Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2011, Blaðsíða 62

Læknablaðið - 15.11.2011, Blaðsíða 62
ÖLDUNGADEILD Haustferð Öldungadeildar 12.-14. september 2011 Söguslóðir í Borgarfirði og Dalasýslu / Hvammi í Dölum. Ljósm. P.Á. Förin var farin undir leiðsögn sagna- meistarans Magnúsar Jónssonar. Ferða- langamir vom 36 auk hans. Fyrsta daginn lá leiðin um Borgarfjörð. Var fyrst haldið að Bæ í Bæjarsveit. Þar gerði Rúðólfur biskup garðinn frægan á fyrstu öld kristni hér á landi. í Skáney í Reykholtsdal var rifjuð upp sagan um Gunnlaug ormstungu, Helgu hina fögru og Hrafn Önundarson. Á leiðinni í Reykholt hlustuðum við á góða hugleiðingu um endalok Snorra Sturlusonar. Eftir hádegisverð þar var ekið að Gilsbakka. Þar var Gunnlaugur ormstunga fæddur. í kirkjugarði hvíla skáldin Guðmundur Böðvarsson og Jón Helgason. Á leið um Hvítársíðuna var rifjuð upp Heiðarvígasaga sem gerist á þeim slóðum. Nú var ekið í Dali um Bröttubrekku og stansað á Eiríksstöðum í Haukadal. í eftirlíkingu skála Eiríks rauða hlýddum við á skemmtilegan fyrirlestur við langeld. Síðan var haldið að Laugum í Sælingsdal. Þar gistum við í tvær nætur við ágætan viðurgjörning. Morguninn eftir var ekið í Laxárdal. Þar var komið við á Höskuldsstöðum og skoðuð brekkan þar sem Höskuldur uppgötvaði að ambáttin Melkorka gat talað. Þá var ekið að Goddastöðum hinum megin dalsins og þaðan að Hjarðarholti sömu leið og búsmali Ólafs pá var rekinn í óslitinni röð. Þama skoðuðum við kirkjuna, fallega prófraun Rögnvalds Ólafssonar arkitekts. í för okkar um þessar slóðir var Laxdæla rifjuð upp og þá ekki síst ljúfsár saga þeirra fóstbræðra Kjartans og Bolla og Guðrúnar Ósvífursdóttur. Á Laugum hefur verið endurbyggð Guðrúnarlaug þar sem hún hreif þá pilta með tungutaki sínu og fegurð. Við glímdum við spurninguna hver það var sem hún unni mest. Var það Kjartan eða Bolli eða kannske hún sjálf? Fyrir hádegisverð í Leifsbúð í Búðardal skruppum við að Hvammi. Hér bjó landnámskonan Auður djúpúðga og meðal merkra höfðingja er þar bjuggu voru Þórður geilir, langömmubarn Auðar, og Hvamms-Sturla. Á leið þaðan var komið við á Krosshólaborg þar sem Auður lét reisa krossa og gerði bænir sínar. Þar hafa byggðarkonur látið reisa myndarlegan steinkross. Síðdegis var ekið um Svínadal áleiðis í Saurbæ. Á leiðinni var áð og farið í góðan göngutúr að Kjartanssteini þar sem Kjartan Ólafsson var veginn. Þetta er fallegur steinn og jafnvel hægt að sjá í honum mannsandlit. Kjartan eða kannske Guðrún? Úr Saurbæ var ekið um Skarðsströnd og Fellsströnd í náttstað. Komið var við á hinu forna höfuðbóli Skarði og var kirkjan þar skoðuð. Hér var rifjuð upp saga þeirra Ólafar ríku Loftsdóttur og Bjarnar Þorleifssonar hirðstjóra, ríkustu hjóna landsins á 15. öld. Björn var drepinn í Rifi af Englendingum og allir kunna tilsvör Ólafar er hún frétti lát hans. Þessi nálægt 100 km ferð „fyrir Strandir" var hin ánægjulegasta og lá um marga fallega og sögufræga staði. Þriðja daginn var lagt af stað heimleiðis. Lá leið okkar um Heydal í Hnappadal. Var þaðan ekið niður £ Hítarnes þar sem bjó Þórður Kolbeinsson sá sem með svikum komst yfir Oddnýju eykyndil sem heitin hafði verið Birni Hítdælakappa. Þaðan var ekið upp í Hítardal að samnefndum bæ. Á leiðinni var rifjuð upp saga Björns og dvöl Grettis í Grettisbæli. Einnig heilsuðum við tröllunum Hít og Bárði Snæfellsás sem dagaði uppi við Hítardalsbæinn. Var nú ekið að Borg, gengið þar í kirkju og skoðaður legsteinn Kjartans Ólafssonar sem prýddur er torskildum rúnum. Rýnt var í listaverk Ásmundar Sveinssonar, Sonatorrek, og rifjuð upp tilurð ljóðsins. Eftir hádegisverð í Borgarnesi var ekið út á Álftanes á Mýrum og var gaman að koma á þessa útjörð Skallagríms. Héldum við síðan heim, hæstánægð með ferðina. Tvær limrur urðu til í þessari ferð: Við réðumst í reisu langa í rútu með Sagna-Manga. Dagana þrjá var dámargt að sjá og dæluna Mangi lét ganga. Boðskapur byggðina flaug um: Baðdagur Gunnu á Laugum! Tveir skelltu á skeið í skyndi á leið bera að berj'ana augum. P.Á. Idungadeild Læknafélags íslands Stjórn Öldungadeildar: Sigurður E. Þorvaldsson, formaður, Jón Hilmar Alfreðsson ritari, Tryggvi Ásmundsson gjaldkeri, Bjarni Hannesson, Guðmundur Oddsson Öldungaráð Umsjón síðu: Páll Ásmundsson Hörður Þorleifsson, Jóhann Gunnar . Þorbergsson, Höskuldur Baldursson, Kristín Guttormsson, Leifur Jónsson, Páll Ásmundsson 642 LÆKNAblaðið 2011/97
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.