Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.2011, Page 58

Læknablaðið - 15.11.2011, Page 58
STÖÐUAUGLÝSING LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ Directorate of Health Embætti landlæknis óskar eftir að ráða yfirlækni í fullt starf eða hlutastarf eftir nánara samkomulagi. Yfirlæknir er staðgengill landlæknis og næsti yfirmaður er sviðsstjóri eftirlits og gæða. Leitað er að fjölhæfum og áhugasömum einstaklingi sem hefur frumkvæði og metnað til að ná árangri. Hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki í starfi er nauðsyn í þverfaglegu umhverfi embættisins. Helstu verkefni: • Gerð gæðavísa og öryggisviðmiða í heilbrigðisþjónustu • Eftirlit með gæðum og öryggi í heilbrigðisþjónustu • Umsjón með gerð, endurskoðun og innleiðingu klínískra leiðbeininga og verklagsreglna • Meðferð kvartana • Eftirlit með lyfjaávísunum • Ábyrgð á meðferð leyfisveitinga Menntunar- og hæfniskröfur: • Sérfræðimenntun í læknisfræði • Reynsla eða menntun á sviði stjórnunar • Þekking, menntun eða reynsla af þeim verkefnum sem falla undir viðkomandi verksvið hjá embætti landlæknis og viðkomandi er falið að sinna skv. lögum um embættið • Starfsreynsla á sviði stjórnsýslu og reynsla af rannsóknarvinnu er kostur • Góð færni I Islensku og ensku er krafa. Þekking á dönsku, sænsku eða norsku er kostur Markmið embættisins er að stuðla að heilbrigði landsmanna, m.a. með því að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og stuðla að því að lýðheilsustarf og heilbrigðisþjónusta byggist á bestu þekkingu og reynslu á hverjum tíma. Embættið annast söfnun og greiningu heilbrigðisupplýsinga m.a. með rekstri heilbrigðisskráa og með rannsóknum. Tilgangur heilbrigðisskráa er að afla þekkingar sem nýtist við vöktun heilsufars, við eftirlit, við að meta árangur og gera áætlanir. Embættið annast sóttvarnir skv. sóttvarnalögum nr. 19/1997. Starfsemi Lýðheilsustöðvar var sameinuð starfsemi embætti landlæknis fyrr á árinu og flutti hið sameinaða embætti landlæknis nýlega að Barónsstlg 47 þar sem Heilsuverndarstöð Reykjavíkur var áður til húsa. Starfsemi embættisins er því í endurskoðun og áhugaverðir tímar framundan. Umsjón með starfinu hafa Ragnheiður S. Dagsdóttir (ragnheidur.dagsdottir@capacent.is) og Jóna Björk Sigurjónsdóttir (jona.sigurjonsdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Umsóknarfrestur er til og með 14. nóvember nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is. Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi. Embætti landlæknis áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum í tiltekið starf. Capacent Ráöningar Borgartúni 27 Sími 540 1000 638 LÆKNAblaðið 2011/97

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.