Læknablaðið - 15.11.2011, Blaðsíða 58
STÖÐUAUGLÝSING
LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ
Directorate of Health
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða yfirlækni í fullt starf eða hlutastarf eftir nánara samkomulagi.
Yfirlæknir er staðgengill landlæknis og næsti yfirmaður er sviðsstjóri eftirlits og gæða.
Leitað er að fjölhæfum og áhugasömum einstaklingi sem hefur frumkvæði og metnað til að ná árangri.
Hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki í starfi er nauðsyn í þverfaglegu umhverfi embættisins.
Helstu verkefni:
• Gerð gæðavísa og öryggisviðmiða í heilbrigðisþjónustu
• Eftirlit með gæðum og öryggi í heilbrigðisþjónustu
• Umsjón með gerð, endurskoðun og innleiðingu klínískra leiðbeininga og verklagsreglna
• Meðferð kvartana
• Eftirlit með lyfjaávísunum
• Ábyrgð á meðferð leyfisveitinga
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Sérfræðimenntun í læknisfræði
• Reynsla eða menntun á sviði stjórnunar
• Þekking, menntun eða reynsla af þeim verkefnum sem falla undir viðkomandi verksvið hjá embætti landlæknis og
viðkomandi er falið að sinna skv. lögum um embættið
• Starfsreynsla á sviði stjórnsýslu og reynsla af rannsóknarvinnu er kostur
• Góð færni I Islensku og ensku er krafa. Þekking á dönsku, sænsku eða norsku er kostur
Markmið embættisins er að stuðla að heilbrigði landsmanna, m.a. með því að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og
stuðla að því að lýðheilsustarf og heilbrigðisþjónusta byggist á bestu þekkingu og reynslu á hverjum tíma.
Embættið annast söfnun og greiningu heilbrigðisupplýsinga m.a. með rekstri heilbrigðisskráa og með rannsóknum.
Tilgangur heilbrigðisskráa er að afla þekkingar sem nýtist við vöktun heilsufars, við eftirlit, við að meta árangur og gera
áætlanir. Embættið annast sóttvarnir skv. sóttvarnalögum nr. 19/1997.
Starfsemi Lýðheilsustöðvar var sameinuð starfsemi embætti landlæknis fyrr á árinu og flutti hið sameinaða embætti
landlæknis nýlega að Barónsstlg 47 þar sem Heilsuverndarstöð Reykjavíkur var áður til húsa. Starfsemi embættisins er
því í endurskoðun og áhugaverðir tímar framundan.
Umsjón með starfinu hafa Ragnheiður S. Dagsdóttir (ragnheidur.dagsdottir@capacent.is) og Jóna Björk Sigurjónsdóttir
(jona.sigurjonsdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Umsóknarfrestur er til og með 14. nóvember nk.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is.
Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi. Embætti landlæknis áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum í tiltekið starf.
Capacent Ráöningar
Borgartúni 27
Sími 540 1000
638 LÆKNAblaðið 2011/97