Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2011, Síða 7

Læknablaðið - 15.11.2011, Síða 7
RITSTJÓRNARGREIN Landspítali - niðurskurður eða hagræðing? Björn Zoéga bæklunarskurðlæknir, forstjóri Landspítalans og klínískur prófessor við Háskóla íslands. bjornz@landspitali. is Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2012, sem lagt var fram 1. október síðastliðinn, er Landspítalanum gert að hagræða í rekstri um 1,9%. Þetta kann að hljóma eins og lítil krafa, en fyrir spítalann eru þetta 630 milljónir á sama tíma og verkefnin hafa aukist. Einhverjir hafa sagt að það ætti ekki að vera mikið mál að hagræða fyrir rétt tæplega 2%. En skoðum aðeins forsöguna. A árunum 2004-2008, allt góðæristímabilið á íslandi, lækkuðu framlög ríkisins til spítalans að raungildi ár hvert. Landspítalinn naut því aldrei góðærisins, andstætt mörgum þáttum heilbrigðisþjónustu hins opinbera samkvæmt þjóðhagsreikningum Hagstof- unnar.1 Gengisfall krónunnar vegur einnig þyngra á Landspítala en víðast hvar annars staðar hjá opinberum stofnunum vegna þeirrar kostnaðaraukningar sem því fylgdi á sérhæfðum vörum sem spítalinn getur ekki verið án. Frá árinu 2008 hefur Landspítalinn dregið saman rekstrarkostnað sinn um 23% þegar tekið er tillit til gengisáhrifa og fram- lags ríkisins sem hefur lækkað um 20% síðan kreppan skall á. Starfsfólk spítalans hefur með óeigingjörnu starfi náð þeim árangri að nú stefnir í að Landspítalinn standist fjárlög annað árið í röð. A sama tíma hefur starfsfólkið náð að standa vörð um öryggi sjúklinga og veita góða þjónustu, raunar svo góða, að spítalinn var í efstu sætum í könnun Samtaka verslunar og þjónustu um „afburða" þjónustufyrirtæki á Islandi síðastliðið vor. Einnig er rétt að árétta að spítalinn hefur náð að halda áfram hágæðarannsóknum, sem vógu afar þungt nú í október þegar Háskóli Islands komst í fyrsta sinn inn á lista yfir 300 bestu háskóla heims.2 En nú er komið að kaflaskilum. Landspítalinn er á þeim stað að eina leiðin til að halda spítalanum innan fjárlaga er að draga úr þjónustu. Framkvæmdastjórn Landspítala lýsti því yfir strax í nóvember árið 2010 að árið 2011 yrði erfitt og frekari niðurskurður á framlagi til spítalans myndi leiða til niðurskurðar á þjónustu. Þessum upplýsingum var aftur komið á framfæri opinberlega í sumar. Það kom því engum á óvart þegar spítal- inn kynnti þær erfiðu aðgerðir sem hann verður að fara í. Fagleg sjónarmið voru höfð að leiðarljósi og ekki lagt upp með aðgerðir nema að undangenginni úttekt á áhrifum á þjónustu við sjúklinga sem málið snerti og á þeirri hagræðingu sem næðist með aðgerðunum. Dæmi um slíkt er sameining líknardeilda spítalans í hentugra húsnæði á einum stað. Sú aðgerð hafði raunar verið í skoðun í langan tíma og var starfsemi þessara deilda sameinuð í nokkra mánuði í sumar til að kanna hagræðingarmöguleika sem í því fælust. Annað dæmi er flutningur réttargeðdeildar að Sogni inn á Klepp. Með þeim flutningi fær deildin stærra rými og samlegðaráhrif nást í mönnun, auk þess sem öryggi sjúklinga og starfsfólks eykst. Því miður fækkar legurýmum um 22 vegna skerðingar fjárlaga. Við það verður aukið álag á deildir og aðstandendur og erfiðara að útskrifa sjúklinga í sumum tilvikum. Líklegt er að biðlistar muni lengjast. Því miður situr endurnýjun á nauðsynlegum tækjum á hakanum og endurbætur á rafrænni sjúkraskrá ganga mun hægar en við vildum. Það er synd, því að þar liggja ef til vill helst tækifæri til hagræðingar og aukins öryggis sjúklinga. Þannig má spara verðmætan tíma starfsfólks, stytta innlagnir og gera göngudeildir og rannsóknir skil- virkari en nú er hægt. Einnig er afar mikilvægt að fá aukið fé til endurbóta á gömlu og illa förnu húsnæði sem við munum þurfa að nota enn um hríð uns nýjar spítalabyggingar verða teknar í notkun. Eg held að flestir sjái að lengra verður ekki gengið í svokallaðri hagræðingu. Nú er komið að þeim mörkum að óhjákvæmilegt er að minnka þjónustuna. Mín skoðun er sú að stjórnvöld geri sér grein fyrir þessu en meti aðstæður þannig að ekki verði hjá því komist að skerða framlög til spítalans enn frekar, þótt það leiði til minni þjónustu en áður. En ég minni á söguna og tölurnar. Spítalinn var ekki vel aflögufær fyrir kreppu, og hefur í raun náð frábærum árangri við að standast skert fjárlög síðastliðin ár. Það er búið að taka meira en fimmtung af framlagi ríkisins úr rekstrinum og ofan á þá skerðingu leggjast gengisáhrif. Nú er komið nóg. Starfsmenn Landspítala munu leggja sig fram við að veita sem besta þjónustu í þeim erfiðu aðstæðum sem fjárlög búa þeim og sjúklingum spítalans. Landspítalinn verður áfram spítali allra landsmanna og helsta öryggisnet bráðveikra, slasaðra og alvarlega veikra hér á landi. Við munum sem fyrr starfa af metnaði og leitast við að vera í fremstu röð í heilbrigðisþjónustu, menntun heilbrigðisstétta og í vísindum. Heimildir 1. Zoega B. Landspítalinn - kreppan gerir erfiða stöðu verri. Morgunblaðið 28. nóv. 2009. 2. www.timeshighereducation.co.uk/world-university* rankings/2011-2012/276-300.html - október 2011. Landspitali, National University Hospital, Cuts or rationalization? Björn Zoéga, Orthopedic Surgeon, is the CEO of Landspítali, National University Hospital, and ciinical professor at the University of lceland LÆKNAblaðið 2011/97 587
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.