Læknablaðið - 15.11.2011, Blaðsíða 9
RITSTJÓRNARGREIN
Sameinuðu þjóðirnar og
ósmitnæmir sjúkdómar
Gunnar
Guðmundsson
Höfundur er lungnalæknir
á Landspítala, dósent
viö læknadeild Háskóla
íslands og situr í ritstjórn
Læknablaðsins.
ggudmund@
landspitali.is
Þartn 19.-20. september 2011 héldu Sam-
einuðu þjóðirnar fund í New York-borg
með fulltrúum æðstu stjórnvalda aðildar-
ríkjanna, þar sem tii umfjöllunar voru
svokallaðir ósmitnæmir sjúkdómar (non-
communicáble diseases).'• 2 Það má einnig
nefna þá langvinna sjúkdóma. Gallinn
við að nota það orð er að smitsjúkdómar
geta líka verið langvinnir og því var fyrra
orðið valið. Vaxandi athygli beinist að
ósmitnæmum sjúkdómum sem auknum
heilsufarsvanda vegna þess hve mjög þeir
eru í sókn og herja á þjóðir heims eins
og faraldur. Þessir sjúkdómar eru fyrst og
fremst hjarta- og æðasjúkdómar, krabba-
mein, sykursýki og langvinnir lungna-
sjúkdómar. Þar til nú hafa þessir sjúk-
dómar verið vanræktir af stjórnvöldum
og alþjóðastofnunum. Þessir sjúkdómar
herja jafnt á karla og konur og talið er að
þeir séu valdir að 60%, eða 37 milljónum
þeirra 57 milljóna dauðsfalla sem verða í
heiminum á hverju ári.2 Aætlað er að fjögur
af hverjum fimm dauðsföllum sem verða
vegna ósmitnæmra sjúkdóma séu í löndum
með miðlungs eða lágar þjóðartekjur.
Þannig eru þessir sjúkdómar mikilvægur
þáttur í að viðhalda fátækt meðal þjóða
heims. Um níu milljónir þessara dauðsfalla
verða fyrir 60 ára aldur. Áætlað er að koma
megi í veg fyrir allt að þrjá fjórðu hluta
hjartasjúkdóma, sykursýki 2 og heilaslags
og 40% krabbameina.1'2 Það er hægt að
gera með fyrirbyggjandi aðgerðum gegn
sameiginlegum áhættuþáttum eins og
reykingum, óhollu mataræði, hreyfingar-
leysi og óhóflegri áfengisnotkun. Þetta er
í annað skiptið sem Sameinuðu þjóðirnar
halda slíkan fund um heilsufarsvandamál,
en sá fyrri var árið 2001 og var um HIV-
sýkingar og leiddi til betri árangurs í
meðferð slíkra sjúklinga í heiminum.1 Á
fundinum nú í september var samþykkt
yfirlýsing um samvinnu allra þjóða í að
berjast gegn ósmitnæmum sjúkdómum í
nánustu framtíð.
Nú er einstakt tækifæri fyrir íslensk
stjórnvöld að vera í fararbroddi í heiminum
í baráttunni gegn þessum sjúkdómum. Þær
metnaðarfullu áætlanir sem lagðar hafa
verið fram um aðgerðir í tóbaksvörnum eru
dæmi um slíkt tækifæri, því reykingar og
önnur tóbaksnotkun eiga ríkan þátt í mikilli
og ört vaxandi útbreiðslu ósmitnæmra
sjúkdóma um allan heim. Nú deyja um sex
milljónir manna vegna reykinga, en talið
er að sú tala hækki í sjö og hálfa milljón
árið 2020, eða um 10% allra dauðfalla.
Aðgerðir til að draga úr offitu, eins og
að auka hreyfingu almennings, eru annað
dæmi um slíkt tækifæri. Sá frábæri árangur
sem náðst hefur í forvörnum gegn hjarta-
og æðasjúkdómum á Islandi er fordæmi
sem íslendingar geta sýnt umheiminum
um hvernig hægt er að ná árangri í bar-
áttunni gegn ósmitnæmum sjúkdómum.
Skorað er á íslensk heilbrigðisyfirvöld að
nota tækifærið til koma af stað áætlunum
sem liggja fyrir um tóbaksvarnir og undir-
búa áætlanir sem beinast að öðrum áhættu-
þáttum ósmitnæmra sjúkdóma.
Heimildir
1. un.org/en/-október 2011
2. who.int/nmh/events/un_ncd_summit2011/en/ -
október 2011
The United Nations and
Non-communicable diseases
MD.PhD - respiratory physician, associate professor
and member of the editorial board.
Læknadagar
16.-20. janúar 2012
LÆKNAblaðið 2011/97 589