Læknablaðið - 15.11.2011, Blaðsíða 56
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Grunnrannsókn sem lofar góðu
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Þórunn Ásta Ólafsdóttir líffræðingur
varði doktorsritgerð sína um áhrif
bólusetninga á nýbura í músamódeli
við læknadeild Háskóla fslands þann
23. september síðastliðinn. Heiti
ritgerðarinnar er Ónæmissvör nýbura
við bólusetningu - Nýir ónæmisglæðar
og ónæmisvakar til vemdar gegn
pneumókokka- og inflúensusjúkdómum.
Verkefnið var styrkt af Háskólasjóði
Eimskipafélags íslands, Vísindasjóði
Landspítalans og PATH's Pneumococcal
Vaccine Project, Bandaríkjunum.
Leiðbeinandi við verkefnið var prófessor
Ingileif Jónsdóttir. Andmælendur voru
Richard Malley dósent í barnalækn-
ingum við Harvard Medical School
og læknir við smitsjúkdómadeild
Children's Hospital í Boston, og Magnús
Gottfreðsson, prófessor við læknadeild
Háskóla íslands og sérfræðingur í
smitsjúkdómum á Landspítala.
Þórunn Ásta lauk BS-gráðu í líf-
fræði árið 2002 og meistaraprófi í
heilbrigðisvísindum 2005. Hún starfar á
ónæmisfræðideild Landspítala en stefnir
á frekari vísindarannsóknir erlendis á
næsta ári.
„Markmið verkefnisins var að
kanna áhrif bólusetninga á nýbura.
Rannsóknin var gerð í músamódeli
þar sem ekki er hægt að gera svona
grunnrannsókn á mönnum. Eg var að
kanna áhrif bólusetninga gegn tveimur
alvarlegum sýklum sem herja á ungbörn,
Streptococcus pneumoniae (pneumókokkar)
og inflúensuveiru. Með þetta markmið
í huga notaði ég mismunandi bóluefni
og bætti út í þau ónæmisglæðum en
þeir hafa þann tilgang að yfirvinna
takmarkanir á ónæmiskerfi nýbura og
svörun við bólusetningum," segir Þórunn
Ásta um rannsóknarverkefnið.
Músamódelið sem Þórunn Ásta
notaði voru sjö daga gamlar mýs
en ónæmiskerfi þeirra og nýbura
manna hefur sambærilegan þroska.
„Eg rannsakaði áhrif bólusetninganna
með tilliti til vessabundinna og
frumubundinna ónæmissvara sem eru
nauðsynlegir til að vernda gegn þessum
tveimur sýklum, en með því að nota
músamódel get ég skoðað nákvæmlega
hvaða frumugerðir og sameindir virkjast
í milta, eitlum og blóði. Ómögulegt
væri að gera slíkar rannsóknir í
mönnum því þær takmarkast við
mælingar á blóðsýnum. Annar kostur
sem dýramódel eins og okkar hefur,
er að við getum framkallað sýkingar
og þannig metið beint verndandi áhrif
bólusetninganna gegn sjúkdómnum. Á
rannsóknarstofunni okkar hefur verið
þróað sýkingarmódel í músum þar
sem sýkt er um nef til að líkja eftir
náttúrulegri sýkingu pneumókokka, og
síðan er sýking í lungum og blóði metin
með því að telja bakteríurnar."
Færri skammtar mikilvægari
Pneumókokkar eru algeng baktería í
nefkoki ungbarna og er oft án einkenna,
en ef hún nær sér á strik getur hún
valdið eyrnabólgu, lungnabólgu,
heilahimnubólgu og alvarlegum
blóðsýkingum. „Það eru kannski ekki
mörg börn sem deyja af völdum
pneumókokka í hinum vestræna heimi,
þar sem hægt er að gefa sýklalyf, en þó
ber að hafa í huga að sýklalyfjaónæmum
pneumókokkum fer sífellt fjölgandi.
Ekki má heldur draga úr því að
pneumókokkasýkingar eru mjög algengar
á heimsvísu, sérstaklega hjá börnum
yngri en tveggja ára og eldra fólki. í
þróunarlöndunum eru pneumókokkar
algeng orsök ungbarnadauða og á
hverju ári deyr um ein milljón barna í
heiminum af völdum þessarar bakteríu."
Þórunn Ásta segir hluta
rannsóknarverkefnis síns hafa beinst
að því að þróa breiðvirkara bóluefni
sem verndar gegn fleiri gerðum
bakteríunnar en nú tíðkast. „Prótíntengt
fjölsykrubóluefni gegn pneumókokkum
sem notað er við ungbarnabólusetningar
nú, virkar vissulega mjög vel en hefur
samt ýmsar takmarkanir. Það er ekki
mjög breiðvirkt og virkni þess er því
breytileg eftir heimssvæðum, einnig er
það mjög dýrt í framleiðslu og það
þarf að gefa það í þremur skömmtum
á fyrsta ári barnsins, sem gerir það
að verkum að það er of dýrt fyrir
flest þróunarlönd. Bakterían fyrirfinnst
með 90 mismunandi hjúpgerðir. Þau
bóluefni sem notuð eru nú virka
á 10 eða 13 þeirra en það fer eftir
bóluefnaframleiðendum.
Mitt rannsóknarverkefni snerist að
hluta til um að auka ónæmisvekjandi
eiginleika prótíntengds fjölsykrubóluefnis
með því að bæta ónæmisglæðum út í
bóluefnið, þannig að hægt sé að gefa
það sem fyrst eftir fæðingu og vekja
vernd með færri skömmtum af því. Ég
kannaði einnig virkni nýs bóluefnis á
nýbura sem inniheldur vel varðveitt
prótín úr bakteríunni og gæti því veitt
vernd gegn öllum 90 hjúpgerðunum.
Þetta bóluefni yrði ódýrara í framleiðslu
en pneumókokkabóluefni sem nú eru á
markaði. Kjami rannsóknarinnar snerist
því annars vegar um að efla virkni
þeirra bóluefna sem eru til með því
að bæta út í þau ónæmisglæðum og
hins vegar að finna öflugra og ódýrara
bóluefni sem henta myndi nýburum."
Ein bólusetning nægi
Rannsókn Þórunnar Ástu á bóluefni
gegn inflúensuveiru snerist um að finna
bóluefni fyrir ungbörn sem eru alla
jafna ekki bólusett fyrir inflúensu innan
við sex mánaða aldur. „Ungböm eru
þó í hættu að fá alvarlegar sýkingar
af völdum inflúensuveiru. Ein af
ástæðum þess að við vildum rannsaka
þetta er að mikilvægt er að finna
bóluefni sem er í senn öflugt og að
nota megi sem minnstan skammt af
bóluefninu, sérstaklega með yfirvofandi
heimsfaraldur inflúensu í huga. Til að
tryggja verndandi ónæmissvar barna
636 LÆKNAblaðið 2011/97