Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2011, Blaðsíða 61

Læknablaðið - 15.11.2011, Blaðsíða 61
FRÉTTATILKYNNiNG FRÁ SÍ Sjúkratryggingar IsLands Sjúkratryggingar íslands veita upplýsingar um réttindastöðu sjúklinga rafrænt Á síðustu misserum hafa áfangar náðst í þjónustu Sjúkra- trygginga Íslands (SÍ) til hagsbóta fyrir almenning og veitendur heilbrigðisþjónustu. Stofnunin hefur hafið rafræna miðlun upplýsinga til þessara hópa. Veitendur heilbrigðisþjónustu geta nú nálgast rafrænt upplýsingar til að ákvarða rétta kostnaðarþátttöku sjúklinga, án frekari staðfestingar eða framvísunar afsláttarskírteina. Almenningur getur skoðað eigin réttindi, sótt afsláttarkort og skoðað reikningsyfirlit og endurgreiðslur vegna heilbrigðisþjónustu. Læknisþjónusta Upplýsingum um réttindastöðu vegna læknisþjónustu er miðlað með tvennum hætti til heilbrigðisstofnana og læknastöðva: • Með beinum rafrænum samskiptum við upplýsingakerfi heilbrigðisstofnana og læknastöðva. • I gegnum þjónustusíðu SI fyrir veitendur heilbrigðisþjónustu, Gagnagátt (mínar síður rekstraraðila) á www.sjukra.is. Upplýsingar um réttindastöðu eru þrenns konar: • Er sjúklingur sjúkratryggður eða ekki? • Er sjúklingurinn öryrki eða ellilífeyrisþegi? • Er sjúklingur með afsláttarkort? Sjúklingur greiðir því ávallt verð miðað við þá greiðslu- þátttöku sem hann á rétt á og þarf ekki að framvísa afsláttarkorti frá SI eða örorkukorti frá TR. Nú þegar er þessi tenging komin við allar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu, auk Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og Domus Medica. Fleiri aðilar munu tengjast á næstunni. Önnur leið til að fletta upp réttindastöðunni er að tengjast ofangreindri Gagnagátt sem krefst innskráningar á lokað svæði á vefnum www.sjukra.is sem miðlar lykilorði í netbanka. Aðilar eins og Læknasetrið í Mjódd, Læknisfræðileg myndgreining, Læknavaktin og fleiri hafa hafið notkun á gáttinni og er stofnunin nú að kynna hana fyrir fleiri aðilum í heilbrigðisþjónustu. Kaup á lyfjum 43 apótek tengd Rafræn tenging er við 43 apótek af þeim 63 sem starfrækt eru á landinu og er áætlað að síðustu apótekin tengist fyrir árslok. Þau sem nú eru tengd og réttindastöðu er miðlað til eru öll útibú Lyfju, Lyfja og heilsu, og apótek Lyfjavers. Sí miðlar til apóteka svipuðum upplýsingum og til aðila í læknisþjónustu, þ.e. upplýsingum um sjúkratryggingu og stöðu, en einnig hvort einstaklingur sé með lyfjaskírteini sem gefur aukinn afslátt af einstökum lyfjum. Rétt eins og gagnvart læknisþjónustu greiðir einstaklingur ávallt verð miðað við þá greiðsluþátttöku sem hann á rétt á og þarf ekki að framvísa afsláttarskírteinum. Sjúklingar geta séð réttindastöðu sína Sjúklingar geta fengið upplýsingar um eigin réttindastöðu í gegnum Réttindagátt (mínar síður einstaklinga) á www.sjukra. is. í gáttinni er hægt að sjá stöðu afsláttarkorts og lyfjaskírteinis og prenta þau út, hægt er að skoða yfirlit yfir reikninga sem greiddir hafa verið vegna heilbrigðisþjónustu, sem og mögulegar endurgreiðslur á kostnaði. Hver er ávinningurinn? Ávinningur af rafrænni miðlun réttindastöðu er margháttaður: 1. Óþarfi er fyrir sjúkling að hafa með sér afsláttarskírteini til að sýna fram á aukin réttindi til heilbrigðisþjónustu. Þetta sparar sjúklingum sporin, til dæmis að sækja afsláttarkort og endurgreiðslu ef afsláttarkort gleymist. 2. Reikningagerð og uppgjör aðila í heilbrigðisþjónustu verður nákvæmari og minni hætta er á villum og leiðréttingum. 3. Umsýsla SÍ við að sannreyna reikninga og uppgjör við aðila í heilbrigðisþjónustu verður minni, réttari og öruggari, og meira svigrúm skapast til að veita almenningi og veitendum heilbrigðisþjónustu betri þjónustu. Allt þetta leiðir til þess að viðskiptakostnaður í kerfinu lækkar og hagkvæmni eykst hjá öllum ofangreindum aðilum. Veitendur heilbrlgðisþjónustu hvattir til að tengjast Veitendur heilbrigðisþjónustu eru hvattir til að notfæra sér þjónustu SÍ, hvort sem þeir vilja sækja um tengingu við kerfin eða byrja strax með því að skrá sig inn í Gagnagátt. Upplýsingar um aðgang má finna undir Gagnagátt á forsíðu www.sjukra.is. Einnig er hægt að hafa samband við SÍ í síma 515-0070 eða með tölvupósti á gatt@sjukra.is. Miðlun á réttindastöðu sjúklinga er öllum til hagsbóta: sjúklingum, veitendum heilbrigðisþjónustu og ríkinu. Fréttatilkynning LÆKNAblaðið 2011/97 641
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.