Læknablaðið - 15.05.2012, Síða 29
TILFELLI MÁNAÐARINS
Tilfelli mánaðarins:
Maður með sýklasóttarlost og rauðkornasundrun
Inga Jóna Ingimarsdóttir', Lena Rós Ásmundsdóttir2, Magnús Gottfreðsson1'3
Höfundar eru öll læknar á smitsjúkdómadeild1 sýklafræðideild Landspítala2, læknadeild Háskóla íslands3
Fyrirspurnir: Magnús Gottfreðsson magnusgo@landspitali.is
Saga
Sjötugur maður með insúlínháða sykursýki kom á bráðamóttöku
með háan hita, verk um ofanverðan kvið og uppköst. Einkennin
höfðu ágerst undanfarna þrjá sólarhringa. Við komu var hann með
hita, 40,5°C, andaði 40 sinnum á mínútu, hjartsláttartíðni var 100
slög á mínútu en blóðþrýstingur var eðlilegur og súrefnismettun
án súrefnis sömuleiðis. Hann var vakandi, meðvitund óskert, en
litarhaft heiðgult. Eymsli fundust við þreifingu á kvið.
Hvít blóðkorn voru 23,0 xl09/L (4,0-10,5), hemóglóbín 105 g/L
(134-171), hematokrít 0,34 L/L, kreatínín 77 pmól/L (60-100), blóð-
flögur 355 xl09/L (150-400), glúkósi 23,7 mmól/L (3,9-5,8), laktat
8,7 mmól/L (0,5-1,6) og CRP 152 mg/L (<10). Truflun var á lifrar-
prófum (ALP 216 IU/L [35-105], GGT 310 IU/L [<115], ALAT 140
IU/L [<70] og heildarbilirúbín 127 pmól/L [5-25]).
Mynd 1. TS-mynd afkvið við komu á bráðamóttöku sýnir sýkingargrunsamlega
breytingu í lifur ásamt loftmyndun.
Settur var þvagleggur og kom þá lítið af dökkrauðu þvagi.
Strimilpróf sýndi 4+ af sykri og 3+ af ketonum. TS-mynd af kvið
sýndi loftmyndun í lifur (mynd 1). Hafin var meðferð með insúl-
índreypi og vökva, teknar ræktanir og sjúklingur settur á Ampi-
cillin, Cefuroxím og Metronidazól í æð. Útskilnaður var einungis
15 mL fyrstu fjórar klukkustundirnar og var hann því tengdur
við nýrnaskilunarvél. Endurtekin blóðprufa sýndi hvít blóðkorn
21,3 xl09/L, hemóglóbín 70 g/L, hematókrít 0,19 og blóðflögur 607
xl09/L. Hann fékk samtals fjórar einingar af rauðkornaþykkni og
sjö einingar af blóðflögum. Hann féll í blóðþrýstingi, var barka-
þræddur og lagður í öndunarvél. Blóðsýni var afar óeðlilegt séð
með berum augum, sermi svartleitt (mynd 2). Daginn eftir greind-
ust gram-jákvæðar staflaga bakteríur í blóðræktun.
Hver er sjúkdómsgreiningin?
Mynd 2. Blóðprufa sjúklings (lengst til vinstri) tekin á gjörgæsludeild á öðrum degi.
Hún sýnir svartleitt sermi vegna gríðarmikillar rauökornasundrunar. í miðjunni
sést eðlileg blóðprufa með gulu sermi efst. Lengst til hægri en blóðprufa með vægri
rauðkornasundrun.
LÆKNAblaðið 2012/98 289