Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2012, Blaðsíða 34

Læknablaðið - 15.12.2012, Blaðsíða 34
UMFJÖLLUN O G GREINAR HPV-greining veitir nær fullkomna vernd gegn leghálskrabbameini ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson „Kona sem kemur reglulega í vel skipulagða skimun getur reiknað með 90% vörn gegn leghálskrabbameini," segir Joakim Dillner, prófessor í smit- sjúkdómum og faraldsfræði við Karól- ínsku stofnunina í Stokkhólmi. Dillner hefur lengi unnið við HPV-greiningar, mat á gildi HPV-bólusetninga, áhrifum slíkra bólusetninga og HPV-greiningar á framkvæmd leghálskrabbameinsleitar, og tekið þátt í gerð nýrra leiðbeininga um notkun HPV-greiningar í legháls- krabbameinsleit í Svíþjóð, auk þess sem hann hefur verið ráðgjafi víða um lönd við sams konar verkefni. Prófessor Dillner var hér í boði Krabba- meinsfélags Islands og flutti erindi á mál- þingi Krabbameinsfélagsins og Embættis landlæknis um „leghálskrabbameinsleit og HPV-greiningu, forsendur, árangur og framtíðarsýn". Erindi hans fjallaði um hvernig nýta má HPV-greiningu til að auka kostnaðarvirkni skipulegrar leitar að krabbameini í leghálsi. Nútímavæðing skimunar Svíar hófu rannsóknir á virkni bólusetn- inga gegn HPV-veirunni árið 2000 og Dillner segir að ónæmi þeirra kvenna sem fyrst voru bólusettar haldist enn. „Eftir 12 ár virðist viðbótarbólusetningar ekki vera þörf. En við fylgjumst vel með og nú hafa um 100 milljón stúlkur verið bólusettar í heiminum og ekkert komið fram ennþá sem kallar á endurtekna bólusetningu hjá þeim. Aðalerindi mitt hingað til íslands var að gera grein fyrir árangri af skipulegri skimun fyrir HPV-smiti hjá konum í Sví- þjóð. Gamla aðferðin, að taka frumustrok hjá konum við skimun, er enn í góðu gildi en þar er verið að skima með legháls- stroki fyrir frumubreytingum í leghálsi og þarf að endurtaka þá skimun á þriggja ára fresti til að konan geti verið örugg. Skimun fyrir HPV-smiti þarf hins vegar aðeins að endurtaka á 6 ára fresti þar sem forstigsbreytingar koma ekki fram fyrr en í fyrsta lagi að þeim tíma liðnum. Yfirleitt tekur það mun lengri tíma að þróa legháls- krabbamein, eða allt að 20 ár. Með því að breyta skimuninni frá frumustroki yfir í að kanna hvort konan hafi smitast af HPV er hægt að lengja bilið á milli skoðana úr 2-3 árum upp í 5-6 ár sem hefur ýmsa kosti í för með sér, bæði fyrir konurnar og heilbrigðisyfirvöld. Við tölum gjarnan um nútímavæðingu skimunarinnar með því að konurnar þurfa ekki að koma eins oft, en áherslan er lögð á að ná þeim sem flestum inn þegar skima þarf. Það verður auðveldara þegar hver kona þarf að koma sjaldnar. Lenging tímans á milli skimana dregur einnig úr kostnaði og það er já- kvætt fyrir yfirvöld og þær stofnanir sem bera kostnaðinn." Veitir nær fullkomna vernd Dillner segir að allar rannsóknir staðfesti að rétt sé að hefja reglulega skimun hjá konum við 25 ára aldur. „I Svíþjóð hefst skimunin við 23 ára aldur vegna þess að skráð tilfelli um leghálskrabbamein hjá svo ungum konum eru til staðar þó þau séu svo fátíð að frá hagkvæmnisjónarmiði borgi sig ekki að hefja skimunina fyrr en við 25 ára aldur. Við getum sagt að tekið sé mið af bæði mannúðar- og kostnaðar- sjónarmiðum, sé rétt að hefja skimun hjá konum 23-25 ára." Dillner segir mikilvægt að koma þeim skilaboðum til kvenna að HPV-smit leiði ekki sjálfkrafa af sér leghálskrabbamein. „Flestar konur með HPV-smit fá aldrei leghálskrabbamein. Hins vegar er HPV- smit forsenda þess að leghálskrabbamein myndist og því er bólusetning gegn HPV-smiti svo áhrifarík gegn þessum sjúkdómi. Ef kona er ósmituð af HPV, eru nánast engar líkur á því að hún fái leg- hálskrabbamein. Það er svo sjaldgæft að fyrsta spurningin í slíku tilfelli hlýtur að vera hvort greiningin sé rétt. En skilaboðin sem við viljum koma til allra kvenna eru einfaldlega að ef þær eru verndaðar gegn HPV-smiti, eru þær verndaðar gegn leg- hálskrabbameini." Bólusetning pilta gegn HPV Aðspurður um hvort til greina komi að bólusetja drengi einnig gegn HPV-veir- unni segir Dillner að það hafi vissulega verið rætt og skoðað. „Krabbamein hjá piltum af völdum HPV-veirunnar kemur fram í getnaðarlim, endaþarmi og hálsi. Tíðni þessara krabbameina er mun lægri en leghálskrabbameins af völdum HPV en þó hefur umræða um bólusetningu pilta gegn HPV aukist að undanförnu. Astralir hófu í haust bólusetningu drengja en aðrar þjóðir hafa enn ekki gert það. Umræðan í Evrópu hefur verið á þann veg að ég tel að það sé tímaspursmál hvenær fyrsta Evrópulandið ríður á vaðið í þeim efnum. I upphafi þegar byrjað var að ræða bólusetningu gegn HPV beindust augun eingöngu að stúlkum. Það var álitið að þar sem smitleiðin væri með kynmök- um þá væru piltar óbeint varðir gegn smiti ef stúlkurnar væru bólusettar. Annað sjónarmið sem vóg mjög þungt var að í upphafi voru bóluefnin dýr, skammturinn kostaði 140 evrur, og eftir útreikninga sem ég tók þátt í á sínum tíma fyrir heil- brigðisyfirvöld í Svíþjóð var niðurstaðan sú að það væri alltof dýrt að hefja bólu- setningu hjá piltum líka. Nú hefur þetta gjörbreyst þar sem skammturinn kostar 20-25 evrur og kostnaðarhliðin er því allt önnur, en einnig verður að taka með í reikninginn að samkynhneigðir piltar eru 662 LÆKNAblaðið 2012/98
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.