglingum og enn sjaldgæfari
hjá börnum. Einkenni geta líkst algengum
kvillum, svo sem lungna- eða fleiðrubólgu og því
mikilvægt að hafa þau í huga til þess að ekki verði
töf á greiningu. Yfirleitt er einn áhættuþáttur til
staðar, ýmist áunninn eða meðfæddur.
Ekki eru til stöðluð ferli fyrir greiningu blóð-
segareks til lungna hjá börnum og unglingum
en stuðst er við svipaðar rannsóknir og hjá full-
orðnum. Tölvusneiðmyndun af lungnaæðum
með skuggaefni (spiral CT angio) er mest notaða
aðferðin til greiningar á blóðsegareki til lungna.
Meðferð felst í blóðþynningu og þegar þörf krefur
er gerð skurðaðgerð til að fjarlægja blóðsegann.
Lýst er blóðsegareki til lungna hjá unglings-
stúlku sem var í bráðri lífshættu þar sem blóð-
seginn takmarkaði blóðflæði verulega. í bráða-
skurðaðgerð tókst að fjarlægja blóðsegann í tæka
tíð.
Sjúkrasaga
17 ára stúlka kom á bráðamóttöku bama eftir að
hafa verið óglatt og með verki í brjóstkassa í tvær
vikur. I fyrstu hafði ógleðin verið meiri, en síðustu
daga fyrir komu hafði verkurinn farið versn-
andi. Verknum lýsti hún sem sting í bringu sem
versnaði við djúpa öndun og litla áreynslu. Auk
þess fann hiin fyrir mæði og hröðum hjartslætti
og hafði ekki getað sótt skóla í nokkra daga vegna
þessara einkenna.
Hjá heimilislækni hafði hún verið send í
almennar blóðprufur sem voru eðlilegar og
þungunarpróf var neikvætt. Tveim dögum fyrir
innlögn leitaði hún á bráðamóttöku barna og var
talin vera með magabólgur eða bakflæði. Hún
var sett á sýruhemlandi lyf sem sló á ógleðina en
brjóstverkurinn fór versnandi.
Stúlkan hafði fengið mígreni en var annars
hraust og tók engin lyf nema Mercilion getnaðar-
varnartöflu síðastliðið hálft ár.
Við skoðun bar stúlkan sig vel en var föl og and-
stutt. Hún vó 56 kg, líkamshiti mældur í holhönd
var 36,3°C, blóðþrýstingur 98/65 mm kvikasilfurs,
hjartsláttur 110 slög/mínútu og súrefnismett-
un 98%. Útlimir voru kaldir átöku og áberandi
blámi. Hjartalínurit sýndi sinus takt, eðlilegan
öxul og viðsnúna T-takka í hægri brjóstleiðslum
(V1-V3) sem er eðlilegt hjá börnum og unglingum.
Röntgenmynd af lungum var eðlileg. Blóðhagur,
Na, K, kreatínín, CRP, blóðsykur, lifrarpróf og
hjartaensímin CK-MB og trópónín-T, var innan
marka en D-dímer var hækkaður, 18 mg/L
(viðmiðunargildi <0,50 mg/L). Hjartaómskoðun
sýndi eðlilega byggingu hjartans og engin merki
um gollurshúsbólgu. Hægri slegill var stækkaður
og var það talið vegna þrýstingsálags þar sem
þrýstingur slegils var metinn hækkaður við
óbeina mælingu á þríblöðkulokuleka. Vaknaði
við það grunur um blóðsegarek til lungna og
var því gerð tölvusneiðmynd með skugga-
efni af brjóstholi. Rannsóknin sýndi stóran söðul-
blóðsega sem hefti blóðflæði til beggja lungna
(mynd 1). Stúlkan var flutt á gjörgæsludeild til
undirbúnings fyrir opna hjartaskurðaðgerð. Þegar
komið var á skurðstofu versnaði ástand stúlk-
unnar skyndilega, súrefnismettun féll í 77%, en
blóðþrýstingur var viðunandi, um 90 mm kvika-
silfurs. Þegar opnað var inn í gollurshús kom í
ljós mjög stórt hjarta, þanin hægri gátt og hægri
slegill. Meginlungnaslagæð var opnuð eftir að
hjartalungnavél hafði tekið yfir starfsemi hjarta
og lungna og þá kom í ljós um 20 cm langur og
sver blóðsegi, 2,0-2,5 cm í þvermál (mynd 2).
Blóðseginn lá yfir greiningu lungnaslagæðar til
hægra og vinstra lunga og fyllti þær nær alveg
á löngum kafla. Blóðseginn var fjarlægður, blóð-
Mynd 1. Tölvusneiðmynd með skuggaefni afbrjóstholi
sýndi söðulblóðsega í lungnaslagæð.
LÆKNAblaðið 2011/97 97