Læknablaðið - 15.11.2011, Síða 62
ÖLDUNGADEILD
Haustferð Öldungadeildar 12.-14. september 2011
Söguslóðir í Borgarfirði og Dalasýslu
/ Hvammi í Dölum. Ljósm. P.Á.
Förin var farin undir leiðsögn sagna-
meistarans Magnúsar Jónssonar. Ferða-
langamir vom 36 auk hans.
Fyrsta daginn lá leiðin um Borgarfjörð.
Var fyrst haldið að Bæ í Bæjarsveit. Þar
gerði Rúðólfur biskup garðinn frægan á
fyrstu öld kristni hér á landi.
í Skáney í Reykholtsdal var rifjuð
upp sagan um Gunnlaug ormstungu,
Helgu hina fögru og Hrafn Önundarson.
Á leiðinni í Reykholt hlustuðum við á
góða hugleiðingu um endalok Snorra
Sturlusonar. Eftir hádegisverð þar var
ekið að Gilsbakka. Þar var Gunnlaugur
ormstunga fæddur. í kirkjugarði hvíla
skáldin Guðmundur Böðvarsson og Jón
Helgason. Á leið um Hvítársíðuna var
rifjuð upp Heiðarvígasaga sem gerist á
þeim slóðum.
Nú var ekið í Dali um Bröttubrekku
og stansað á Eiríksstöðum í Haukadal. í
eftirlíkingu skála Eiríks rauða hlýddum
við á skemmtilegan fyrirlestur við
langeld. Síðan var haldið að Laugum í
Sælingsdal. Þar gistum við í tvær nætur
við ágætan viðurgjörning.
Morguninn eftir var ekið í Laxárdal.
Þar var komið við á Höskuldsstöðum
og skoðuð brekkan þar sem Höskuldur
uppgötvaði að ambáttin Melkorka gat
talað. Þá var ekið að Goddastöðum
hinum megin dalsins og þaðan að
Hjarðarholti sömu leið og búsmali Ólafs
pá var rekinn í óslitinni röð. Þama
skoðuðum við kirkjuna, fallega prófraun
Rögnvalds Ólafssonar arkitekts.
í för okkar um þessar slóðir var
Laxdæla rifjuð upp og þá ekki síst
ljúfsár saga þeirra fóstbræðra Kjartans
og Bolla og Guðrúnar Ósvífursdóttur.
Á Laugum hefur verið endurbyggð
Guðrúnarlaug þar sem hún hreif þá
pilta með tungutaki sínu og fegurð. Við
glímdum við spurninguna hver það var
sem hún unni mest. Var það Kjartan eða
Bolli eða kannske hún sjálf?
Fyrir hádegisverð í Leifsbúð í
Búðardal skruppum við að Hvammi. Hér
bjó landnámskonan Auður djúpúðga og
meðal merkra höfðingja er þar bjuggu
voru Þórður geilir, langömmubarn Auðar,
og Hvamms-Sturla. Á leið þaðan var
komið við á Krosshólaborg þar sem
Auður lét reisa krossa og gerði bænir
sínar. Þar hafa byggðarkonur látið reisa
myndarlegan steinkross.
Síðdegis var ekið um Svínadal áleiðis
í Saurbæ. Á leiðinni var áð og farið
í góðan göngutúr að Kjartanssteini
þar sem Kjartan Ólafsson var veginn.
Þetta er fallegur steinn og jafnvel hægt
að sjá í honum mannsandlit. Kjartan
eða kannske Guðrún? Úr Saurbæ var
ekið um Skarðsströnd og Fellsströnd í
náttstað. Komið var við á hinu forna
höfuðbóli Skarði og var kirkjan þar
skoðuð. Hér var rifjuð upp saga þeirra
Ólafar ríku Loftsdóttur og Bjarnar
Þorleifssonar hirðstjóra, ríkustu hjóna
landsins á 15. öld. Björn var drepinn
í Rifi af Englendingum og allir kunna
tilsvör Ólafar er hún frétti lát hans.
Þessi nálægt 100 km ferð „fyrir
Strandir" var hin ánægjulegasta og lá um
marga fallega og sögufræga staði.
Þriðja daginn var lagt af stað
heimleiðis. Lá leið okkar um Heydal
í Hnappadal. Var þaðan ekið niður £
Hítarnes þar sem bjó Þórður Kolbeinsson
sá sem með svikum komst yfir Oddnýju
eykyndil sem heitin hafði verið Birni
Hítdælakappa.
Þaðan var ekið upp í Hítardal
að samnefndum bæ. Á leiðinni var
rifjuð upp saga Björns og dvöl Grettis
í Grettisbæli. Einnig heilsuðum við
tröllunum Hít og Bárði Snæfellsás sem
dagaði uppi við Hítardalsbæinn.
Var nú ekið að Borg, gengið þar í
kirkju og skoðaður legsteinn Kjartans
Ólafssonar sem prýddur er torskildum
rúnum. Rýnt var í listaverk Ásmundar
Sveinssonar, Sonatorrek, og rifjuð upp
tilurð ljóðsins.
Eftir hádegisverð í Borgarnesi var ekið
út á Álftanes á Mýrum og var gaman að
koma á þessa útjörð Skallagríms.
Héldum við síðan heim, hæstánægð
með ferðina.
Tvær limrur urðu til í þessari ferð:
Við réðumst í reisu langa
í rútu með Sagna-Manga.
Dagana þrjá
var dámargt að sjá
og dæluna Mangi lét ganga.
Boðskapur byggðina flaug um:
Baðdagur Gunnu á Laugum!
Tveir skelltu á skeið
í skyndi á leið
bera að berj'ana augum.
P.Á.
Idungadeild
Læknafélags íslands
Stjórn Öldungadeildar:
Sigurður E. Þorvaldsson, formaður, Jón Hilmar
Alfreðsson ritari, Tryggvi Ásmundsson gjaldkeri,
Bjarni Hannesson, Guðmundur Oddsson
Öldungaráð Umsjón síðu: Páll Ásmundsson
Hörður Þorleifsson, Jóhann Gunnar .
Þorbergsson, Höskuldur Baldursson, Kristín
Guttormsson, Leifur Jónsson, Páll Ásmundsson
642 LÆKNAblaðið 2011/97