Læknablaðið - 15.11.2011, Blaðsíða 50
UMFJÖLLUN O G GREINAR
ísland í fararbroddi um tóbaksvarnir
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Læknafélag íslands gekkst fyrir
Tóbaksvarnaþingi 30. september
síðastliðinn. Aðalefni þingsins var
kynning þingsályktunartillögu sjö
þingmanna úr öllum flokkum nema
Sjálfstæðisflokki, um yfirgripsmikla
aðgerðaáætlun til næstu tíu ára til
að draga úr neyslu tóbaks meðal
þjóðarinnar.
Fyrsti flutningsmaður tillögunnar er
Siv Friðleifsdóttir, Framsóknarflokki, en
auk hennar eru flutningsmenn Þuríður
Backman og Alfheiður Ingadóttir
(VG), Ásta R. Jóhannesdóttir og Ólína
Þorvarðardóttir (Sf), Eygló Harðardóttir
(F) og Margrét Tryggvadóttir
(Hreyfingin).
Siv hélt erindi á þinginu þar
sem hún reifaði helstu áherslur í
greinargerð með ályktuninni en sjálf
er ályktunin einföld: Alpingi ályktar
að fela velferðarráðherra að vinna 10 ára
aðgerðaáætlun um tóbaksvarnir þar sem
einn liðurinn verði að sala á tóbaki verði
takmörkuð við apótek.
Tóbak aðeins selt i apótekum
Aðgerðaáætlunin er sett fram í sjö
meginþáttum en greinargerðin með
frumvarpinu er ítarleg, á nær 11
blaðsíðum, og rakti Siv öll atriði hennar
skilmerkilega en lagði sérstaka áherslu á
ákveðin atriði umfram önnur.
„Meginmarkmið áætlunarinnar er að
koma í veg fyrir að ungmenni ánetjist
tóbaki og minnka þannig nýliðun
reykingamanna. Daglega ánetjast tvö
ungmenni tóbaki hérlendis. Helmingur
þessara rúmlegu 700 ungmenna sem
ánetjast tóbaki árlega mun deyja úr
tóbakstengdum sjúkdómi, takist þeim
ekki að hætta. Flestir reykingamenn hefja
reykingar á bamsaldri eða unglingsaldri,
fyrir 20 ára aldur, og ákvörðun um
að hefja reykingar er því ekki upplýst
ákvörðun fullorðins einstaklings. Þar
sem tóbak er ávanabindandi efni sem
veldur fljótt fíkn, gildir í raun ekki
frjálst val um notkun þess eftir að
reykingar eru hafnar, heldur stýrir fíkn
og fráhvarf neyslunni að stærstum hluta.
Niðurstöður rannsókna sýna að flestir
reykingamenn segjast vilja hætta, þó þeir
haldi reykingum áfram. Langmikilvægast
í baráttunni við tóbaksnotkun og
alvarlegar afleiðingar hennar er að
stöðva nýliðun tóbaksneytenda með
beinskeyttum aðgerðum, þar á meðal
aðgengistakmörkunum."
Hinir sjö þættir aðgerðaáætlunarinnar
eru: 1) sölustöðum tóbaks fækkað,
aðgengi minnkað og stigu stemmt við
nýjum neysluformum, 2) enn frekari
takmörk við því hvar neyta má tóbaks,
3) auglýsingar fjarlægðar og sýnileiki
tóbaks minnkaður, 4) efnahagslegar
aðgerðir, 5) skilgreiningar og flokkun
tóbaks og nikótíns að lögum, 6) eftirlit,
skipulag og valdheimildir yfirvalda í
tóbaksvörnum, 7) aukin fræðsla, þekking
og stuðningur við tóbaksvarnir.
Siv sagði að það atriði áætlunarinnar
sem valdið hefði hvað mestum
umræðum og deilum væri sú tillaga
að sala á tóbaki verði takmörkuð við
apótek. Lagt er til að í lok hins 10 ára
tímabils verði einungis hægt að kaupa
tóbak í apótekum gegn framvísun
lyfseðils frá lækni. Þetta er í samræmi
við að nikótín og tóbak verði skilgreind
sem ávana- og fíkniefni í lögum og
tóbak og tóbaksreykur verði flokkuð
sem krabbameinsvaldandi eiturefni. Siv
sagði að fremur en láta tillöguna falla
á ágreiningi innan þingsins um að
takmarka sölu tóbaks við apótek, þá
væri lending fólgin í því að leggja til að
tóbak verði einungis selt á útsölustöðum
ÁTVR.
Um enn frekari takmarkanir við
því hvar neyta má tóbaks er lagt til
að allar reykingar á almannafæri verði
bannaðar. Reykingar verði þannig
óheimilar á lóðum opinberra bygginga, á
gangstéttum, í almenningsgörðum og á
baðströndum. Þá verði reykingar undir
stýri óheimilar og alfarið óheimilar í
bílum þar sem eru börn undir 18 ára
aldri. Einnig verði óheimilt að reykja
á svölum fjölbýlishúsa og opinberra
bygginga og óheimilt verði að reykja
í nærveru þungaðra kvenna og barna
vegna eituráhrifa óbeinna reykinga.
í ályktuninni er ennfremur lögð
áhersla á að hindra að nýjar tegundir
tóbaks festi rætur og er þar sérstaklega
vísað til munntóbaks og innlendrar
framleiðslu og sölu á neftóbaki sem
ungmenni nota í stórauknum mæli sem
munntóbak. Tekið er fram að neysla
á munntóbaki sé víðast hvar bönnuð
í Evrópu og ísland á því á hættu
að hverfa úr hópi forystuþjóða um
tóbaksvarnir ef ekki er tekið á þessu.
„Margt bendir til að Alþingi þurfi nú
að huga að næstu skrefum ef ísland
á ekki að dragast aftur úr öðrum
forystulöndum í tóbaksvörnum," segir í
greinargerð ályktunarinnar. Þá er bent
á að nettókostnaður samfélagsins vegna
reykinga sé um 30 milljarðar króna
árlega.
Áhrif reykinga á meðgöngu
Danski læknirinn Steen Stender flutti
erindi um rannsóknir sínar á áhrifum
reykinga þungaðra kvenna á fóstur
og nýbura. Stender er íslendingum
að góðu kunnur frá síðasta ári en
hann var ráðgjafi íslenskra stjómvalda
um bann við notkun transfitusýra í
matvælum. í erindi Stender kom fram
að reykingar hafa herpandi áhrif á
æðar naflastrengs og draga þannig úr
flutningi næringarefna til fóstursins,
sem veldur minni fæðingarþyngd
nýbura reykjandi mæðra. Aðalefni
erindis Stender var þó áhrif reykinga
á framleiðslu köfnunarefnisoxíðs (NO)
í slagæðaveggjum sem er ein helsta
vörn æðakerfisins gegn æðakölkun.
Rannsóknir Stenders á áhrifum
reykinga benda eindregið til þess
að reykingar dragi úr framleiðslu
630 LÆKNAblaðiö 2011/97