Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2012, Blaðsíða 66

Læknablaðið - 15.12.2012, Blaðsíða 66
Læknablaðið kallar eftir pistlum frá formönnum sér- greinafélaga og undirdeilda Læknafélags íslands og Reykjavíkur til þess að raddir fleiri liðsmanna heyrist. Blóðfræðifélag íslands Hlíf Steingrímsdóttir Yfirlæknir blóölækningadeildar hlifst@landspitali.is í lok síðustu aldar, eða árið 1999, tóku þeir blóðfræðingar sem þá voru starfandi á Islandi sig saman og stofnuðu Félag ís- lenskra blóðlækna, sem var skammstafað FIBL. Þar sem nokkurs ruglings gætti því margir héldu að allir blóðfræðingar væru virkir félagar í FÍFL (Félag íslenskra fjallalækna) var ákveðið að breyta nafni félagsins í Blóðfræðifélag íslands. Stofn- félagar voru Sigmundur Magnússon, Guðmundur Ingi Eyjólfsson, Guðmundur M. Jóhannesson, Páll Torfi Önundarson, Jóhanna Björnsdóttir, Vilhelmína Haralds- dóttir og Sigrún Reykdal. Aðrir áhuga- samir um blóðfræði, sem voru þó nokkuð margir, voru aukafélagar og sóttu fundi. Félagið var stofnað sem hagsmunafélag fyrir blóðfræðinga og áhugafélag um framgang og þróun blóðfræðinnar. I árdaga félagsins var blóðfræði stunduð á Landspítala með nokkrum plássum á legudeild krabbameinslækn- inga og á Borgarspítalanum á sameigin- legri legudeild með smitsjúkdómum og krabbameinslækningum. Á þessum tíma var nokkur dagdeildarstarfsemi þó hún hafi ekki verið neitt í líkingu við það sem hún er í dag. Mikil og blómleg starfsemi fór fram á læknastofum blóðfræðinga utan spítalans en göngudeildarstarfsemi á spítölunum var illa skilgreind og fór gjarn- an fram með óformlegum hætti á göngum legudeildanna. Jafnframt sáu blóðfræð- ingar um mikla starfsemi á rannsóknar- stofum spítalanna og rannsóknarstofunni á Læknasetrinu í Mjódd. Á þeim rúma áratug sem félagið hefur verið starfandi hefur margt breyst. Við sameiningu spítalanna árið 2001 var stofn- uð legudeild blóðlækninga á Landspítala við Hringbraut með 14 leguplássum og dagdeild sem fluttist í núverandi húsnæði á 11 B árið 2004. Göngudeildarstarfsemi spítalans er vel skipulögð og hefur eflst og vaxið gífurlega á undanförnum árum. Á sameinuðu sjúkrahúsi var blóðfræðinni skipt í klínískar blóðlækningar sem sinnir legudeilda, dag- og göngudeildarstarfsemi blóðlækninga og blóðmeinafræði sem sinnir rannsóknarhluta greinarinnar, blæðurum og storkumeinum. Mikil sam- vinna og skörun er skiljanlega þarna á milli og ráðgjöf fyrir spítalann og landið allt er sameiginleg. Á árunum 2006-2011 hefur komum til blóðlækna á dagdeild fjölgað um helming, eða úr 2000 komum á ári í 4200. Helstu ástæður þessa má rekja til aukins fjölda þungra krabbameinslyfjameðferða sem áður kröfðust innlagnar en nú eru gefnar á dagdeild, nýrra lyfja sem auðveldara er að gefa á dagdeild, betri árangurs meðferðar og lengri lifunar, hækkandi aldurs og aukinnar tíðni blóðsjúkdóma. Sjúklingar sem áður lágu langdvölum á legudeild eftir aðgangsharða krabbameinslyfjameð- ferð og langvarandi mergbælingu eru nú í meira mæli heima með miklum stuðningi á dagdeiid. Þetta fyrirkomulag er auð- vitað miklu hagkvæmara fyrir þjóðfélagið og að öllu leyti betra fyrir sjúklinginn. Þetta krefst þó þess að bráðaþjónusta fyrir þennan viðkvæma sjúklingahóp sé góð og skilvirk. Árið 2004 var farið að framkvæma háskammtakrabbameinsmeðferðir með eigin stofnfrumuígræðslu hér á íslandi. í upphafi var áætlað að þær meðferðir yrðu um það bil 7-10 á ári í samræmi við þann fjölda sjúklinga sem hafði verið sendur erlendis í slíka meðferð árin á undan. Þessir sjúklingar eru nú þrefalt fleiri en áður og í ár er útlit fyrir að 26 sjúklingar ljúki slíkri meðferð. Helstu ástæður þess- arar fjölgunar eru hærri aldur sjúklinga sem fara í meðferðina og aukin tíðni eitil- frumukrabbameina og mergæxla. Þegar undirrituð var að huga að sér- námi árið 1994 var haft á orði að blóðfræði væri algerlega mettuð sérgrein og vonlaust ef ætlunin væri að koma heim og starfa við fagið. Á þeim tíma voru fjórir læknar í sérnámi. Eg var þá deildarlæknir á Borgar- spítalanum og undir miklum áhrifum frá Guðmundi Inga Eyjólfssyni sem kynnti mig fyrir faginu og vakti áhuga minn. Hann sannfærði mig um að fagið væri fjölbreytt, bæði mikil bráðalyflæknisfræði sem og langvinnir sjúkdómar og krefjandi greiningar og rannsóknarstofuvinna. Eg lét því úrtöluraddir ekki hafa áhrif á mig og fór í blóðfræði. Allir blóðfræðingar sem þá voru í sérnámi fengu vinnu á Islandi og voru verkefnin strax ærin. Stórt skarð var höggvið í hóp blóðfræðinga árið 2006 við skyndileg fráföll Guðmundar M. Jó- hannessonar og Jóhönnu Björnsdóttur og hefur hópurinn vart borið sitt barr síðan. Á árunum 2003-2008 fóru engir læknar í sérgreinina blóðfræði vegna þeirrar háværu umræðu að fagið væri mettað, en á sama tíma fækkaði starfandi blóð- fræðingum í klínísku starfi úr 8 í fjóra en verkefnin fóru stigvaxandi. Það voru því góð ráð dýr og mikilvægt að leggja snörur fyrir unga lækna. Var þá gott að hugsa til gamalla tíma með Guðmundi Inga og rifja upp þá hluti sem heilluðu mann mest við fagið og hefur borið vel í veiði þar sem nú eru fimm læknar í sérnámi í blóðfræði erlendis. I framtíðinni mun Blóðfræðifélagið leggja áherslu á aukna norræna og al- þjóðlega samvinnu, meiri fræðslu fyrir heilbrigðisstarfsfólk og sjúklinga, sem og að standa vörð um faglega þætti blóðfræð- innar og hagsmuni blóðfræðinga. Þegar á heildina er litið álít ég því að Blóðfræðifélagið eigi sér bjarta framtíð. 694 LÆKNAblaðið 2012/98
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.