Læknablaðið - 15.04.2011, Side 27
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKN
Ómar Sigurvin
Gunnarsson1’2
kandídat
Guðjón Birgisson2
skurðlæknir
Margrét
Oddsdóttir1’2
skurðlæknir
t Lést 9. janúar 2009.
Tómas
Guðbjartsson12
skurðlæknir
Lykilorð: kviðverkir, óútskýrðir
kviðverkir, afdrif, rannsóknir,
skurðaðgerð, bráðamóttaka.
’Læknadeild
Háskóla íslands,
2skurðlækningasviði
Landspítala.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Tómas Guðbjartsson,
prófessor og yfirlæknir
Skurðlækningasvið
Landspítala
tomasgud@landspitali. is
Afdrif sjúklinga með
óútskýrða kviðverki á
bráðamóttöku
Ágrip
Tilgangur: Óútskýrðir kviðverkir er algengasta
greining sjúklinga sem leita á bráðamóttöku vegna
kviðverkja. Tilgangur þessarar afturskyggnu rann-
sóknar var að kanna afdrif þessara sjúklinga ári
eftir útskrift af bráðamóttöku.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin náði til allra
sjúklinga sem útskrifaðir voru með óútskýrða
kviðverki af bráðamóttökum Landspítala í Foss-
vogi og við Hringbraut, 1. janúar til 31. desember
2005. Ekki voru teknir með sjúklingar á bráða-
móttöku kvenna- eða bamadeildar. Skoðaðar
vom sjúkraskrár sjúklinga sem leituðu aftur
á bráðamóttöku vegna kviðverkja næstu 12
mánuði og skráð einkenni, staðsetning verkja,
rannsóknaniðurstöður og útskriftargreining við
endurkomu.
Niðurstöður: Alls leituðu 62.116 sjúklingar á
bráðamóttökur Landspítala árið 2005 og voru
1411 (2,3%) þeirra útskrifaðir með greiningima
óútskýrðir kviðverkir. Á næstu 12 mánuðum
leituðu 112 (7,9%) sjúklingar aftur á bráðmóttöku
vegna kviðverkja, flestir tvisvar eða oftar. Við
endurkomu fengu 27 (24,1%) af 112 sértæka grein-
ingu, en 85 vom útskrifaðir aftur með óútskýrða
kviðverki. Gallsteinar greindust hjá 8 (29,6%),
botnlangabólga hjá 5 (18,5%) og krabbamein
hjá tveimur (7,4%) sjúklingum. Skurðaðgerð
var framkvæmd hjá 17 sjúklinganna (63%) við
endurkomu.
Ályktun: Tæp 8% sjúklinga með óútskýrða
kviðverki leituðu aftur á bráðamóttöku innan
árs vegna kviðverkja. Um fjórðungur fékk sér-
tæka greiningu við endurkomu sem leiddi til
skurðaðgerðar í rúmlega helmingi tilfella, oftast
vegna gallsteinavandamála eða botnlangabólgu.
Niðurstöður benda til að bæta megi greiningu
sjúklinga með kviðverki þegar þeir koma fyrst á
bráðamóttöku.
Inngangur
Kviðverkir em algengt vandamál hjá þeim sem
leita læknis, en samkvæmt erlendum rannsóknum
em 4-5% þeirra sem koma á bráðamóttökur
sjúkrahúsa þar vegna kviðverkja.1'2 Eftir sögutöku,
skoðun og rannsóknir er leitast við að finna
orsökina og setja fram nákvæma greiningu. Sumir
eru lagðir inn, til dæmis sjúklingar sem þurfa
aðgerð vegna botnlanga- eða gallblöðrubólgu.
Aðrir em sendir heim, oft með sértæka meðferð,
til dæmis sýklalyf við þvagfærasýkingu eða
ristilsarpabólgu. Orsök fyrir kvörtunum sjúklinga
finnst þó ekki alltaf og eru þeir þá útskrifaðir með
greininguna óútskýrðir kviðverkir (non specific
abdominal pain, NSAP).
Einkenni sjúklinga með óútskýrða kviðverki
geta lagast af sjálfu sér. I rannsókn Lukens og
félaga vom til dæmis 59,1% sjúklinga án einkenna
þremur vikum eftir útskrift, 28,6% leið betur
og aðeins 3,3% leituðu aftur á bráðamóttöku
innan mánaðar.3 Kviðverkir geta hins vegar tekið
sig upp aftur, jafnvel löngu síðar. í hollenskri
rannsókn kvartaði til dæmis þriðjungur sjúklinga
um kviðverki ári eftir útskrift.4
Á síðustu áratugum hefur hlutfall sjúklinga
með óútskýrða kviðverki farið lækkandi, aðal-
lega vegna bættra greiningaraðferða. I banda-
rískum rannsóknum fengu til dæmis 41,1% kvið-
verkjasjúklinga greininguna árið 1972, borið
saman við 24,9% árið 1993A2,5,6 Á sama tíma fækk-
aði innlögnum sjúklinga með kviðverki úr 27,4%
í 18,3%.1- 2 Þrátt fyrir framfarir í greiningartækni
em óútskýrðir kviðverkir enn algengasta greining
sjúklinga sem leita á bráðamóttöku vegna
kviðverkja. Greiningin er því algengari en bæði
botnlangabólga og gallsteinavandamál sem eru
í öðm og þriðja sæti.5-7 Hér á landi hefur vantað
upplýsingar um afdrif þessa sjúklingahóps,
ekki síst þegar litið er til lengri tíma. Markmið
rannsóknarinnar var að rannsaka nánar afdrif
sjúklinga sem útskrifaðir voru með óútskýrða
kviðverki af bráðamóttökum Landspítala.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin var afturskyggn og náði til allra
sjúklinga sem útskrifaðir vom með greininguna
óútskýrðir kviðverkir af bráðamóttökum Land-
spítala í Fossvogi og við Hringbraut frá 1. janúar
til 31. desember 2005. Komur á bráðamóttöku
Kvennadeildar og Bamaspítala Hringsins voru
ekki teknar með. Greiningar samkvæmt ICD-10
LÆKNAblaðið 2011/97 231