Læknablaðið - 15.11.2011, Blaðsíða 47
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Guðbjartur Hannesson velferðarráðlterra óskaði eftir samráði við lækna um forgangsrööun í niðurskurði fjárveitinga til
Iteilbrigðismála.
hópur við íslensku þjóðina þar sem
til eru jafnmiklar erfðafræðilegar
upplýsingar um einstaklingana og
hér. Hvemig við förum með þessar
upplýsingar við rannsóknir í framtíðinni
þarf að ræða málefnalega og af ábyrgð."
Vilhjálmur Árnason ræddi hagsmuni
einstaklingsins við rannsóknir og hvernig
þær geta bæði gagnast einstaklingnum
og skaðað hann. Hann ræddi hvernig
hin ítarlega erfðafræðiþekking á íslensku
þjóðinni gæti gagnast við skimanir
fyrir ýmsum alvarlegum sjúkdómum,
þar sem ekki þyrfti að kalla alla til
skimunar heldur einungis þá sem
væru í skilgreindum áhættuhópi. „Við
vitum í rauninni hverjir eru í áhættu
og hverjir ekki. Hins vegar getur alltaf
gerst að einstaklingur sem ekki er í
áhættuhópnum fái sjúkdóminn engu
að síður og eftir á mætti segja að
skimun hefði getað hindrað frekari
framgang hans." Þá ræddi hann einnig
hvernig erfðafræðilegar upplýsingar
til einstaklings gætu bæði aukið og
minnkað lífsgæði hans eftir ástæðum
hverju sinni. „Þetta þarf því að athuga
vandlega og ræða til hlítar áður en
afdrifaríkar ákvarðanir eru teknar."
Nýr formaður
Síðast en ekki síst fór fram formanns-
kjör á aðalfundinum og voru tveir
í framboði; Ragnar Jónsson og Þor-
björn Jónsson. Báðir héldu þeir
snöfurmannlegar framboðsræður en
Þorbjörn fór með sigur af hólmi í
atkvæðagreiðslu. Birna Jónsdóttir
fráfarandi formaður tilkynnti um úrslit
kosninganna og óskaði nýjum formanni
velfarnaðar í embættinu. Fjórir nýir
buðu sig fram til stjórnarsetu og
jafnmargir hurfu úr stjórn, þannig að
þar var sjálfkjörið. í stjórn Læknafélags
Islands sitja nú auk formannsins, Þórey
Steinarsdóttir, Árdís Ármannsdóttir,
Steinn Jónsson, Orri Þór Ormarsson,
Salome Arnardóttir, Magnús Baldvinsson
féhirðir, Valgerður Rúnarsdóttir
varaformaður og Anna Kr. Jóhannsdóttir
ritari.
Fjölmargar ályktanir voru samþykktar
á fundinum. Þar er meðal annars lýst
yfir stuðningi við að byggður verði nýr
sameinaður Landspítali á einum stað,
skorað er á stjórnvöld að skilgreina
hvaða heilbrigðisþjónusta falli undir
sj úkratryggingahugtak almannatrygginga
og skorað er á stjórnvöld að gera
íslenskt heilbrigðiskerfi á ný að
fýsilegum starfsvettvangi fyrir lækna. Þá
samþykkti fundurinn tvær ályktanir um
tóbaksvarnir. Allar ályktanir fundarins
má lesa í heild á heimasíðu Læknafélags
Islands, www.lis.is.
LÆKNAblaðið 2011/97 627