Læknablaðið - 15.04.2011, Side 12
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKN
Myndl.Nýgeng/ 10
bráðs síðuheilkennis
á árunum 1998-2007
miðað við íbúafjölda
höfuðborgarsvæðisins (fjöldi
tilfella/100.000 íbúa/ár). 8 -
7
1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007
Sjúkraskrárnar voru lesnar með það í huga að
finna sjúklinga sem höfðu brátt síðuheilkenni. Það
var skilgreint sem svæsinn verkur í síðu eða kviði
og nýrnabilun, án augljósra skýringa annarra en
Tafla I. Lýðfræðilegir þættir og lyfjasaga sjúklinga sem komu á Landspítala með brátt
síðuheilkenni. F = konur, M = karlar. Eyður tákna skort á upplýsingum.
no. ár aldur (ár) kyn alkóhól tegund bólgueyðandi verkjalyfs ábending fyrir bólgueyðandi verkjalyfi
1 1998 35 M óþekkt
2 1998 35 M já díklófenak timburmenn
3 2000 33 M óþekkt bakverkir
4 2001 22 M já
5 2003 27 M íbúprófen
6 2003 30 M íbúprófen kvef
7 2004 35 M já óþekkt timburmenn
8 2004 28 F já íbúprófen timburmenn
9 2005 29 M já
10 2005 25 M já
11 2005 30 M já íbúprófen vöðvaverkur
12 2005 32 M já íbúprófen timburmenn
13 2006 19 F
14 2006 23 M díklófenak krossbandaaðgerð
15 2006 34 M já íbúprófen+díklófenak áverkar eftir áflog
16 2007 23 M já íbúprófen beinhimnubólga
17 2007 18 M já
18 2007 26 M já íbúprófen+díklófenak áverkar eftir áflog
19 2007 23 M já
20 2007 26 F já íbúprófen timburmenn
21 2007 19 M já íbúprófen timburmenn
hugsanlegrar neyslu bólgueyðandi verkjalyfs,
áfengis eða hvors tveggja. Þannig var skráð saga
um slíka neyslu ekki skilyrði.
Farið var yfir sjúkraskrár sjúklinga með brátt
síðuheilkenni og atriði varðandi sögu, skoðun og
rannsóknir skráð.
Árlegt nýgengi (fjöldi tilfella/100.000 íbúa/ár)
var reiknað út frá fjölda tilfella og stærð hins til-
tekna aldurshóps.12 Nýgengið var reiknað á
tvennan hátt, bæði út frá íbúafjölda höfuðborgar-
svæðisins og fjölda landsmanna. Meðalnýgengi
var síðan reiknað. Sjúklingafjöldi á fyrri og seinni
helmingi rannsóknartímabils var borinn saman
með kí-kvaðrat prófi (p<0,05 taldist marktækt).
Sjúklingum með brátt síðuheilkenni er lýst sem
tilfellaröð. Þar sem við á eru niðurstöður gefnar
upp sem miðgildi (spönn).
Einnig var leitað upplýsinga um heildarsölu
og lausasölu íbúprófens og díklófenaks ásamt
heildarneyslu alkóhóls á íslandi á tímabilinu
1998-2007 og í Danmörku, Noregi og Svíþjóð árið
2007. Upplýsingar um sölutölur bólgueyðandi
verkjalyfja fengust við fyrirspumir til Lyfjastofn-
unar á íslandi, Lægemiddelstyrelsen í Danmörku,
Folkhelseinstituttet í Noregi og Apotekens Service
AB í Svíþjóð en upplýsingar um heildarneyslu
alkóhóls fengust á vefsíðum hagstofa Norður-
landanna.13-16
Niðurstöður
Á rannsóknartímabilinu fengu 106 sjúklingar
sjúkdómsgreininguna bráð nýrnabilun, þar af
21 sjúklingur með brátt síðuheilkenni (20%).
Nýgengið hækkaði á rannsóknartímabilinu (mynd
1); fjórir sjúklingar greindust á fyrri helmingi en 17
á seinni helmingi (p<0,01). Meðalnýgengi bráðs
síðuheilkennis var 3,2/100.000/ár ef miðað var við
íbúafjölda höfuðborgarsvæðisins en 2,0/100.000/
ár ef miðað var við fjölda landsmanna. Aldur við
greiningu bráðs síðuheilkennis var 26 (19-35) ár
(tafla I). Átján sjúklingar voru karlkyns og þrír
kvenkyns. Einkennum og skoðun er lýst í töflu II.
Sjúkdómsmyndin var einsleit og auðþekkjan-
leg þeim sem könnuðust við brátt síðuheilkenni.
Sjúklingamir voru ungt, hraust fólk og hafði
enginn þeirra fyrri nýmasögu. Eins og neðan
greinir var í öllum tilvikum utan einu saga um
nýlega neyslu á bólgueyðandi verkjalyfi, áfengi
eða hvom tveggja. Oft höfðu sjúklingar verið að
skemmta sér fáum dögum fyrir fyrir komu og
voru stundum tengsl á milli þess og ábendingar
fyrir bólgueyðandi verkjalyfi; af 13 sem gáfu upp
ábendingu tóku sex lyfið vegna timburmanna og
tveir vegna verkja eftir áflog. Sjúklingarnir komu
á bráðamóttöku vegna mikils sársauka í síðu eða
216 LÆKNAblaðið 2011/97